Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.12.1944, Blaðsíða 17

Læknablaðið - 01.12.1944, Blaðsíða 17
LÆKNABLAÐIÐ 155 sem notaSar hafa verið, eru corp. cavernosa og sinus sagittaiis í'hörn). (JAMA 13/n '43). Þótt barnaveiki hafi veriö til- töluléga væg á síðustu áratugum, og Iítið um andarteppu-barnáveiki, þá hafa samt skæðir faraldrar gos- iö upp hingað og' þangað. Barna- veikisblóðvatn hefir þá lítil áhrif. Sýklaafbrigöin eru 3 eða fleiri og misjafnlega háskaleg. Þau hafa verið nefnd b. diptheritis mitis, internfédius og gravis. Það má greina jiessi afbrigði með dýra- tilraunum o. fl. — Vér getum iiú- izt við háskalegri barnaveiki er minnst varir og þurft mikið að halda á barkaskurði. Ischiás. Mér virðist það nokk- urum tíðindum sæta, að það skuli nú vera komiö upp úr kafinu aö flest. sem fyr \-ar kennt um ischias eöa settaugarverk, eðli sjúkdóms- ins og uppruna, skuli vera þvætt- ingur einn. Aður var talið að sjúk- dómurinn væri iiólga eða þroti í tauginni og hún átti aftur að stafa af gigt, ofkælingu og mörgu öðru. Meðferðin var alla jat’na rúmlega, nudd, rafmagn o. fl. þvíl. Þó var mönnum það ljóst, að röskun á hryggjarliðum við slys, útvextir á beinum, æxli o. fl., sem þrýsti á taugina eða rætur hennar, gat valdið settaugarverki, en mikið var ekki úr þessu gert og talið sjaldgæft. Nú virðist það véra sannað mál, að slíkur þrýstingur, af ýmsum ástæðum, er algengasta orsökin, sérstaklega tret'jabaugs- brestur, samíara útfalli þófa- kjarnans (nucl. pulp), svo að hann þrýstir á taugarætur. At’ þessu leiðir að Röntgenmyndir eru ómissandi við greiningu sjúk- dómsins. og að lækningin er inni- falin í því að taka burtu þá ásteit- ingarsteina, sem fundizt hafa og valda þrýstingi og þrautum. Er þetta allmikil aðgerð og ekki á annara færi en æfðra handlækna. Stundum gerist þess og þörf að spengja hryggjarliði saman. Með- an aðgerð er slegið á frest mun vera hyggilegast að leggja sjúkl. á gipsbeð eða gipsumbúðir. Sig- umbúðir (extensionsumb.) geta og komið að gagni. í The Lancet (22. jan. 44) er sagt frá 40 hermönnum með is- chias. Langílestir þeirra höfðu trefjabaugsbrest og stat’aði veikin af honum. Mörg missmíðin voru meðfædd. Þeir, sem hafa nokkura reynslu i þessu efni, ættu að gefa læknum frekari leiðbeiningar en hér er gert.*) Tóbak og svæfingahætta. H. J. A Morton, svafnir, rann- sakaði hve oft lungu tóbaksmanna sýktust við hulskurði, i samanburði við þá, sem notuðu litið tóbak eða ekkert. Þeir voru taldir tóbaksmenn, sem reyktu meira en 10 sigarettur á dag, eða annað tóbak sem því svaraði. Niðurstaðan varð sú, að sexfalt flciri tóbaksmenn sýktust í lungum eftir aðgerð. 1257 menn voru rann- sakaðir alls. Ráðlagt er að hætta reykingum eða minnka þær, nokkru áður en aðgerð fer fram, ef ]iess er kostur. (Lancet t8. marz '44). G. H. Lungnabólga eftir holskurði. Alan Shorter telur það mikla vörn gegn lungnab. að sjúkl. hósti sem liezt og hreyfi sig. Hvort- tveggja þolist, ef sjúkl. er kennt. að styðja vel við sárið og svæðið *) Ritstj. hefur farið þess á leit við Snorra Hallgrímsson, að hann riti grein í Lbl. um þetta efni.

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.