Læknablaðið - 01.08.1936, Qupperneq 16
62
LÆKNABLAÐIÐ
fræði, sem eg hafÖi gleymt eða
aldrei kunnað.
Fæði og þjónustu hafði eg á spit-
alanum, og skal eg geta þess, að
eg varð að gæta mín, að hlaupa
eigi nteira i spik en orðið var.
Svona var nú ytri aðbúðin, en
sú andlega var eigi siðri. Allir lækn-
ar spitalans og starfsfólkið gjörðu
mér vistina ánægjulega og nota-
drjúga. Eg kendi mig eigi sem gest,
heldur heimamann frá þvi íyrsta,
til hins síðasta.
Upphaflega ætlaði eg aðeins að
dvelja io vikur, en 2svar frain-
lengdi eg vistina, y2 mánuð í hvert
sinn, og varð hún því 14 vikur i
alt. Þar af dvaldi eg 5 vikur á
lyfjadeildinni, 7 á handlækninga- og
fæðingardeildinni, 1 á Röntgen-
deild og 1 á Rannsóknarstofu Há-
skólans. Auk þess kom eg af og
til á húð- og kynsjúkdómadeildina.
A öllum deildum var mér prýðilega
tekið, eg fékk að gjöra ýmiskonar
rannsóknir og taka þátt í störfun-
um, t. d. aðstoða og óperera dálitið
á handlækningadeildinni.
Það má nú e. t. v. deila um,
hvort sé betra, að dvelja erlendis
á stórum sjúkrahúsum, eða jafn-
langan tíma í Gistivistinni, en eg
er í enguni vafa urn, hvort eg kysi
heldur. Menn sjá sjálfsagt fleiri
sjúklinga á stóru erlendu sjúkra-
húsunum, en þar með eru kostirn-
ir líka upptaldir. Það er miklu ó-
dýrara aö dvelja í „Vistinni“, og
hin medicinska manduction yrði
aldrei eins góð erlendis, síst ef um
skamma (2—4 mán.) dvöl væri að
ræða, og maður myndi kveinka sér
við að leita jafnmikilla upplýsinga
hjá framandi collegum.
Svona kemur þetta mál mér fyrir
sjónir, og eftir að hafa dvalið í
Gistivistinni þenna skamma tíma,
er eg ákveðinn að leita þangað, en
eigi til útlanda, næst þegar eg fer
til að hressa upp á læknisfræði mína.
Að eg meina það, sem eg segi, sést
á því, að eg hefi þegar sótt um
„Vistina“ eftir 2 ár, ef eg lifi, og
þá ætla eg að dvelja eins lengi og
eg fæ leyfi til.
Enda svo linur þessar með því,
að þakka öllum læknum Landsspít-
ans fyrir fræðsluna og velvildina
og ráðlegg collegum mínum „að
fara í Vistina“, ef þeir þurfa að
fræðast og hvíla sig, því að þar
fæst hvorttveggja — og góður fé-
lagsskapur að auki.
Siglufirði, 2. páskadag 1936.
II. Kristinsson.
Úr erlendum læknaritum.
Atvinnuleysi hjá læknum
er nú viða tilfinnanlegt, og er
sagt ljótt af því í Búdapest. Þar
hefir verið skipuð heil nefnd til
þess að hjálpa atvinnulausum kandi-
dötum, og eru flestir þeirra læknar.
Skýli hefir verið bygt fyrir 100
menn, og fá þeir þar fæði og hús-
næði. Ekki eru þar aðrir húsmun-
ir, auk rúma, en langt fjalaborð,
bekkir og nokkrir stólar. Föt eru
geymd í pokum, en bókahillur hafa
kandidatarnir sjálfir sett ofan rúm-
anna. Samlyndi er gott milli mann-
anna og jafnast talað um visindaleg
málefni. Þeir sjá sjálfir um alla