Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1982, Side 4

Læknablaðið - 15.09.1982, Side 4
196 LÆK.NABLAÐIÐ t Minning BERGSVEINN ÓLAFSSON læknir f.25.8.1901, d.27.12.1981 Bergsveinn Ólafsson læknir er lést í desember sl. var kjörinn heiðursfélagi Læknafélags Reyk- javíkur 1976. Hann var mjög virkur í félags- störfum lækna og voru honum falin fjölmörg trúnaðarstörf. Voru pau m.a.: í stjórn L.R. 1937-1944, formaður 1953-1959, í stjórn Elli- og örorkutryggingasjóðs lækna frá stofnun 1945, í stjórn Styrktarsjóðs ekkna og munað- arlausra barna íslenskra lækna 1944-1976. Þá sat hann í mörg ár í stjórn Domus Medica og gegndi m.a. starfi formanns. Til að heiðra minningu Bergsveinns Ólafs- sonar fékk Læknablaðið leyfi dr. Bjarna Jóns- sonar á birtingu minningargreinar hans er hann reit í Morgunblaðið 7. janúar sl.: Bergsveinn læknir Ólafsson er genginn til feðra sinna. Þar er á bak að sjá gagnmerkum manni. Hann var búinn mörgum kostum og góðum, svo jaðraði við ofrausn hjá skapara hans að Iáta þá alla í té einum manni. Bergsveinn var upprunninn í Breiðafirði, kominn af dugnaðarfólki og hagleiksmönnum, var sjálfur hagur og lagvirkur og hefir sá eiginleiki gengið í erfðir hjá peim ættmönnum. Hann varð stúdent frá Reykjavíkurskóla 1925 og lauk prófi frá læknadeild Háskólans 1931, lagði þá stund á framhaldsnám í augn- lækningum á Þýskalandi og var viðurkenndur sérfræðingur í peirri grein 1936. Eftir pað starfaði hann í Reykjavík og stundaði sjúk- linga sína í Landakotsspítala. Þegar sérstök augndeild var sett á stofn við spítalann var hann skipaður yfirlæknir hennar og gegndi pví starfi par til hann hafði náð sjötugsaldri. Hann kvæntist Elínu Jóhannesdóttur bæjar- fógeta Jóhannessonar árið 1932. Bergsveinn Ólafsson var hamingjumaður. Hann fékkst við starf, sem gerði til hans miklar kröfur bæði til líkama og sálar og hann fann lífsfyllingu í pví að kljást við vandamálin. Hann fékk glæsi- legrar konu og eignaðist myndarleg börn. Hann var afkastamikill eins og hann átti kyn til, en sýndist ætíð fara sér hægt. Honum fannst lítið til um bægslagang og brosti góðlátlega að peim háttum. Hann var prúður maður og svo eðliskurteis, að jafnvel pegar hann purfti að vanda um við menn, tóku peir pví vel. Og aldrei var orðinu hærra. Það var með ólíkindum hverju hann kom í verk, að pví er virtist fyrirhafnarlaust, og allt leyst af hendi með snyrtimennsku, sem var fágæt. Bergsveinn var félagslyndur maður, tillögu- góður, ráðhollur og traustur. Það ræður pá að líkum að honum voru falin verk, sem vand- unnin voru, hvar í hópi sem hann var. Fyrir læknasamtökin gegndi hann mörgum trún- aðarstörfum, sumum í áratugi, m.a. sat hann í stjórn Læknafélags Reykjavíkur í fjórtán ár, par af formaður í sjö. Hann var kjörinn heiðursfélagi Læknafélags Reykjavikur. Bergsveinn Ólafsson var jafngeðja, ætíð hýr á brá og brosmildur en aldrei ofsakátur, hann hló oft, en hláturinn var hljóðlátur og inni- legur. Ég hafði kynni af honum í hálfa öld og síðustu fjörtíu árin hittumst við oft daglega. Einu sinni skifti hann skapi. Ungur maður fór rangt með staðreyndir á mannfundi og vissi pó betur. Þá spratt formaðurinn upp með roða- bletti í kinnum og augun, sem ætíð voru mild, skutu gneistum. Aðeins petta eina sinn sá ég hann reiðast á hálfri öld. Hann var heiðarlegur maður; ég held að hann hefði aldrei, hvernig sem á hefði staðið, getað gengið á svig við réttlæti og sannleika. Hefði einhverntíma risið misklíð okkar á milli, hefði ég selt honum sjálfdæmi. Ég man ekki eftir öðrum, sem ég tryði fyrir pví. Það ber ekki að harma, að gamall maður deyr. Það er lögmál lífsins, pað eina sem við eigum víst. En pað er saknaðarefni að kveðja suma samferðamenn. Bergsveinn fékk gott andlát, hann átti pað skilið. Skapari hans, sem hafði verið svo örlátur við hann á vöggugjafir, gleymdi honum heldur ekki að lokum. Hann hneig fram á skrifborðið sitt og var örendur. Bjarni Jónsson

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.