Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 15.09.1982, Side 26

Læknablaðið - 15.09.1982, Side 26
212 LÆKNABLADIÐ um tækjaval og uppsetningu og ekki sízt við rekstur og myndgreiningu. Á íslandi er mjög auðvelt að koma öllum pessum atriðum við og hefur einnig komið í ljós að slík ráðgjöf er mjög víða nýtt hvað varðar klinisku vinnuna (3). Nú er ekki ólíklegt, að á næstunni purfi að taka ákvarðanir um nýkaup og endurnýjanir röntgentækja á einhverjum heilsugæslustöðv- um og af peim sökum er hér og nú vakin athygli á frumkvæði og ábendingum Alpjóða heilbrigðismálastofnunarinnar varðandi »rönt- gentækjabúnað fyrir almennar aðstæður« BRS - WHO. TILVITNANIR 1. Ásmundur Brekkan: Needs of X-ray services at primary health care level. Nord. Medicin, 1981; 96: 204. 2. Cockshott, W.P.: Geography of Diagnostic Radi- ology, Am. J. Radiol, 1979; 132: 339. 3. Ásmundur Brekkan: Röntgenrannsóknir á íslandi á áttunda áratugnum, Læknablaðið, 1981; 8: 208. 4. Guðmundur Sigurðsson: Egilsstaðir-projektet. NOMESKO-rapport. Stockholm 1980. 5. Holm, Thure: X-ray Equipment for a Basic Radiographic System. Proc. III Isprad-Conferen- ce, Amsterdam, 1980; p. 277. 6. Holm, Thure: Experiences with BRS-WHO: Pa- per. XV. Int. Congr. Radiol., Brussels, June, 1981. SYSTIR GABRIELLA Þess var minnst 19. marz 1982, að hálf öld var liðin frá pví systir Gabriella vann regluheit sitt. Á pessum tímamótum færðu læknar Sankti Jósefsspítala í Landakoti henni gjöf í virðing- ar- og pakklætisskyni, en systir Gabriella hefir starfað í sjúkrahúsinu samfleytt í fjörutíu og fimm ár. Við petta tækifæri flutti dr. Bjarni Jónsson henni kveðju læknanna og mæltist honum á pessa leið: Kynni okkar systur Gabriellu losa nú fjöruttíu ár. Á peim tíma hefi ég tvisvar verið fjarvist- um nokkura hríð, en að pví frátöldu höfum við haft meira og minna saman að sælda flesta daga og raunar æði margar nætur líka. Ég man okkar fyrsta fund, hún man hann líka. Ég kom heim í porrabyrjun 1941, en hún hafði komið út hingað ári eftir að ég fór utan til framhaldsnáms. Eitt af pví fyrsta, sem ég gerði eftir að hafa stigið fæti á land, var að heimsækja Landakot. Læknaherbergi var í gamla spítalanum, sem nú er horfinn og skáhallt á móti pví var lítið herbergi fyrir sótthreinsun. Við opnar dyr á litla herberginu stóð ung systir, lítil og grönn. Ég spurði hvort »Tante Braun« (kaffikanna lækna, innsk. ritstj.) væri komin og gekk að læknaherberginu, en hún snaraðist á eftir og ætlaði að koma mér í skilning um að utansveit- armenn ættu ekkert erindi pangað. Henni var vorkunn. Á leiðinni heim hafði ég safnað alskeggi og var sjaldgæft pá. Tveir menn skörtuðu slíkri andlitsprýði í Reykjavík, Matt- hías Einarsson og Oddur sterki. Hefir henni væntanlega fundist ég bera meiri svip af Oddi en Matthíasi.

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.