Læknablaðið - 01.03.1936, Blaðsíða 12
6
LÆKNABLAÐIÐ
stokk skipsins og kasta sér fyrir
borð, en eftir 5—6 klst., sagÖi hann,
aÖ sér hefÖi verið farið að líða
betur, og þegar hann var kominn
inn til mín, sagði hann að sér liði
nú miklum mun betur. Sjúkl. kvað
sig hafa verið magaveikan síðau
um 20 ára aldur; var hann í sjúkra-
húsi í Wesermúnde, sumarið áður
en þetta henti hann, í tœpa 2 mán.,
en sár fanst ekkert við gegnlýsing-
ar eða Röntgenmynd, þrátt fyrir
marg—endurteknar skoðanir. Að
sögn lækanna þar, tjáði hann mér,
að um magasár gæti ekki verið að
ræða og engar matarreglur kvað
hann sér hafa verið gefnar. Sjúkl.
sat boginn á stól og hélt fast um
bringspalir meðan hann skýrði mér
frá þessu, og þegar hann stóð upp,
gat hann staulast áfram kengbog-
inn. Hann kvartaði auk kvalaverkj-
arins í kviðnum um mjög sáran verk
yfir hægri herðakambi, sem lagði
fram í upphandlegg og upp í háls
þeim megin; ennfremur kvaðst
hann helst ekki geta dregið andann
fyrir sárum verk i bakinu gegnt
maga. Kviðarvöðvarnir ofan nafla
voru samandregnir og harðir eins
og spýta, kviðarhúð viðkvæm og
heleymsli í kviðnum, mest ofan
nafla, en voru talsverð í báðum
foss. iliacæ. Við explor. eru eymsli
þegar stutt er fram á við frá rec-
tum, loftrönd er neðst á lifur og
greinilegur resonance er neðst í
hægri miðaxill. línu yfir lifur. Um-
getinn verkur ofan hægra herða-
kambs var afar sár, hann forðaðist
að hreyfa kviðarvöðvana við önd-
unina. Hnéreflex eðlilegur, sömu-
leiðis pupill. reaction, púls 78. hiti
37,8. Meðan hjúkrunarkonan var
að þvo af sjúkl. mesta grómið, fór
eg frá honum og velti Jjessu fyrir
mér; liðnar voru 11V2 klst. frá því
að sjúkl. veiktist. Eg fór aftur til
sjúkl. óg fanst nú svo sterkur grun-
ur, að það stappaði nærri fullri
vissu: magaveikin áður, andlits-
drættirnir, spýtukviðurinn, kvala-
verkurinn sári og loftröndin á lifr-
inni. Eg ákvað því hnífsaðgerð svo
fljótt sem unt var. Með aðstoð Ein-
ars Guttormssonar, læknis, var
sjúkl. svæfður með Evipan og Æt-
her; voru þá liðnar 13 klst. síðan
sjúkl. veiktist. Miðlinuskurður frá
proc. xifoid. að nafla. Við opnun
á lífhimnu kom út talsvert af gul-
grænum vökva með loftbólum í og
var magalykt af innihaldinu; var
hann um allan kvið og reyndum við
að þerra hann eins vel og hægt var.
Ekkert sár fanst við magaop né á
skeifugörn, en magainnihald gusað-
ist út ofar, upp undir lifur, og opið
sár fundum við á curvat. minor
aftan til. Sárið var á stærð við mjó-
an blýant, en hersli í kringum það
á stærð við 5-eyring eða vel það!
Mjög erfitt var að koma saumum
þarna að, en við lokuðum sárinu á
sama hátt og lýst hefir verið hér
að framan. Kviðsárinu lokað á
venjulegan hátt. Sjúkl. heilsaðist
vel eítir aðgerðina. Saumar teknir
eftir 8 daga. Sárið greri pr. prim.
Eg held að þessi náungi hefði haft
gott af kosti Meulengraths. Hann
var ólmur í kjöt, en eg kvaldi hann
eftir kúnstarinnar reglum. A fimta
degi stalst hann i að eta reykta
pylsu, sem hann hafði flutt með sér
í land og félagi hans laumaði til
hans. Og taldi hann það sína lífs-
björg frá hungurkvölum, sem voru
aðalkvalirnar eftir aðgerðina. Hon-
um virtist ekkert verða meint af
þessu tiltæki; síður en svo.
Eg hefi hér getið þeirra tilfella,
sem til mín hafa leitað með sprung-
in sár og eg gert að. Þau hafa öll
komið á góðum tíma til aðgerðar.
nema það síðasta. Aðstaða i hér-
aðinu er góð, læknis vitjað fljótt.
Engin mistök mega eiga sér stað,