Læknablaðið - 15.09.1982, Page 17
LÆKNABLAÐID
203
Birger R. Moller1), Sigurður B. Porsteinsson2), Hannes Þórarinsson3), Arinbjörn
Kolbeinsson4)
CHLAMYDIA TRACHOMATIS
Einkenni chlamydiasýkinga hjá mönnum
INNGANGUR
Rannsóknir á síðustu árum hafa sýnt að
Chlamydia trachomatis er algengasta orsök
kynsjúkdóma á Norðurlöndum (1).
C. trachomatis ræktast oftast frá þvagrás
hjá körlum og frá leghálsi hjá konum. Örveran
getur þó borist frá neðri kynfærum og valdið
epididymitis hjá körlum og endometritis og
salpingitis hjá konum. Börn geta einnig smit-
ast í fæðingu og fengið chlamydiasýkingar í
augu og öndunarvegi.
C. trachomatis virðist einnig geta sýkt
önnur líffæri og valdið t.d. perihepatitis, en-
cephalitis, meningitis og pericarditis. Einnig
eru ákveðin tengsl við mb. Reiter. Þykir pví
full ástæða til að beina athygli lækna að C.
trachomatis sem orsök smitsjúkdóma og mun
hér á eftir verða fjallað í stuttu máli um helstu
sjúkdóma sem vitað er að hún veldur.
Chlamydiasýkingar hjá körlum
Pvagrásarbólga: Skilmerki fyrir greiningunni
þvagrásarbólga hafa verið breytileg, en flestir
hallast að pví að til greiningar purfi a.m.k. tvö
af eftirtöldum premur atriðum:
1. Sviði við pvaglát (dysuria).
2. Útferð frá pvagrás.
3. Aukinn fjöldi hvítra blóðkorna í stroki frá
þvagrás, þ.e.a.s. fleiri en fjögur hvít blóð-
korn í hverju sjónsviði (x 1000) (2).
Þvagrásarbólgu má skipta í gónokokka ureth-
ritis, post-gónokokka urethritis (PGU) og
non-gónokokka urethritis (NGU).
Post-gónokokka pvagrásarbólga einkennist
af viðvarandi einkennum eftir viðeigandi með-
ferð staðfestrar lekandasýkingar. Non-góno-
kokka þvagrásarbólga er skilgreind sem pvag-
rásarbólga hjá sjúklingi með neikvæða lek-
andaræktun frá pvagrás.
') Gynækologisk/obstetrisk afdeling, Árhus kommuneho*
spital, Danmark. 2) Lyfjadeild Landspítala og Borgarspítala
3) Húd- og kynsjúkdómadeild Heilsuverndarstöðvar
Reykjavíkur. *) Rannsóknastofa Háskólans í sýklafræði.
Barst 20/03/82. Sampykkt og send í prentsmiðju 21/04/82.
C. trachomatis má oft rækta frá öllum
þremur tegundum pvagrásarbólgu. Tíðnin er
mismunandi í hinum ýmsu rannsóknum og
virðist breytileg eftir landsvæðum og hvaða
greiningarskilmerki eru notuð. Við non-góno-
kokka þvagrásarbólgu er ræktunartíðnin fyrir
C. trachomatis kringum 40-50 %. Rétt er að
benda á að býsna algengt er að sjúklingar hafi
samtímis sýkingar af völdum N. gonorrhoea,
hjá körlum oft í kringum 20 %. Á kynsjúk-
dómadeildum í Svípjóð hafa undanfarin ár um
pað bil 10-20 % karla haft lekanda þvagrásar-
bólgu og kringum 40 % þvagrásarbólgu af
völdum C. trachomatis. Þessar tölur benda til
að C. trachomatis sé sýnu algengari orsök
kynsjúkdóma hjá körlum en Neisseria gonorr-
hoea. Vel er pekkt að C. trachomatis getur
ræktast frá einkennalausum einstaklingum, í
sumum rannsóknum í allt að 5-10 % tilvika, en
þar er um að ræða einstaklinga, sem leita til
kynsjúkdómadeilda til útilokunar kynsjúk-
dóma.
í frumrannsókn gerðri á kynsjúkdómadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar í Reykjavík hjá
körlum með þvagrásarbólgueinkenni fundust
sex chlamydia-jákvæðir karlar af 24, sem
rannsakaðir voru. Þessi litla rannsókn, sem er
sú fyrsta gerð á íslandi, virðist benda til að C.
trachomatis sé álíka algeng hérlendis og í
öðrum nágrannalöndum. Unnið er að frekari
rannsóknum á pessu sviði.
Ræktun frá pvagrás er eina örugga aðferðin
til að sanna að C. trachomatis sé orsök
þvagrásarbólgu (mynd 1). Sé ekki hægt að
gera slíka ræktun geta sjúkdómseinkenni ver-
ið hjálpleg til greiningar. Meðgöngutími lek-
andasýkingar er venjulega tveir til fimm dag-
ar, en fyrir chlamydia 10-14 dagar. Þar sem
sjúklingar eru oft smitaðir bæði af gónokokk-
um og C. trachomatis er ekki óalgengt að
sjúklingurinn fái fyrst lekandaeinkenni, sem
leiða til viðeigandi meðferðar með t.d. penicil-
lini. Nokkrum dögum síðar versna pvagrásar-
bólgueinkennin á ný og nú ástæðan C. tracho-
matis. Rannsóknir benda til, að lekandasýk-