Læknablaðið - 15.03.1980, Síða 21
LÆKNABLADID
51
hún hefði sykursýki. Alls vissu 39 konur úr
þessum hópi um sykursýki í ætt sinni.
Fastandi blóðsykur var mældur í 826 konum
(vantar hjá 2). Alls var sykurpolspróf I gert
824 konum. Af þeim höfðu 55 blóðsykurgildi
> 130 mg/dl eftir 90 mín. Tuttugu og níu þeirra
mættu svo í sykurþol II.
Niðurstöður fastandi blóðsykurmælinga
Mynd 1 sýnir dreifingu fastandi blóðsykurs
meðal karla og kvenna (allir árgangar teknir
saman). Dreifingin virðist vera samhverf (uni-
modal) með nálgun normaldreifingar eins og
sést af töflu I, þar sent meðaltal og miðgildi (50
th percentiles) eru svipuð. Breytistuðlar (coef-
ficient of variation, s.d./x) voru svipaðir fyrir
bæði kynin og voru á bilinu 0,09-0,22. Engin
glögg mörk eru því milli »eðlilegs« og »hækk-
aðs« fastandi blóðsykurs.
Tafla I sýnir meðaltöl blóðsykurs og nokkur
fraktíl (percentiles) fyrir einstaka aldurshópa.
I töflum I og II voru aldurshópar dregnir
saman í fimm ára aldursflokka, t.d. 20-24 ára,
25-29 ára o.s.frv. Vegna vals árganga hafna
mismargir þeirra í einstökum aldursflokkum.
Aldurshópar 34 og 37 ára komu til skoðunar
1967-1969, og þar sem þeir voru einu hóparnir
milli 30 og 40 ára í þeim hluta hóþskoðunarinn-
ar, eru þeir birtir sér. Karlar virðast hafa lítið
eitt hærri meðaltöl fastandi blóðsykurgilda en
konur í öllum aldurshópum (meðaltal 3,4
mg/dl), og sá munur er tölfræðilega mark-
tækur í öllum aldurshópum (p<0,05).
Fastandi blóðsykur virðist fara hækkandi
með aldri hjá báðum kynjum, hækkar að með-
altali hjá körlum um 3,5 mg/dl fyrir hvern
áratug og hjá konum 1,5 mg/dl. Alls höfðu 18
konur (flestar yfir fertugt), eða um 0,6 % af
öllum konum sem mættu, fastandi blóðsykur
>110 mg/dl og 65 karlar eða um 2,2 % karla,
sem mættu. Þrettán konur eða um 0,4 % höfðu
blóðsykur > 120 mg/dl og þrjátíu og einn karl
eða um 1,1 %.
Niðurstöður sykurþolsprófs I (90 mín.
blóðsykur)
Mynd 2 sýnir dreifingu blóðsykurgilda 90 mín.
eftir inntöku 50 g af glúkosa hjá körlunt og
konum (allir árgangar teknir saman). Dreifing-
in er með einum hrygg (samhverf, unimodal)
Table II. Mean and some percentiles of 1 V2 hr blood glucose after a 50 gm oral c/ucose load.
M F M F 20th 50th 80th 95th
Age n n ±s.d. ±s.d. M F M F M F M F
20-24 257 311 85.2 ±18.9 93.5 ±19.2 68 77 84 91 100 108 122 130
25-29 266 279 86.2 ±20.5 92.7 ±18.3 69 80 84 91 103 105 126 126
30-34 202 234 86.4 ±19.1 94.4 ±19.8 70 80 85 92 103 107 123 134
34 138 158 89.1 ±22.0 100.3 ±20.2 70 83 87 99 109 116 132 137
37 147 169 91.9 ±25.2 104.1 ±21.4 70 86 89 102 111 123 137 145
40-44 484 491 95.9 ±29.2 107.5 ±25.1 73 87 93 105 116 127 145 149
45-49 618 600 99.6 ±31.2 107.7 ±28.7 73 85 96 104 123 128 156 157
50-54 484 552 104.2 ±37.0 109.1 ±28.9 77 86 100 105 123 131 176 164
55-59 202 255 106.7 ±42.4 1 14.6 ±33.3 74 87 100 109 128 142 196 169
61 84 104 113.7 112.6 84 88 104 110 134 135 201 177