Læknablaðið - 01.12.1935, Page 18
100
L Æ K NA B LAÐ 1 Ð
ir. Sjálfsagt aö ríkisvaldið leiti
samvinnu viö læknana áöur en
gengið er endanlega frá trygging-
unum. Mælti með 5 manna nefnd.
Dr. Helgi Tómasson taldi
rétt að taka tryggingunum vel,
en ekki með þeirri mótíver-
ingu Kristins Biörnssonar að
ekki þýði fyrir félagið að lenda
í deilu við ríkisvaldið. Okkar að-
staða er sterk og undir okkur er
það komið hvort sjúkratryggingar
takast. Taldi rétt að læknar hefðu
sjálfir forgöngu í þessum málum.
Hér dygöi enginn undirlægjuhátt-
ur.
Próf. G. Hannesson mintist á til-
lögu dr. Helga i Lbl. um að læknar
tækju sér sjálfir fram um þessi
mál. Reynslan í útlöndum væri sú
að altaf væri leitað til læknanna
um afslátt þegar alt væri komið
á hausinn. Væntanleg nefnd ætti
að vera stjórninni til aðstoðar.
Sigurjón Jónsson taldi óheppi-
legt að stofna til ,,Conflicta“. Vildi
heldur hafa 3ja manna nefnd.
Lagöi fram svohljóðandi tillögu:
„Fundurinn ákveður að kjósa 3ja
manna nefnd til að fylgjast með
sjúkratryggingarmálinu á alþingi
og leitast við að hafa áhrif á lög-
gjöf þá um þetta efni, sem er á
döfinni í þá átt að hún geti orðið
til sem mestra hagsbóta jafnt fyr-
ir lækna sem almenning og að leit-
ast verði við að varast sem mest
alt það sem reynsla erlendra
sjúkratrygginga hefir sýnt að orö-
ið hefir til þess að spilla árangri
þeirra. Nefndin vinni í samráði við
stjórn félagsins og heilbrigðis-
stjórnina, eftir því sem best þykir
henta“.
Páll Kolka kvaðst meðmæltur
tillögunni. Læknarnir ættu að hafa
áhrif á fólkið og væri þvi æskilegt
að gefinn yrði út bæklingur, til
þess að íræða fólk um málið. Bar
fram svolátandi tillögu: „Fundur-
inn samþykkir að heimila stjórn
L. í. að gefa út ef þurfa þykir,
bækling um sjúkratryggingar og
viöhorf hér við þeim og dreifa
honum út ókeypis. Kostnaðurinn
við útgáfuna greiðist úr félags-
sjóði“. Taldi rétt að fresta nefnd-
arkosningu þar til stjórnarkosn-
ingin hefði farið fram.
Nefndarkosning samþ. með öll-
um greiddum atkv. Samþ. að hafa
3ja manna nefnd með 17:14 atkv.
— Samþ. með öllum greiddum at-
kr. að fresta nefndarkosningn
fram yfir stjórnarkosningu.
Tillaga Páls Ivolka samþ. með
15 :2 atkv.
4. Nefndin, sem kosin var til að
athuga hréf Jóns Arnasonar hér-
aðslæknis, lagði fram svohljóðandi
nefndarálit: „Nefndin, sem kosin
var til að athuga erindi Jóns Arna-
sonar um áfengisreglugjöröina
leggur til að málið verði afgreitt
með svohljóðandi rökstuddri dag-
skrá: Með því annarsvegar að
fundurinn telur of fáa héraðs-
lækna, er hafa lyfjasölu mætta,
til þess að talist geti rétt að hann
geri ályktanir um mál, sem eins og
þetta snertir ])á sérstaklega og hef-
ir auk þess ekki verið á dagskrá
á fundarboðinu, og með því hins-
vegar að fundurinn treystir því að
óreyndu, að framkvæmd reglu-
gjörðarinnar verði hagað svo, að
hún verði ekki til þess að baka
héraðslæknum sem hafa lyfjasölu
kostnað eða óþægindi, tekur fund-
urinn fyrir næsta mál á dagskrá".
Magnús Pétursson: Vegna þess
að formaður er ekki viðstaddur, þá
vil ég leyfa mér fyrir stjórnarinn-
ar hönd að mótmæla þessari til-
lögu, þar sem mér finst hún fara
í þág við aðgjörðir stjórnarinnar
í reglugjörðarmálinu, eldri sam-