Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.08.1936, Side 4

Læknablaðið - 01.08.1936, Side 4
LÆKNABLAÐIÐ 5C berklaveikinnar. Veikin getur verið mjög ágeng, þó hitamælirinn segi okkur ekkert um það. Blóðsökk og aðrar blóðrannsóknir geta oft gefið okkur góðar upplýsingar, en oft einnig óábyggilegar.. Við verðum að nota og samræma allar þær góðu klinisku aðferðir, sem við geta átt. Sem sagt, ef um fersk exsudativ tilfelli er að ræða, þar sem destruc- tio er yfirvofandi eða þegar byrj- uð, þá á að láta sjúklinginn liggja í rúminu til að byrja með. Á heilsu- hæli má vitanlega stundum láta hann liggja í leguskála allan dag- inn, en það verður að vera undir ströngu eftirliti. 1 ,,privat praxis“ tjáir lítið að segja honum, að hann geti verið á fótum, ef hann hreyfi sig sem minst. Það er viðbúið, að hann verði á stjái við og við, stund- um mikinn hluta dags. Sá læknir, sem gengur rikt eftir því, að sjúk- lingurinn liggi i rúminu á réttum tíma og nægilega lengi, gerir sjúk- lingnum meiri greiða, en hinn eftir- látssami ,,lyfjalæknir“. Þá kem eg að hinum sérstöku aðgerðum, sem beinast að sjálfri kavernunni. Til þess að hún geti læknast, verður hún að dragast sam- an, skorpna, verða að bandvefsöri. En á móti þessari læknandi retrac- tio spyrna öndunarhreyfingarnar. Þyndin togar í að neðan, og brjóst- veggur að öðru leyti við innönd- un. Tilgangur loftbrjóstsins er eig- inlega ekki sá, að þrýsta lunganu sem mest saman og þár með hol- unni, heldur að koma í veg fyrir ])etta sífelda innöndunartog, sem lætur holuna aldrei i friði og glenn- ir hana út. Það er því ekki um að gjöra, að loftið, sem inn er dælt, sé sem mest. Það er einatt nóg að minka neikvæði þrýstingsins í plevra-rúminu, svo að lungað verði viðskila við brjóstvegginn (ent- spannungs-pneumothorax). Það er ekki vandalaust, að halda loftbrjósti við. Loftið má hvorki vera of né van. Of mikið loft getur ýtt medi- astinum of mjög til hins betra lunga og mætt á því, og það getur þrýst hinum góða hluta lungans óþarflega mikið saman, en á hinn bóginn má loftið vitanlega ekki bverfa á milli blásninga, en það er þetta, sem við- vaningum mest hættir við, annað hvort að ot' langt er milli blásninga eða blásturinn hefir mishepnast á þann hátt, að loftið hefir farið inn i lungað. Reynslan sýnir, að þetta kemur ósjaldan fyrir. Fyrir utan þá hættu, sem stafar af loftemboli, þá geta slík mistök valdfð þvi, að loftmeðferðin fari út um þúfur, og ekki sé hægt að koma henni á stað aftur, vegna samvaxta. Það þarf mikla nákvæmni til þess að halda loftblástri vel við. Það getur verið skemtilegt, að skoða í Röntgen loftbrjóst, sem vel hefir tekist, sérstaklega hið svokall- aða „selectiv pneumoth“. Þá sést, að aðeins sá hluti lungans er fall- inn verulega saman, er sjúkur er, en hinn hlutinn lítið. Má þar sjá hina sterku retractio, þegar við- spyrnan er úr sögunni. Stór kav- erna getur verið nálega horfin eftir stuttan tíma, aðallega vegna þess, að hún er ekki lengur útþanin af lofti. Öðru vísi er farið tim „contra- selectiv pn.“ Þar er hlutfallið öf- ugt. Hinir ósjúku hlutar lungans láta aðallega undan loftinu, en hinn sjúki hluti er meira eða minna sam- vaxinn brjóstvegg eða svo fastur í sér og loftlaus, vegna samfeldrar bólgu (caseös pneumoni), að hann getur ekki dregist saman, þó laus sé frá brjóstvegg. Hann getur þá aðeins ýtst til í heild. Þessi contra- selectiv pn. getur því orðið til ó- gagns, með því að minka öndunar- flöt lungans, án þess að hafa til-

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.