Læknablaðið - 01.07.1940, Side 12
LÆKNABLAÐIÐ
80
seinni hluta sumars, síSast í júlí og
í ágústbyrjun, þegar C-fjörvi fæS-
unnar er upp á það besta. Samt
fann Holmberg 5 af hinum 11
hjúkrunarkonum ómettaðar. Þrjár
þeirra tókst að metta með því að
gefa þeim 2 appelsínur eða sítrón-
ur á clag í viku, en hjá tveimur
jókst ascorbinsýra þvagsins ekkert,
þrátt fyrir þessa gjöf.
Okkar rannsóknir voru gerðar
í desembermánuði, þegar C-forði
sumarsins er mikið farinn að minka,
en er þó ekki kominn eins langt nið-
ur og að vorinu til.
Þegar þessar rannsóknir eru
bornar saman við C-f jörvismæling-
ar í helstu matartegundum okkar,
mjólk og kartöflum, er auðsætt a'Ö
mjög er hætt við að almenningur
líði af C-fjörvisskorti, þegar líður
á veturinn og fram á vorið kemur,
þótt breytingarnar verði hjá fæst-
um svo miklar, að greinileg skyr-
bjúgseinkenni komi fram. Væri því
full ástæða til að gera það, sem
unt er, til að tryggja sem best
þennan þátt í fæðu landsmanna og
þá fyrst og fremst eftir því, sem
kostur er með innlendri fæðu,
Skarfakálið er C-fjörvisefnarík-
asta uppsprettan, sem enn hefír
fundist hér og þyrfti að gera til-
raunir til að matbúa það á hagan-
legan hátt og geyma yfir veturinn.
C-fjörvið geymist langbest í súrum
vökva og þolir illa súrefni (oxy-
gen). Við niðursuðu á kálmeti þarf
því að sjóða það í vacuum til að
verda C-fjörvið og er þegar farið
að gera töluvert að því erlendis.
Skarfakálið geymist vel súrsað í
mjólkursýru, og hefir það verið
notað þannig sumsstaðar á landinu,
t. d. i Grímsey, þar sem skyrlijú.?-
ur var mikil plága áður en mjólk
þektist þar.
English Summary.
In December 1937 titrations of
ascorbic acid with indophenol were
made on the urine of ten persons
of the laboratory staff (Depart-
ment of Pathology), each portion
of urine being titrated immediately
after being voided, the experiment
being conitnued for 24 h. The low-
est value found was 13,7 mg., the
highest 31 mg., average 23,4 mg.
excreted in 24 h. During the foll-
owing 8 days each person got two
oranges daily added to the diet and
the experiment was repeated. Only
one of the ten persons showed a
considerable rise in ascorbic excre-
tion, suggesting a state of unsatur-
ation in the others. The only per-
son who reported subjective benefit
from the C-vitamin addition was
the one vvith the lowest cevitamic
acid excretion.
Manifest scurvy is now rare in
Iceland, but the titrations suggest
that the population is living at the
lower limit which is required for
health,
Heimildarrit .
1. Bjreh, Harns & Ray, Bioch,
Journ. 27, 590 (1933)-
2. Göthlin, Uppsala Lákarefören,
Förhandl. 36, 75 (1930—31),
3. Toverud K., Norsk Mag, for
Lægev. 98, 441 (1937).
4. v. Euler & Malmberg, Svensk
Kemisk Tidskr. 47, 25 (1935).
5. v. Drigalski, Klin. Woch. 14,
338, 542 (1935).
6. Guldager & Poulsen, Hospi-
talstidende 78, 1029 (1935).
7. Youmans, Corlette, Akeroyd &
Frank, Am. J. Med. Sci. 191,
319 (1936).
8. Bashir Ahmed, Bioch. Journ.
30, 11 (1936).
9. Harris, Ray & Ward, ibid. 27,
2011 (1933)-
10. Holmberg, Nord. med. Tidskr.
11. 205 (1936).