Læknablaðið - 15.03.1980, Page 17
LÆKNABLADID
49
niðurstaðna hverrar viku og s.d. er staðalfrá-
vik meðaltals hverrar viku), sýndi ekki árstíða-
bundnar breytingar á niðurstöðum.
Þrátt fyrir, að mælingar virtust stöðugar
innan hvers hóps, er hugsanlegt, að mælingar-
gildi hafi breyst frá byrjun rannsóknarinnar
1967 og til loka pess tímabils, sem hér um
ræðir, 1974.
Hópur 34 ára karla og kvenna komu til
skoðunar 1967-1969 og 1973-1974, og var pví
talið fróðlegt að bera saman niðurstöður
pessara hópa, sem ættu að vera allsambæri-
legir.
Meðalgildi fastandi blóðsykurs 34 ára karla
1968 (n = 140) var 81,1 ±8,1, mg/dl, en 77,6 ±
6,25 mg/dl, 1973-1974, (n = 90). Mismunurinn,
3,5 mg/dl var tölfræðilega marktækur (p<
0,05).
Hjá 34 ára konum var fastandi blóðsykur
75,8±7,0 mg/dl, 1969-1970, en 73,2±7,1 mg/dl
í hópnum 1973-1974. Mismunur var 2,6 mg/dl
og tölfræðilega marktækur (p < 0,05).
Meðalgildi 90 mín. blóðsykurs í sykurpoli 34
ára karla 1968 var 89,1 ±22 mg/dl, en 85,4 ±
19,9 mg/dl 1973-1974. Mismunurinn var 3,7
mg/dl og var ekki tölfræðilega marktækur.
Meðalgildi 34 ára kvenna 1969—1970 var
100,3 ±20,2 mg/dl, en 93,5 ±19,6 mg/dl árið
1973-1974. Mismunur var 6,8mg/dl og tölfræði-
lega marktækur (p <0,01).
Enda pótt ekki verði fullyrt, að pessir 34 ára
aldurshópar, sem mættu til skoðunar 1967-
1970 og 1973-1974, hafi að öllu leyti verið
sambærilegir, benda niðurstöðurnar pó til
pess, að mælingargildin hafi lækkað lítillega
frá upphafi rannsóknarinnar og til enda tíma-
bilsins. Munurinn er ekki stórvægilegur, en
gæti skýrt að nokkru pað hné, sem virðist á
flæðiriti yfir 90 mín. blóðsykur um 34 ára aldur
(mynd 3), og gæti gert tíðni skerts sykurpols
lítið eitt lægri meðal yngri aldurshópa en
hinna eldri, sem komu til rannsóknar í upphafi
tímabilsins.
Um tveggja ára tímabil (1972-1974) voru
sýni, sem send voru frá stýrirannsóknarstofu í
Atlanta, U.S.A. (W.H.O.) mæld reglulega. Mæl-
ingar sýndu, að »sanngildi« (accuracy) * og
nákvæmni (precision) voru góð yfir petta
tímabil.**
*The target value for each pool is the average of 90
determinations, 30 each by the Glucose Oxidase (somogyi
filtra'te) O-Toluidine (TCA- filtrate) and Nelson Somogyi
manual reference methods.
**Well within target values (±5%) of WHO glucose
standardisation program.
Tölfræði
Við tölfræðilegan samanburð var notað Stu-
dents t-test, nema annars sé getið, og p gildi <
0.05 talið marktækt.
NIÐURSTÖÐUR
Heimtur og svör við spurningum
/. Karlar34 — 61 árs (skodadir 1967—1968)
Fjöldi pátttakenda, sem mætti var 2.203 eða
um 75 % af peim sem boðaðir voru (2.955).
Mæting var svipuð hjá öllum aldurshópum, frá
69,6-77,3 % (3).
Alls svöruðu 21 karl játandi spurningunni,
hvort peir hefðu sykursýki nú eða áður. Þrír
voru á insulinsprautum og 7 tóku töflur við
sykursýki, 4 voru á sérfæði eingöngu, en sjö
minntust ekki á meðferð. Alls vissu 201 úr
pessum hópi um sykursýki í ætt sinni.
Fastandi blóðsykur var mældur hjá 2.173
körlum. Blóðsykurgildi vantar pví hjá 30
pátttakendum og er pað af ýmsum orsökum,
svo sem ónógu eða glötuðu sýni og fleira.
Enginn af pessum prjátíu svaraði játandi
spurningunni, hvort peir hefðu sykursýki.
Gert var sykurpol I meðal 2.157 pátttak-
enda eða um 73 % af upphaflegu pýði. Af
peim 46 pátttakendum, sem ekki fóru í syk-
urpol I, en mættu til skoðunar, var einn
sykursjúkur samkvæmt spurningalista.
Alls voru 294 karlar, sem höfðu blóðsykur-
gildi > 130 mg/dl i sykurpoli 1 (90 min). Af
peim voru ellefu sykursjúkir, á meðferð og pví
ekki boðaðir í sykurpol II, en taldir með
sykursjúkum, Hinir 283 voru boðaðir í endur-
tekið sykurpolspróf (sykurpol II). Af peim
mættu 194 eða 68,5 %.
2. Konur 34-61 árs (skodadar 1968-1969)
Alls mætti 2.341 kona til rannsóknarinnar af
3.093, sem boðaðar voru, eða um 76 % og var
mæting svipuð hjá öllum aldurshópum, 68,6 —
80,1 % (1). Tuttugu og fjórar konur svöruðu
spurningunni játandi, hvort pær hefðu sykur-
sýki nú eða áður. Af peim voru prjár á insulini,
átta voru á töflumeðferð, sjö voru á sérfæði
eingöngu, sex minntust ekki á meðferð. Alls
vissu 194 konur úr pessum hópi um sykursýki í
ættinni.
Fastandi blóðsykur var mældur hjá 2.336
konum og vantar pví hjá 5 peirra sem mættu.
Engin peirra hafði sykursýki, svo að vitað sé,
samkvæmt spurningarlista. Allar, nema 12
konur, fóru í sykurpol I og af peim var vitað,
að fjórar væru sykursjúkar.