Læknablaðið - 01.08.1936, Qupperneq 18
64
LÆKNABLAÐIÐ
Arlegur námskostnaður var 2060
kr. að meðaltali hjá körlum, 1630
hjá konum.
Þau 14% læknastúdenta, sem
unnu fyrir sér, innheimtu að meðal-
tali 582 kr.
Tæpur þriðjungur (allra) stú-
denta skuldaði, og var skuldin að
meðaltali hjá körlum 3577 kr., en
konum 2474 kr.
Læknafjöldinn.
Eftir l’Europe medicale (15/3.
'36) er íhúatala á 1 læknir þessi:
1 Danmörku........ 1469
- Noregi......... 1866
- Svíþjóð ....... 2744
- Finnlandi ..... 1740
- Bretlandi........ 1308
- Þýskalandi ...... 1344
- Frakklandi ...... 1596
- Portúgal ........ 2333
á» Spáni ........... 1000
- Italíu .......... 1218
í Póllandi.......... 3322
- Austurríki....... 837
- Ungverjalandi .. 1290
- Júgóslaviu....... 3560
- Búlgaríu ........ 3059
- Allianiu ........ 3800
- Rússlandi (margir
lítt mentaðir) ... 2118
l’Europe med. hefir það takmark,
að tengja alla Norðurálfulækna
saman. Brotið er eins og á mjög
stóru dagblaði!
Fréttir.
Þ. 20. f. m. luku 7 kandidatar
prófi frá læknadeild Háskóla Is-
lands. Hlutu þeir allir 1. eink.
Baldur Johnsen 173% stig.
Brynjólfur Dagsson 178 st.
Kristbjörn Tryggvason 158^3 st.
Oddur Olafsson 180st.
Ölafur Jónsson 173J/3 st.
Pétur Magnússon 204% st.
Snorri Hallgrímsson 170% st.
Verkefni í skriflega prófinu
voru þessi: Lyflæknisfræði:
Langvinnar liöabólgur, lýsið ein-
kennum, flokkum, aögreiningu og
meðferö. Handlæknisfræ'öi:
Greining og meöferö á conmiotio
compressio og contusio cerebri,
sem orsakast hefir af slysi. R é 11-
arlæknisf ræöi: Kolsyrlings-
eitrun.
Aðalfundur L. I. var haldinn
dagana frá 3.—5. þessa mánaöar.
— A fundinum mættu þeir próf.
dr. med. C. Sonne og dr. med.
Skúli Guðjónsson. Fundargerð
birtist í næsta blaði.
Þ. 23. f. m. lést á lyflæknisdeild
Landspítalans Guöni Hjörleifsson
héraðsl. í Vík í Mýrdal. Verður
hans nánar getiö í næsta blaði.
Lárus Einarson læknir hefir
nýlega verið skipaður prófessor í
líffærafræði við hinn nýstofnaða
háskóla i Arósum á Jótlandi.
Dr. med. Helgi Tómasson er ný-
'kominn heim frá London. Var
honum boðið þangað á aðalfund
breska geðveikralæknafélagsins
(Royal Medico-Psychological Ass-
ociation) til þess að halda þar
fyrirlestur um therapi vid manio-
depressio psychosis. — Rockefell-
er-stofnunin hefir veitt dr. H. T.
11000 króna styrk til áhalda-
kaupa vegna rannsókna hans, svo
og boðist til þess að kosta sér-
mentun 1—2 manna í sambandi
við þær.
Steingrímur Matthíasson og
Pétur Jónsson eru nýlega famir
áleiðis til Danmerkur.
Yfirlæknisstaðan við Akureyr-
arspítala er augl. laus til umsókn-
ar til 15. ágúst.
Félagsprentsmiðjan.