Læknablaðið - 01.03.1936, Blaðsíða 22
i6
LÆICNAB LAÐ IÐ
Smágreinar og athugasemdir.
Utanfarir héraðslækna. Ekki
veit ég betur en aÖ allir héraðs-
læknar, sem hafa fengið pláss í
Danmörku, hafi verið mjög á-
nægðir me'ð dvöl sina erlendis. Er
þetta lítill kafli úr bréfi:
Mér hefir liðið ágætlega. Yfir-
læknirinn er framúrskarandi vin-
gjarnlegur maður, tók mér af-
brigðavel og hefir látið sér mjög
ant um að ég hefði sem mest upp
úr dvölinni. Eg hefi tekið þátt í
öllum störfum sjúkrahússins frá
því ég kom og kynst sjúklingum
af öllu tagi og afdrifum þeirra. Ó-
skiftu sjúkrahúsin eru ákjósanleg-
ustu lærdómsstaðirnir fyrir ísl.
héraðslækna, því þar sér maður
margt, sem má notfæra sér heima
fyrir. Sjúkl. hverfa heldur ekki út
úr höndum rnanns til allskonar sér-
fræðinga.
Yfirlækninum stendur stuggur
af sérfræðingaöldinni, sem gengur
nú yfir, enda er hann óvenju al-
hliða læknir. Eg hefi haft mikið
gagn af veru minni og óska að
fleiri kollegar heima gætu notfært
sér þessi pláss.-----
Eg set þennan l)réfkafla til at-
hugunar fyrir ]iá héraðslækna, sem
ekki hafa notað þessi tækifæri til
framhaldsnáms. G. H.
F rétti r.
Dr. med. Halldór Hansen er ný-
lega farinn áleiðis til Englands.
Mun ætlun hans vera, að dvelja
þar og í Þýskalandi um tveggja
mánaða tíma.
Á St. Jóseps sjúkrahúsinu í
Reykjavík hefir Bjarni Jónsson
cand. med. verið ráðinn sem fast-
ur kandidat í 6 mán. Á Nýja klepp
Kristján Þorvarðarson cand. med.
Sömuleiðis í 6 mán.
Halldór Kristjánsson héraðs-
læknir frá Siglufirði hefir undan-
farna mán. dvalið í gistivist á
Landspítalanum.
Þ. 13. jan. s. 1. var haldinn
'fundur í L. R. að Nýja Kleppi.
Bjarni Jónsson cand. med. sýndi
litun á blóðpræparötum við mis-
munandi sýrugráðu. Talið æski-
legt, að íslenskir læknar kæmi sér
saman um ph. við litun. — Dr.
med. Helgi Tómasson flutti fróð-
legt og itarlegt erindi urn vinnu-
lækningar. JJtdráttur úr erindi
þessu birtist síðar í Morgunblað-
inu.
Þ. 11. febr. s. 1. var fundur L.
R. haldinn í Landspítalanum.
Guöm. K. Pétursson sýndi sjúkl-
ing með lymphogranulomatosis.
Próf. G. Thoroddsen flutti erindi
um Fæðingardeild spítalans. Mun
erindið verða birt hér í blaðinu.
Félagsprentsmiðjan.