Læknablaðið - 15.06.1984, Blaðsíða 33
LÆKNABLADIÐ
169
8. Þessi tillaga barst nokkuð breytt frá starfs-
hópi. Ólafur Mixa bar fram breytingartil-
lögu pess efnis, að hverjum landsmanni
verði sent ársfjórðungsyfirlit yfir kostnað
heilbrigðiskerfisins af honum. Þessi tillaga
var felld með 6 atkvæðum gegn 3. Björn
Önundarson rakti viðhorf T.R. til þessa
máls. Tillaga starfshóps var síðan
samþykkt með 22 samhljóða atkvæðum;
svohljóðandi: Aðalfundur L.Í., haldinn í
Reykjavík 19.-20. sept. 1983, felur stjórn
L.í. að sjá til þess, að ávallt séu fyrir hendi
upplýsingar um sundurliðaðan kostnað við
heilbrigðisþjónustu á íslandi ásamt saman-
burði við kostnað nágrannaþjóðanna. Upp-
lýsingar þessar verði kynntar læknum og
almenningi reglulega og þegar tilefni gefst.
9. Tillagan var samþykkt með 22 samhljóða
atkvæðum, lítillega breytt frá starfshópi;
svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.Í. að beita sér
fyrir könnun og umræðum um kosti og
galla mismunandi kerfa í rekstri sjúkra-
húsa á sama hátt og verið er að kanna
mismunandi rekstrarform heilsugæzlu-
stöðva. Könnun þessari verði lokið fyrir 1.
maí 1984.
18. Þessi tillaga kom nokkuð breytt frá starfs-
hópi og urðu um hana nokkrar umræður,
en hún var síðan samþykkt með 18 at-
kvæðum gegn 2; svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Domus Med-
ica dagana 19.-20. september 1983, ályktar
að fjölgun heilsugæzlustöðva í Reykjavík
sé aðkallandi nauðsyn og skilyrði eðli-
legrar fjölgunar heimilislækna í borginni.
Fundurinn beinir því til heilbrigðisráð-
herra, að stofnun heilsugæzlustöðva verði
hraðað, þannig að a.m.k. ein stöð taki til
starfa árlega næstu 5 ár.
7. Við þessa tillögu var bætt hjá starfshópi.
Síðan kom fram breytingartillaga um að
fella upphaflegu tillöguna niður en láta
viðbótina standa. Sú breytingartillaga var
samþykkt með 12 atkvæðum gegn 3.
Tillagan var því samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.í. að kanna,
með hvaða hætti læknasamtöknin geti
nýtt sameiginlega sjóði sína til að bæta
viðskiptamöguleika lækna í bankakerfinu.
14. Tillagan kom lítillega breytt frá starfshópi.
Eggert Brekkan bar fram frávísunartil-
lögu, sem var felld með 6 atkvæðum gegn
1. Tillagan var síðan samþykkt með við-
bót starfshóps með 14 samhljóða atkvæð-
um; svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.í. að senda
fyrirspurn til sænskra yfirvalda um lífeyris-
réttindi íslenzkra lækna þar í landi og
knýja á greiðslur, sé þess kostur. Unnið
verði að málinu í samvinnu við F.Í.L.Í.S.
15. Tillögunni var vísað til stjórnar L.Í. með 24
atkvæðum gegn 1; svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19.-
20. sept. 1983, felur stjórn L.í. að beita sér
fyrir því, að ferða- og dvalarkostnaður
fulltrúa svæðafélaganna vegna funda L.Í.
(aðalfundar, formannaráðstefnu og kjara-
málafundar) verði framvegis greiddur af
L.Í.
16. Breytingartillaga starfshóps var samþykkt
með 12 atkvæðum gegn 9. Andmælendur
vildu halda upphaflega orðalaginu, þar
sem fastar er kveðið á um íbúðarkaup.
Tillagan var samþykkt svohljóðandi:
Aðalfundur L.Í., haldinn í Reykjavík 19,-
20. sept. 1983, beinir því til Orlofsnefndar
L.Í., að næsta fjárfestingarverkefni verði
kaup á orlofsíbúð í Reykjavík til afnota
fyrir lækna utan af landi. Orlofsnefnd meti,
hve fljótt Orlofssjóður hefur fjárhagslegt
bolmagn til þessara íbúðarkaupa.
Reikningar voru bornir upp af gjaldkera
félagsins en fáar athugasemdir voru gerðar.
Reikningar voru samþykktir með 21 sam-
hljóða atkvæði.
Þá kynnti gjaldkeri fjárhagsáætlun, þar sem
gert er ráð fyrir 40 % verðbólgu, árgjald kr.
10.000.-, þar af kr. 1.000.- til svæðafélags.
Guðmundur I. Eyjólfsson taldi tillag til svæða-
félags of lágt og bar fram tillögu um að það
yrði kr. 1.500.- og þá árgjaldið allt kr. 10.500.-.
þessi tillaga var studd af dreifbýlisfulltrúum og
síðan samþykkt með 19 samhljóða atkvæðum.
Stjómarkjör:
Stjórn L.Í. bar fram tillögu um kjör eftirtal-
inna, og voru þeir allir sjálfkjörnir:
Formaður: Þorvaldur Veigar Guðmundsson
(til 2ja ára). Gjaldkeri: Jón Bjarni Þorsteinsson