Læknablaðið - 01.12.1935, Page 20
102
LÆKNABLAÐIÐ
málinu væri frestað til morguns, en
M. Júl. Magnús reyni á meðan
eins og hann hefir haft á orði,
hvort takast muni að safna 5000
krónum og verði þá sjóðurinn
stofnaður þegar.
Magnús Pétursson kvaðst fella
sig vel við að málinu yrði vísað
til stjórnarinnar í því skyni að það
yrði borið undir alla félagsmenn.
Próf. N. Dungal taldi að svona
stórvægilegu máli gætu ekki
nokkrir menn ráðið til lykta án
þess að spyrja hina, enda ráð fyr-
ir gert i lögunum að svona mikil-
væg atriði séu borin, undir alla fé-
lagsmenn.
Magnús Pétursson bar þá fram
svohljóðandi rökstudda dagskrá:
„Með hliðsjón af 7. gr. félagslag-
anna vísar fundurinn málinu til
aðgerða stjórnarinnar á grundvelli
tillagna nefndarhlutanna og tekur
fyrir næsta mál á dagskrá“.
Dagskráin var samþ. með 16:5
atkvæðum.
6. Nefndin sem kosin var til þess
að gera tillögur um vikaramálið
lagöi fram þetta álit:
„Nefnd sú sem kosin var til
þess að gera tillögur um kaup vik-
ara leyfir sér að leggja fyrir fund-
inn eftirfarandi tillögur:
1. Miðhlutamenn Læknadeildar
fái 150 kr. á mánuði sem að-
stoðarlæknar.
2. Fyrsta ár síðarhl. fái 200 kr.
á mánuði sem aðstoðarlæknar.
3. Síðari hl. menn fái 250 kr. á
mánuði sem aðstoðarlæknar.
4. Sömu fái 300 kr. á mánuði
sem fullkomnir vikarar.
5. Kandidatar fái 300 kr. á mán-
uði sem aðstoðarlæknar.
6. Kandidatar fáÍ33o kr. mánuði
sem vikarar.
Ferðir og uppihald sé þeim að
kostnaðarlausu.
Tillögur þessar, sem gerðar eru
af „Félagi læknanema", getur
nefndin fallist á að öllu leyti og
ber þær því fram sem sínar til-
lögur“.
Magnús Pétursson benti á hvort
ekki væri réttara að miða laun
þessara manna að einhverju eða
öllu leyti við tekjur héraðsins.
Guðmundur Guðmundsson kvað
þennan taxta hafa verið reyndan
og hann gefist vel. Lélegu héruð-
in myndu engan vikar fá, ef mið-
að væri við tekjur.
Páll Kolka kvaðst í „principinu"
sammála Magnúsi Péturssyni, en
úr því að komið væri samkomulag
milli félags læknanema og L. í.r
virtist sér rétt að nota tækifærið
til þess að koma þessu í fast form
nú þegar. Altaf mætti síðar end-
urskoða taxta þennan.
Guðmundur Gíslason benti á að
eftir ársreynslu hefði ekkert komið
fram, sem benti á óánægju með
taxta þennan. Gat þess að kandi-
datar þeir sem ekki hefðu öðlast
læknisréttindi, væru ennþá í félagi
læknanema og væru bundnir við
taxta þennan og mættu ekki vinna
fyrir annan taxta.
Tillögur nefndarinnar voru því
næst samþ. með 7: 2 atkv.
7. Bólusetningar gegn bólusótt.
Próf N. Dungal: Erindið birt í
Lbl.
Þórður Thoroddsen upplýsti að
bólusótt hefði gengið hér á landi
síðast árið 1839. Hefði þá borist
til Vestmannaeyja með útlending-
um.
Magnús Pétursson: Það er leið-
inlegt að svo er orðið áliðið fund-
artímans, af því ákveðið hefir ver-
ið að ljúka fundinum í kveld eða
nótt, að ekki gefst nægur tími til
þess að ræða þetta merkilega er-
indi eins og vert og nauðsynlegt
væri. Eg get þó ekki látið vera að
segja nokkur orð og þá á þann veg