Læknablaðið - 15.09.1982, Qupperneq 10
200
LÆKNABLADID
bilið 1975-1979. Fyrstu tvö fimm ára tímabilin
voru konur greinilega fleiri en karlar, tvö
miðtímabilin var hlutfallið milli karla og
kvenna nálægt einum, en síðustu tvö fimm
ára tímabilin voru karlar mun fleiri en konur
og hlutfallið milli karla og kvenna síðustu
fimm árin komið upp í 1.6.
Á töflu V sést meðalalgengi sjúkdómsins á
ári á fimm ára millibili. Algengi er í lok árs
1950 8.4 á 100.000 íbúa, en komið upp 122.2 á
100.000 íbúa í lok árs 1979. Tafla VI sýnir alla
pá, sem létust fyrir 1. janúar 1980, alls 40, 23
karlar og 17 konur. Átján (45%) létust af
Table V. Ulcerative colitis in lceland 1950-1979.
Average prevalence per 100.000 population per
year.
End of each year Total Men Women
1950 .................... 8.4 8.4 8.4
1954 ................... 15.5 12.8 18.2
1959 ................... 30.7 24.1 36.3
1964 ................... 48.2 44.0 52.7
1969 ................... 62.6 61.4 63.8
1974 ................... 80.3 80.9 79.8
1979 .................. 122.2 134.4 109.9
Table VI. Ulcerative colitis in lceland 1950-1979. 40
patients who died before 1.1.1980.
Year Total Men Women
1950-1954.............. 2 1 1
1955-1959.............. 2 2 0
1960-1964 ............. 4 1 3
1965-1969.............. 10 4 6
1970-1974.............. 9 7 2
1975-1979 ............. 13 8 5
Total 40 23 17
orsökum tengdum sjúkdómum, en 22 (55 %)
létust af öðrum orsökum.
UMRÆÐA
Nokkrar rannsóknir á nýgengi og algengi
blæðandi ristilbólgu í ýmsum löndum hafa
birst frá mismunandi tímabilum seinustu ára-
tugi, tafla VII. Þar kemur fram heildartíðni
sjúkdómsins án tillits til útbreiðslu við grein-
ingu. Lægst er nýgengið í Noregi á tímabilinu
1956 til 1960, 2.3 á 100.000 á ári, en fer upp í 3.3
á 100.000 árin 1964 til 1969. Hæst er nýgengið
í Aberdeen, 11.3 á 100.000 á árunum 1967 til
1976 og næsthæst í Kaupmannahöfn, 7.3 á
100.000 árin 1961 til 1966. Taflan sýnir einnig
mismunandi algengi, allt frá rúmlega 37 á
100.000 á ári í ísrael upp í tæplega 80 á
100.000. íbúa í Englandi árið 1951 til 1960 (2, 3,
4, 5, 6, 7, 8, 9).
Líklegt er, að þessar tölur vanmeti tíðni
blæðandi ristilbólgu vegna þess að væg ein-
kenni eru tíð (10). Lítið veikir sjúklingar eru
sjaldnast innlagðir og leit að utan spítala
sjúklingum er yfirleitt erfiðleikum bundin og
ónákvæm (10). í Nottingham er aðeins rúm-
lega helmingur sjúklinga með blæðandi ristil-
bólgu lagður á sjúkrahús (10).
Flestar ofangreindar rannsóknir sýna frem-
ur stöðugt nýgengi frá einum áratug til annars.
í rannsókn frá Aberdeen, sem einnig sýnir
hæsta nýgengið, er þó um vaxandi nýgengi á
rannsóknartímabilinu að ræða, hæst síðustu
árin (2).
Flestar rannsóknirnar, nema frá Aberdeen,
sýna heldur fleiri konur en karla, hlutfallið
milli karla og kvenna er þó víðast nálægt
einum, tafla VII. Okkar rannsókn sýnir, að
fyrsta áratuginn voru konur lítið eitt fleiri en
Tabel VII. Ulcerative colitis: Average incidence andprevalence rates per 100.000 population.
Place Years Incidence Total Men Women Ratio Prevalence
Scotland, Aberdeen (2) 1967-1976 11.3 1:0.87
England, Oxford (3) 1951-1960 6.5 5.8 7.3 1:1.3 79.9
Norway (4) 1956-1960 2.3 2.0 2.1 1:1.1
Denmark, Copenhagen (5) 1961-1966 7.3 6.7 7.6 1:1.1 44.1
Malmö, Sweden (6) 1958-1973 6.4
USA, Baltimore (7) 1960-1963 4.6 3.9 5.2 1:1.3 42.0
Israel, Tel Aviv (8) 1961-1970 3.6 37.4
New Zealand, Wellington (whites) (9) .. 1954-1958 5.6 41.3
1950-1959 2.8 2.0 3.4 1:1.73 30.20(1959)
Present study . 1960-1969 4.7 4.9 4.5 1:0.92 62.6(1969)
1970-1979 7.4 9.4 6.2 1:0.66 122.2(1979)