Kópavogur - 12.04.2013, Side 4
4 12. apríl 2013
Blikarnir stefna
hátt í Pepsi-deildinni
Nú styttist í að íslenska knattspyrnusumarið hefjist. Íslandsmótið í knattspyrnu,
Pepsi-deildin hefst í byrjun maí-
mánuðar og undirbúningurinn stendur
sem hæst. Atli Sigurðarson, fram-
kvæmdarstjóri Knattspyrnudeildar
Breiðabliks segir að æfingatímabilið
hafi gengið vel. Meistaraflokkur bæði
kvenna og karla héldu í æfingaferð
til Jerez á Spáni í vikunni og er það
lokaundirbúningurinn fyrir sum-
arið. Vonast er eftir því að fljótlega
eftir heimkomuna geti liðin byrjað að
spila á grasi.
Bæði karla- og kvennaliðið uppskáru
góðan árangur í Pepsi-deildinni síð-
astliðið sumar. Í karlaflokki höfnuðu
Blikar í öðru sæti en fimmta sætið
varð niðurstaðan í kvennaflokki. ,,Við
stefnum á að færa okkur upp um eitt
sæti í karlaflokki,‘‘ bætir Atli við. Fyrsti
leikurinn í Pepsi-deild karla fer fram
sunnudaginn 5. maí næstkomandi.
Þá fá Blikarnir lið Þórs í heimsókn.
Þann 7. maí er fyrsti leikur í Pepsi-deild
kvenna og heimsækja Blikarnir þá HK/
Víking á Víkingsvelli. Mikil gróska er
í knattspyrnudeild Breiðabliks. Um
1100 iðkendur eru í deildinni og að
sögn Atla er það mesti fjöldi iðkenda í
knattspyrnufélagi á Íslandi. Óhætt er
því að segja að framtíðin sé björt hjá
Blikunum. LHÞ
Samkór Kópavogs:
Tónleikar í Salnum 18. apríl
Samkór Kópavogs mun halda sína árlegu vortónleika í Salnum, tónlistahúsi Kópavogs fimmtu-
daginn 18.apríl n.k. kl. 20. Ásamt
kórnum mun koma fram hinn landsk-
unni söngvari Bjarni Arason og söng-
konan Ragnheiður Sara Grímsdóttir.
Um hljóðfæraleik sjá þeir Gunnar
Gunnarsson píanóleikari, Gunnar
Hrafnsson bassaleikari, Eric Qvik
trommuleikari og Örn Arnarson gít-
arleikari. Stjórnandi er Skarphéðinn
Þór Hjartarson.
Á tónleikunum mun gleðin ráða
ríkjum enda þema þeirra vorið, ástin
og gleðin. Auk þess að flutt verði
klassísk sönglög munu verða fluttar
þekktar dægurperlur sem margar eru
í nýjum útsetningum eftir Skarphéðin
stjórnanda kórsins. Má þar nefna lög
eins og Sem lindin tær, Bláu augun þín
og Heyr mína bæn. Bæjarbúar eru
hvattir til að tryggja sér miða á www.
salurinn.is
Styttist í 50 ára
afmæli kórsins
Samkór Kópavogs er blandaður kór sem
var stofnaður árið 1966 og eru því örfá
ár þar til hann heldur upp á fimmtíu ára
afmæli sitt. Kórinn hefur tekist á við hin
ýmsu verkefni bæði stór og smá. Þar á
meðal má nefna flutning verka eftir
breska tónskálið Karl Jenkins en það
verkefni var flutt með sinfóníuhljóm-
sveit skipuð meðal annars kennurum og
nemendum úr Tónlistaskóla Kópavogs.
Samkórinn er skipaður vönu söng-
fólki sem margt hvert hefur sungið með
kórnum um áraraðir. Í Samkórnum
hefur ávallt ríkt góður félagsandi og
hefur kórinn auk þess að halda tónleika
farið í fjölda söng- og skemmtiferða bæði
innan- og utanlands.
Samkórinn er ætíð tilbúin að taka á
móti nýjum félögum og eru söngglaðir
Kópavogsbúar sem og aðrir velkomnir
að bætast í hópinn á haustdögum.
Kórinn æfir í Lindarkirkju á mánu-
dagskvöldum. Nánari upplýsingar má
finna á www.samkor.is og einnig hjá for-
manni kórsins Birnu Birgisdóttur í síma
692-4133 Netfang kórsins er: samkor@
samkor.is
Kópavogur
1. TBL. 1. ÁrgaNgur 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@
fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri:
Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang:
auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@
vedurehf.is, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær
Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Veffang:
fotspor.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 11.000 eintök. dreifing: Póstdreifing.
Fríblaðinu er dreiFt í 11.000 e intökum
í allar íbúðir í kópavogi
Hvað veistu um bæinn þinn eru laufléttar spurningar um
Kópavog og sögu hans. Ein spurning birtist í hverju blaði
og er svarið að finna á blaðsíðu 14 í blaðinu.
Hvað veiStu um bæinn þinn?
Spurningin í þessu blaði er:
Hvenær fékk Kópavogur
kaupstaðaréttindi? ?
Frá ferð kórsins til St pétursborgar sumarið 2012
Ólafur Kristjánsson, þjálfari meistara-
flokks karla. Mynd: Heiða Gunnlaugs.
Tómas Óli Garðarsson í harðri baráttu sumarið 2012. Mynd: Heiða Gunnlaugs
Kæri Kópavogsbúi
Blaðið sem þú ert með í höndunum er fyrsta tölublað Bæjarblaðsins Kópavogs
og því er um nokkur tímamót að ræða. Unnið hefur verið að undirbúningi
þessa blaðs um nokkurn tíma en nú er sem sagt komið að því að blaðið líti
dagsins ljós.
Við munum kappkosta að flytja fréttir af mannlífi og atvinnulífi úr því fjöl-
breytta og líflega samfélagi sem Kópavogur er. Af nógu er að taka í menningar-
og mannlífi og þiggjum við einnig allar ábendingar um efni með þökkum.
Þetta tölublað er með sérstökum brag. Eins og varla hefur farið framhjá
nokkrum manni verður gengið að kjörborðinu eftir tvær vikur eða svo og
nýtt þing kjörið. Okkur því fannst tilvalið að senda spurningar til allra fram-
boðanna og leggja spurningar fyrir þau öll svo kjósendur hafi möguleika
á að bera svör þeirra saman. Mikil ásókn hefur verið í að fá birtar greinar
eftir frambjóðendur í blaðinu og ekki var rúm fyrir þær allar. Enda um 14
framboð að ræða svo enginn getur svo sem kvartað yfir skorti á valkostum.
Það þótti við hæfi að taka hús á bæjarstjóra vegna fyrsta tölublaðsins. Farið
er yfir víðan völl í viðtalinu og ýmislegt fróðlegt ber þar á góma. Að ári liðnu
er komið að því að velja fulltrúa í sveitarstjórnum landsins og fróðlegt verður
að sjá hvernig framboðsflóran verður þá,í síðustu kosningum voru tveir nýir
bæjarmálaflokkar í boði og náðu hvor um sig ágætis árangri.
Blaðið er gefið út af fyrirtækinu Fótspori sem gefur út níu héraðs- og bæjarblöð
um allt land. Sum þeirra koma út mánaðarlega, önnur hálfsmánaðarlega og
enn önnur einu sinni í mánuði. Blöðin eru óháð öllum stjórnmálaflokkum
og sérhagsmunum. Það er von okkar sem að þessu blaði standa að því verði
vel tekið og grundvöllur verði fyrir því að fjölga útgáfudögum blaðsins í
fjóra á mánuði.
Lifið heil,
Hólmfríður Þórisdóttir, og Sigurður Þ Ragnarsson
ritstjórar
Ritstjórar heilsa
Leiðari