Læknablaðið - 01.11.1938, Side 16
IIO
LÆKNAB LAÐ IÐ
er þaÖ Mantoux-prófið eitt, sem
leyfir nákvæma mælingu á þeim
verkandi tuberkulinskamti, þaS er
ennfremur eina tuberkulinprófið,
sem hefir ákveÖna diagnostiska
þýÖingu og þó þvi aðeins, aÖ stig-
iÖ sé upp í i mg. af standardtuber-
kulini, eÖa tilsvarandi skamt af
hreinsuðu tuberkulini (sjá síÖar).
Tilraunir um aÖ byrja Mantoux-
prófiÖ meÖ i/io mg. hafa reynst
varasámar, lymphangit, hitahækkun
(Groth-Petersen). Aftur á móti
hefir síÖustu árin tekist aÖ endur-
liæta Mantoux meÖ því aÖ nota svo
kallað hreinsaÖ tuberkulin, í Ame-
ríku P.P.D.-tuberkulinið (Purified
protein derivative — dýrt í notkun)
og seinna hið hreinsaða tuberkulin
Danska Seruminstitutsins, sem er
jafnsterkt og P.P.D.
1 juní- og júlí-hefti „Tubercle‘‘
1938, er birt ítarleg greinargerð
fyrir framleiðslu, standardiseringu
og kliniskri prófun hreinsaða tuber-
kulinsins. ÞaÖ yrði of langt mál og
óþarft að rekja allar þær vísinda-
legu Ijollaleggingar, sem tilheyra
undirliyggingu þess, um það vísast
til greinarinnar sjálfrar. Hér skal
aðeins minst á nokkur atriði, sem
snerta blöndun og notkun þessa nýja
tuberkulins.
SeruminstitutiÖ býr fyrst til
,,stofn“-upplausn (stock solution),
sem inniheldur 1 mg. af hreinsuðu
tuberkulini í 1. ccm. með pH 7,38
og 0,01% Chinosol, t. d. þannig
(Tubercle) : 20 mg. af tuberkulin-
dufti eru leyst upp í 12,8 ccm. af
sec. ])hosphat-upplausn (Sörensen,
m/15 Na^HPCAp 2H0O). Þegar
duftið er fulluppleyst er bætt við
3,2 ccm. af prim. phosphat-upp-
lausn (Sörensen, m/15 KH2P04),
þá er bætt við 4 ccm. af 2,4%
NaCl-upplausn með 0,05% chino-
sol. — Chinosol hefir reynst mun
betri desinficiens en phenol. — Úr
„stofn"-upplausninni eru svo bland-
aðar 2 blöndur (eða þrjár, sjá síð-
ar), sem innihalda 1/50.000 og
1/500. mg. af tuberkulininu í 0,1
ccm., en það eru þeir skamtar, sem
nota skal við tuberkulinprófin. —
Þynningarvökvinn er: 160 ccm.
m/15 KH2P04 — uppl. -(- 640
ccm. m/15 Na2HP04, 2H20 —
uppl. -þ 200 ccm. 2,4% NaCl-uppl.
í kolsýrulausu dest. vatni -f- 1 ccm.
1% chinosol. Þessar tuberkulin-
blöndur halda sér 1 mánuð me'Ö
fullum styrkleika, en þunnar blönd-
ur af Alt-tuberkulini (t. d. 1/100
mg. í 0,1 ccm.) í phenol-saltvatni
tapa sér strax og eru óöruggar i
notkun eftir viku (J. Holm). Hér
má skjóta því inn, svo að Alt-tub-
erkulini sé ekki gert rangt til, að
það heldur sér í 2 mánuði í chino-
sol-„buffer“-upplausn.
1/50000 mg. hreinsað tuberkulin
samsvarar 1/100 mg. Standard-Alt-
tubberkulin. 1/5000 mg. hreinsað
tuberkulin samsvarar 1/10 mg.
Standard-Alttuberkulin. 1/500 mg.
hreinsað tuberkulin samsvarar 1 mg.
Standard-Alttuberkulin o. s. frv,
Höfundar áðurnefndar greinar í
„Tubercle“ hafa nú reynt þetta tu-
berkulin víðsvegar í Danmörku, á
10.000 manns í alt og á þann hátt
að fyrst er gert Mantoux-próf með
1/50.000 mg.; ef það er ótvírætt
negativt eftir 72 tíma, er strax gef-
ið 1/500 mg., eða skamtur sam-
svarandi 1 mg. af Alt-tuberkulini
og hefir aldrei komið að sök, eng-
in reaktion með necrosu eða lymp-
hangit. Aftur á móti ef 1. reaktion-
in er vafasöm, er gefinn lítill part-
ur úr 0,1 ccm. af sterku blöndunni,
eða ca. 1/5000 mg. og er Jietta
nægileg nákvæmni, einkum við hóp-
rannsóknir. Þar sem af sérstökum
ástæðum má búast við sterkum re-
aktionum, t. d. vi'Ö „milieu“-rann-
sóknir eða eftir erythema nodosum,