Læknablaðið - 15.06.1984, Síða 6
158
LÆKNABLAÐIÐ
Fig. 5. Prevalence of Glaucomatous Visual Field
Defects (GVFD) in Iceland in 1982 and Halsingland,
Sweden in 1980 by age groups. Rates per 1000
population.
leitað sér lækninga annarsstaðar en á sinni
eigin heilsugæslustöð.
Glákukörtnun í Dalby. Bengtsson kannaði á
árunum 1977 og 1978 algengi gláku á augljósu
klínísku stigi (GVDF) meðal 1511 íbúa í Dalby,
Svípjóð á aldrinum 55-70 ára (5, 6). Eru það
um 77 % af heildaríbúatölu þessa aldurshóps.
Könnunin var mjög ýtarleg, m.a. var fram-
kvæmd tölvustýrð sjónsviðsathugun (automa-
tic perimetry).
Heildaralgengi gláku reyndist 12.5 af þús-
undi og var stígandin mjög ákveðin með aukn-
um aldri, sjá töfluna.
Ferndale könnunin í Englandi. í þessari könn-
un, sem lauk 1966 rannsökuðu Hollows og
Graham algengi GVFD meðal 4231 íbúa á
aldrinum 40-74 ára (7) Algengistölur í ald-
ursflokkum eru birtar í töflunni. í sömu töflu
eru til samanburðar birtar algengistölur
GFVD sjúklinga í Framinghamkönnuninni og
í þeirri íslensku (8).
SKIL
Algengi gláku hér á landi sem fjallað er um í
fyrstu greininni í þessum greinaflokki er auð-
veldast að bera saman við Framinghamkönn-
unina, þar eð skilgreining hægfara gláku í
þeirri könnun er sú sama og á göngudeild augn-
deildar Landakotsspítala og íslenskir augn-
læknar styðjast yfirleitt við.
Sameiginlegt báðum könnunum er svipað
heildaralgengi, svipuð stígandi með aldri og
meiri tíðni meðal karla í öllum aldursflokkum.
Munur á tíðni meðal kynja er marktækur í báð-
um könnunum. Svipað kom í ljós (1978) í Borg-
arneskönnuninni (9).
Hvað Gautaborgarkönnuninni viðvíkur er
gagnasöfnun þekktrar gláku svipuð og í þeirri
íslensku og skilgreining sjúkdómsins áþekk.
Algengi þekktrar gláku í Gautaborg er minna
en hér á landi. Ástæðan kann að vera sú, að
fleiri ganga þar með sjúkdóminn leyndan, en
hérlendis. Á íslandi leitar fólk til augnlækna til
þess að fá mæld gleraugu og er þá samfara
gleraugnamátun gerð augnskoðun, þ.á. m.
glákuleit hjá öllum sem komnir eru á miðj-
analdur.
Langalgengast er að hægfara gláka upp-
götvist við gleraugnamælingu, þar sem hún
gefur engin einkenni á byrjunarstigi. Hér á
landi þekkist ekki að gleraugnasalar mæli
sjón.
Aftur á móti er gleraugnamátun í Svíþjóð
eins og víðar að miklu leyti í höndum gler-
augnafræðinga (optikera), sem ekki hafa lækn-
isfræðilega þekkingu og geta þar af leiðandi
ekki greint sjúkdóma svo sem hægfara gláku.
Ef skilmerki hægfara gláku eru sett við
augljóst klínískt stig (GVFD), er ekki mark-
tækur munur á algengi gláku í Svíþjóð, Eng-
landi og Bandaríkjunum samaber töfluna og ís-
lenska könnunin sker sig þar ekki úr.
Af framansögðu má ætla að algengi hæg-
Age specific prevalence of Glaucomatous Visual Field Defects (GVFD) in tbe present study and other
populations studies (11). Rates per tbousand population.
Ferndale Framingham Dalby Halsingland
lceland UK USA Sweden Sweden
Age groups 1982 1966 1973-75 1977-78 1980
50-54 ........................... 2.4 3.0 - - 1.1
55-59 ............................. 3.8 1 9.0 1 5.01 5.2 1 2.3
60-64 ............................. 9.9 l 9.9 5.0 \ 8.0 7.0 f 8.0 8.1 J- 9.3 5.2
65-69 ............................. 18.2 J ll.Oj 9.0 J 13.4J 10.5
70-74 ............................ 32.5 13.0 17.0 — 21.2
75-79 ............................ 46.0 — 20.0 — 35.6
80-84 ............................ 55.4 — 44.0 — 45.2
\