Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 45

Læknablaðið - 15.09.1982, Blaðsíða 45
LÆKNABLAÐIÐ 223 Athyglisverð eru klínisk sérkenni þeirra tíu sjúklinga er voru án sjónuskemmda eftir 20 ára sjúkdómstíma og lengur. Pessir sjúklingar notuðu marktækt minna insúlín daglega að meðaltali en sykursjúkir með sjónuskemmdir eftir sambærilegan sjúkdómstíma. Þetta bend- ir til pess að þessir tíu sjúklingar hafi enn nokkra eigin insúlínframleiðslu; séu því með minni beta-frumu skemmdir, er myndi leiða til betri blóðsykurstjórnunnar og því draga úr líkum á sjónuskemmdum. Er þetta sambæri- legt við niðurstöður annarra (12, 13). Þannig hafa sykursjúkir með óstöðuga blóðsykur- stjórnun minni C-peptíðsvörun við glucagon- örvun en þeir er hafa stöðugri og betri blóð- sykurstjórnun (14). Ef insúlínháð sykursýki er greind á byrjunarstigi, áður en slæm röskun hefur orðið á sykurbúskap, getur góð blóðsyk- urstjórnun frá upphafi meðferðar hugsanlega að nokkru stuðlað að verndun beta-frumna og einhverri eigin insúlínframleiðslu sjúklingsins lengur en ella (15, 16). Það er ennfremur eftirtektarvert að sjö af þessum tíu sjúklingum voru konur er greindust með sykursýki um og eftir þrítugt. Sykursýki af »sjálfsónæmistoga« (autoimmune type) er algengari hjá konum og er síðkomnari en hin klassíska »juvenile« gerð (17). Þannig reyndust fjórir þessara sjúklinga vera með annan stað- festan/grunaðan sjálfsónæmissjúkdóm og einn sjúklingur að auki systkinabarn eins þessara. Hvort sjúklingar með sykursýki af sjálfsó- næmistoga fái fremur sjónuskemmdir og/eða nýrnaskemmdir hefur bæði verið haldið fram (18) og hafnað (19). Hérlend rannsókn á insúlínháðum sykursjúkum með skjaldkirtils- sjúkdóma fann ekki aukna tíðni augn- eða nýrnafylgikvilla hjá þeim sjúklingum og þeir notuðu að jafnaði minni en meðal insúlín- skammta daglega (20). Madsbad og félagar (21) hafa komist að raun um að nokkur eigin insúlínframleiðsla sé algengari hjá IHSS (teg. 1) er greinast 30 ára og eldri, en fundu ekki að slíkt einkenndi fremur sjúklinga er höfðu annan sjálfsónæmissjúkdóm samtímis né að fylgni væri við eyjavefsmótefni (islet-cell anti- bodies, ICA). Algengi einhverrar eigin insúlín- framleiðslu hjá IHSS minnkar með lengd sjúkdómstímans; er um 100-75 % fyrstu 2-5 sjúkdómsárin og minnkar í um 15 % hjá öllum IHSS eftir 15-35 ára sjúkdómstíma, en helst að jafnaði lengur hjá þeim sem eru eldri við sjúkdómsgreiningu (14, 22). Reglulegt eftirlit og góð blóðsykurstjórnun eru því mikilvægar forvarnaraðgerðir gegn langtímafylgikvillum hjá sykursjúkum. Þýðing- armikið er að vinna að verndun beta-frumna og þróa nýjar aðferðir er hugsanlega gætu stuðlað að slíku, t.d. blóðvökvaskilun (plasma- pheresis) (23) og jafnvel ónæmisbælun (immu- nesuppression) (24). Þakkir: Rannsókn pessi var styrkt af Vísindasjóði Land- spítalans og Rannsóknarstofu Háskólans við Barónstíg. Rósa Steingrímsdóttir aðstoðaði við vélritun handrits. SUMMARY The present study analyses various factors that may relate to metabolic control in Type 1 (insulin- dependent) diabetics in Iceland, such as mean capillary blood sugar values, frequency of visits to a specialized diabetic clinic, per cent body weight of ideal weight and mean daily insulin dosage and their possible influence on the development of retinopa- thy. Age at diagnosis of diabetes was also conside- red. In a previous paper (1) the prevalence of retinopathy, assessed by standard fundus photo- graphy, was reported in 212 (78 %) of all Type 1 (insulin- dependent) diabetics in lceland. The pre- sent study consists of 149 of these same patients; those with duration of diabetes for 5-9 years (48 pts.), 10-19 years (58 pts.) and 20 or more years (43 pts.) Patients with diabetes for 0-4 years (63 pts.) were omitted as retinopathy was exceptional until after 6 years. Patients in the duration groups were again divided into those with and without retinopa- thy and the factors studied compared in these groups in the year period prior to fundus photo- graphy. In the 5-9 years duration group retinopathy was first seen after 7.7 ±0.3 years (mean±S.E.M.) and patients with retinopathy were significantly older at diagnosis than those without lesions (30.9 ±4.3 vs. 19.5±2.1 yrs, p<0.025). Patients without retinopa- thy in their first 20 years of diabetes more frequent- ly visited the diabetic clinic (p<0.05). Patients without retinopathy after 20 or more years of diabetes used significantly less insulin daily than those with retinal lesions (p< 0.005). They were significantly older at diagnosis of diabetes (p<0.02) and 70 % were females. Mean blood sugar values tended to be higher in patients with retinopathy but this finding did not reach statistical significance. Mean per cent body weight did not differ between patients with and without retinopathy; few Type 1 diabetics in the study are obese. The importance of metabolic control, regular supervision and residual endogenous insulin secretion is further discussed. RERERENCES 1. Danielsen R, Jónasson, F, Helgason, Þ: Algengi Sjónuskemmda og eggjahvítumigu hjá Insúlin-

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.