Kópavogur - 12.04.2013, Blaðsíða 12

Kópavogur - 12.04.2013, Blaðsíða 12
12 12. apríl 2013 Elín Hirst skrifar: Lausnir fyrir alla strax! Kæri KópavogsbúiMig langar til að útskýra fyrir kjósendum tillögur Sjálfstæðismann til að létta skuldsettum heimilunum í landinu róðurinn og flýta fyrir eignamyndun. Í hverjum mánuði geta þeir sem eru með íbúðalán fengið 40 þúsund krónur í skattaafslátt. Þessar 40 þúsund krónur renna beint til að greiða inn á höfuðstól lánsins til lækkunar á því. Öllum Íslendingum stendur þessi leið til boða skuldi þeir lán vegna húsnæðis. Til viðbótar má nota séreignasparnaðinn, þ.e. 2 % prósent framlag þitt og 2% framlag vinnuveit- enda skattfrjálst í hverjum mánuði til að greiða inn á höfuðstólinn. Það er góð fjárfesting því eins og menn vita sem hafa verið að taka út séreignarsparnað sinn vegna fjárhagserfiðleika er hann skattlagður um leið og hann er nýttur. Með þessu tvennu gefst fólki kleift að lækka íbúðalán sín um allt að 20% á fimm árum. Tökum hjón með 600 þúsund krónur í heildartekjur sem skulda 20 milljónir króna verðtryggt íbúðalán. 35 ár eru eftir af láni, vextir eru 4,7% og verð- bólgan 3,5% að meðaltali. Að óbreyttu hækkar lánið um 2,2 milljónir á næstu fimm árum. Með aðgerðum Sjálfstæðis- flokksins lækkar höfuðstóll landsins og stendur í 18 milljónum að fimm árum liðnum. Munurinn er 2,4 milljónir eða um 20% og greiðslubyrði af láninu léttist í samræmi við það. Unga fólkið okkar Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að veita þeim eru á leið inn á fasteignamark- aðinn og samskonar skattafslátt eða 40 þúsund krónur til að ýta undir sparnað. Þannig vill flokkurinn stuðla að því að sem flestar fjölskyldur fái tækifæri til að eignast eigin húsnæði með minni áhættu. Sá sem getur lagt fyrir 100 þús- und krónur á mánuði mun eiga um 6,7 milljónir króna með skattaafslætti eftir fjögur ár, auk vaxta. Ekki fleiri gjaldþrot Sjálfstæðisflokkurinn ætlar að afnema stimpilgjöld, en það er gert til að gera fólki auðveldara að skipta um húsnæði, endurfjármagna lán og færa bankavið- skipti sín og tryggja þannig betur samn- ingsstöðu fólks gagnvart fjármálastofn- unum, en nú er. Þeir sem ekki ráða við greiðslur af íbúðarhúsnæði fá tækifæri til að skila lyklunum í stað gjaldþrots, samkvæmt kosningastefnuskrá Sjálfstæðisflokksins, sem er mikilvægt. Einnig er það stefna flokksins að lántakendur að geta valið um bæði verðtryggð og óverðtryggð lán til langs tíma á sanngjörnum vöxtum. Mjög mik- ilvægt er að fólk hafi val. Nauðsynlegt er einnig að endurskoða samsetningu neysluverðsvísitölunnar, enda afar óeðlilegt að t.d. hækkun á bensíngjaldi leiði til þess að íbúðalán hækki – jafnvel íbúðalán þess sem engan bíl á. Þetta virkar! Kjósum skynsamlegar tillögur sem staðið verður við. Ég var spurð á dögununm, hvernig ætlið þið að lækka skatta en standa samt undir þeirri vel- ferð sem þið lofið. Jú, skattalækkun mun þýða tekjutap ríkissjóðs alveg í byrjun en svo stækkar skattastofninn með auknu athafnalífi á öllum stöðum og skatttekjur ríkisins hækka. Þetta hefur verið reynt víða um heim og virkar. Ég hvet kjósendur til að reikna sitt dæmi og sjá að þetta eru ekki töfra- lausnir heldur verulegt bót sem staðið verður við. Og aðalatriðið er að hún byrjar að virka strax. Höfundur skipar 5. sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningarnar 27. apríl Nautalundir með chimicurri sósu og aspas Þessi uppskrift úr bókinni hefur notið mikilla vinsælda en chim- icurri sósan lyftir matnum yfir á næsta stig. Hún er góð með ýmsu kjöti og fiski. Í þennan rétt er hægt að nota hvaða kjöt sem er, t.d. lambalundir, lambainnanlæri eða svínalundir. Hér er gefin uppskrift að þessari vinsælu sósu með smjöri en í bókinni er einnig uppskrift að henni með olíu en þær eru ólíkar á bragðið. Fyrir 4 800 g nautalundir 16 ferskir grænir aspasstilkar 2 msk. smjör eða olía til steikingar salt og pipar Skerðu kjötið í þunnar sneiðar og steiktu létt á pönnu. Kryddaðu til með salti og pipar. Settu aspasinn í sjóðandi vatn í 2-3 mínútur. Taktu vatnið af honum, smjörsteiktu á pönnu og saltaðu aðeins. Chimicurri sósa með smjöri ½ búnt steinselja ¼ rauðlaukur, smátt saxaður 4 hvítlauksgeirar, pressaðir 2 sm engifer, pressað og skorið smátt 3 msk. graslaukur, smátt saxaður 1 rautt chillí, smátt saxað 200 g smjör 2 msk. sojasósa 1 msk. rauðvínsedik salt og pipar Bræddu smjörið og láttu það sjóða aðeins þannig að það brúnist. Bættu sojasósu og ediki saman við og síðan kryddjurtum, lauk og engifer. Taktu af hitanum og láttu sósuna standa í 10 mínútur áður en þú berð hana fram. Bókin sem vermir efstu sæti metsölu- lista bókabúðanna um þessar mundir er LKL bókin, lágkolvetnalífstíllinn. Hún er eftir Gunnar Má Sigfússon sem hefur um langt árabil verið einn vinsælasti líkamsræktarþjálfari og heilsuráðgjafi landsins. Dagskipunin er: út með kolvetnin inn með fituna. Fyrir 30 árum hófst barátta gegn fituríkum mat og markaðssetning og sala fitusnauðrar fæðu hóf innreið sína. En síðan hefur offita aukist í heiminum og verður sífellt meira heilbrigðisvandamál. Margar nýlegar rannsóknir sýna og sanna að mataræði sem byggir á lágu kolvetnainnihaldi og hærra hlutfalli fitu skilar fólki mestum árangri við þyngdarstjórnun, að öðlast heil- brigðari lífsstíl og betri heilsu. Fólk um víða veröld er að tileinka sér lágkolvetna mataræði. Smjör, rjómi, beikon og egg, er það sem allir eru að tala um. Við fengum góðfúslegt leyfi frá útgef- anda til að birta uppskrift úr bókinni. Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð amerísk heilsársdekk - stærðir 31- 44 tommur - slitsterk - neglanleg - má míkróskera - frábært veggrip Gott verð! fyrir flestar stærðir jeppa og jepplinga Við eigum dekkin undir bílinn þinn og bjóðum upp á alla dekkjaþjónustu. Þú kemur þér notalega fyrir með kaffibolla meðan þú bíður. Bjóðum einnig ástandsskoðanir, smurþjónustu og almenna viðgerðarþjónustu. Skjót og góð þjónusta! 38x15,5R15 38 tommu dekk sem er sérstaklega hannað fyrir íslenskar aðstæður. - slitsterkt - endingargott - hljóðlátt - míkróskorið - neglanlegt Dekkja- verkstæði á staðnum. Bjóðum alla almenna dekkja- þjónustu. BB kremið frá Pure inniheldur steinefni sem hjálpa við að ná fersku yfirbragði og náttúrulegu útliti. Collacen Avacado oil Allantoin Aloe Vera Engin ilmefni. Dreifingaraðili Danson ehf Víkurhvarf 5 Sími 588-6886 Frábært verð! matur og lífSStíll LágkoLvetna mataræði er vinsæLast í dag Elín Hirst. Er allt farið að leka og skemmast? Sími 694 8448 Gerum tilboð ! Fyrirtækið Rennur og Niðurföll tekur að sér að laga þakrennur, niðurföll, bárujárnsklæðningar, leka á þökum, þakmálun og hreinsun uppúr þakkrennum ásamt allri annari smíðavinnu. Við gerum tilboð í verkið þitt. Nánari upplýsingar fást hjá Ólafi í síma 694-8448

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.