Læknablaðið - 01.12.1935, Page 17
LÆKNABLAÐIÐ
99
mannagerlinum. Benti á Liibeck-
bólusetninguna þar sem börnum
voru gefnir há-virulent berklagerl-
ar en dóu þó ekki öll. Mætti af því
ætla aö bovin-gerlar þyldust í smá-
skömtum. Kvaöst sammála yfirl.
Bartels um þaö, aö æskilegt væri
að rannsaka þessi atriöi hér á
landi, vegna þess einmitt aö viö
höfum nokkra sérstöðu.
Próf. G. Hannesson þakkaði yf-
irl. Bartels fyrir þann þátt, sem
hann heföi átt í framhaldsmentun
islenskra lækna. G. H. kvaðst hafa
það eftir Magnúsi heitnum Einars-
syni, dýralækni, að hann heföi al-
drei séð nautaberkla viö skoðun á
alátur-gripum hér í bæ um mörg
ár.
Yfirl. Bartels svaraði því næst
nokkru.
Var svo ekki fleira tekið fyrir
en fundi frestað til næsta dags.
Framhaldsfundur laugardaginn 29.
jún kl. 4 síðd.
1. Yfirlæknir O. Strandberg
flutti erindi um meðferð á byrjandi
krabbameini efst í öndunarfærum
einkum í barkakýli.
Fundarstjóri þakkaði hið einkar
fróðlega erindi og tóku fundar-
inenn undir með lófataki.
Ólafur Þorsteinsson þakkaði yf-
irlækninum sérstaklega erindið og
skýrði frá tilfelli af cancer laryng-
is er hanti og Guðm. he'itinn Magn-
ússon, prófessor höfðu opererað.
Dr. Gunnl. Claessen ])akkaði yf-
irl. Srandberg sérstaklega sem
fulltrúa Finsen stofnunarinnar fyr-
ir alla þá velvild og umönnun, sem
íslenskir sjúklingar hefðu orðið
þar aðnjótandi. Mintist nokkrum
-orðum á samvinnu hálslækna og
;geislalækna og lýsti í stórum drátt-
um Coutards aðferð. Benti á, að
eftir því, sem áhöldin bötnuðu og
yrnðu háspentari mætti vænta betri
árangurs af aðferð hans. Skýrði
hann frá þvi að Þjóðverjar hefðu
á síðustu árum gert tilraunir með
krabbameinslækningu með mjög
lágri spennu og væntu sér mikils
af henni.
Gunnl. Einarsson þakkaði yfirl.
Strandberg fyrir það hve góður ár-
ang’ur hefði fengist á þeim sjúk-
lingum, sem hann hefði sent til
Finsenstofnunarinnar. Sagði því
næst nokkrar sjúkrasögur af can-
cer laryngis, sem hann hefði séð.
2. Yfirl. D. Bartels flutti erindi
um blóðvatnslækningar á botn-
langabólgu.
Var erindið þakkað með lófa-
taki. Engar umræður spunnust út
af því.
Fundi frestað.
Fundur hófst aftur kl. síðd.
3. Sjúkratryggingar. Yfirlæknir
Kristinn Björnsson: Erindið birt í
Læknablaðinu.
Sigurjón Jónsson: Rétt framtek-
ið hjá frummælanda að trygging-
um beri að taka með velvild. Vil
kjósa nefnd í málið.
Þórður Edilonsson vildi bíða
með að kjósa nefnd þangað til
stjórnarkosning væri um garð
gengin, þar sem þetta heyrrði beint
undir stjórn L. í.
Magnús Pétursson vildi láta
kjósa milliþinganefnd, sem þá
ynni í samráði við væntanlega
stjórn félagsins.
Próf. G. Hannesson kvaðst
meðmæltur nefnd. Benti á að í út-
löndum hafi tryggingarnar að
mörgu leyti orðið fólkinu og lækn-
unum til óhagræðis og demórali-
serað þjóðirnar. T. d. væru Þjóð-
verjar i vandræðum með sínar
tryggingar; sama væri i Englandi.
Páll Kolka kvaðst hafa orðið
þess var að læknar i Þýskalandi
væru óánægðir með tryggingrarn-
ar. Reynslan sýndi að þeim trygðu
batnaði seinna en hinum, sem
borguðu sjálfir fyrir sig. Hér virt-
ust allir flokkar vera málinu hlynt-