Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1982, Síða 20

Læknablaðið - 15.09.1982, Síða 20
206 LÆKNABLADID rannsóknir, sem styðja að svo sé. Er fullyrt að chlamydia trachomatis sé algengari orsök ófrjósemi en lekandi í dag. Chlamydia salpin- gitis sést oftast hjá yngri aldurshópum. Klinisk einkenni geta verið mjög væg og lýst hefur verið algjörlega lokuðum tubae án pess að sjúklingurinn hafi nokkurn tíma haft einkenni um salpingitis (12). Chlamydiasýking ungbarna í fæðingu geta börn sýkst af C. trachomatis hafi móðirin chlamydiur í leghálsi (13, 14, 15). Chlamydia leggst helst á conjunctivae og nefkok hjá ungbörnum. Sjúkdómar, sem C. trachomatis veldur hjá pessum aldursflokki er conjunctivitis og lungnabólga. Opthalmia neonatorum: Rannsóknir benda til að um 20 % barna, sem fæðast af mæðrum, sem hafa chlamydiur í leghálsi, fái conjunctivi- tis. Þetta svarar til að um 2 % af öllum nýfæddum fái pessa sýkingu. Meðgöngutími sýkingarinnar er 7-30 dagar. Einkenni eru roði á conjunctivae, ljósfælni og aukið táraflæði. Algengast er að sýkingin sé aðeins í öðru auganu. Silfurnítrat hefur engin örugg áhrif á chlamydiasýkinguna. Chloramphenicol augn- dropar hafa einnig fremur léleg áhrif. Börnin á að meðhöndla með erythromycini um munn. Lungnabóiga: Fimm prósent barna, sem fæðast af mæðrum með chlamydiur í leghálsi fá lungnabólgu eða um pað bil 1/2 % allra nýfæddra. Einkenni byrja venjulega frá tveim- ur vikum til tveimur mánuðum eftir fæðingu, í upphafi með hósta og nefrennsli. Seinna verð- ur hóstinn meiri og getur líkst kíghósta. Barnið fær háan hita og getur orðið meðtekið. Einstaka dauðsföllum hefur verið lýst. Kjör- meðferð er erythromycin. C. trachomatis sýkingar utan kynfæra C. trachomatis hefur verið tengd ýmsum sýkingum utan kynfæra eins og perihepatitis, encephalitis og proctitis. Oftast hefur verið um einstök tilfelli að ræða. Perihepatitis er hin eina chlamydiasýking utan kynfæra, sem hefur verið rannsökuð og pað aðeins mjög takmark- að. Perihepatitis: Skömmu eftir 1930 var Fitz- Hugh-Curtis syndrominu lýst. Það einkenndist af verkjum í hægri rifjaboga ásamt samvöxt- um við yfirborð lifrarinnar og petta var í tengslum við kynfærasýkingu. Syndromið var tengt gonorrhoea salpingitis, en seinni rann- sóknir benda til að C. trachomatis sé sýnu algengari orsök. Við kviðarholsspeglun sjást slímkenndir præðir yfir lifraryfirborðinu og auk pess práðlaga samvextir (fiðlustrengir). Hægt er að sýna fram á petta í 5-28 % af konum með salpingitis sannaðan við laparo- scopiu. Rannsóknir frá Skandinavíu benda til að C. trachomatis valdi salpingitis og hugsan- lega perihepatitis í allt að helmingi af heildar- tilfellum (16). Hugsanlegt er að útskýra penn- an gang með útbreiðslu eftir lymfuæðum og bláæðum frá kynfærum til lifraryfirborðsins. Enn hefur pó ekki tekist að rækta C. tracho- matis frá lifur eða umhverfi hennar frá sjúk- lingum með petta syndróm. Meðferð á C. trachomatis sýkingum Bæði erythromycin og tetracyclin hafa reynst áhrifarík í meðferð chlamydia sýkinga. Hefð- bundin meðferð einfaldra sýkinga (pvagrásar- bólga, leghálsbólga) er erythromycin 500 mg x 2 í 10 daga eða tetracyclin 500 mg x 2 í 10 daga. Við alvarlegri sýkingar (salpingitis, endo- metritis og epididymitis) er mælt með að nota erythromycin eða tetracyclin í sömu skömmt- um í a.m.k. tvær og jafnvel prjár vikur. Meðferðartíminn fer nokkuð eftir svörun sjuk- lingsins við meðferð. Sýkingar nýfæddra er rétt að meðhöndla með erythromycin mixtúru, 40 mg/kg/dag í a.m.k. 10 daga. HEIMILDIR 1. Márdh P-A, Moller BR, Paavonen J. Chlamydial infection of the female genital tract with emp- hasis on pelvic inflammatory disease. A review of Scandinavian studies. Sex Transm Dis 1981; 8: 140-55. 2. Bowie WR, Alexander ER, Holmes KK. Etiolo- gy of post-gonococcal urethritis in homosexual and heterosexual men; roles of Chlamydia trachomatis and ureaplasma urealyticum. Sex Transm Dis 1978; 5: (4) 151-4. 3. Ripa KT, Márdh P-A, Thelin I. Chlamydia trachomatis urethritis in men attending a vene- real disease clinic; a culture and therapeutic study. Acta Derm Venerol 1978; 58: 175-9. 4. Berger RE, Alexander ER, Monda GD, Ansell J, McCormack G, Holmes KK. Chlamydia tracho- matis as a cause of acute »idiopathic« epididy- mitis. N Engl J Med 1978; 298: 301-4. 5. Moller BR, Márdh P-A. Experimental epididy- mitis and urethritis in grivet monkeys provoked by Chlamydia trachomatis. Fertil Steril 1980; 34: 275-9. 6. Paavonen J, Purola E. Cytologic findings in cervical chlamydial infection. Med Biol 1980; 58: 174-8.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.