Kópavogur - 12.04.2013, Blaðsíða 8

Kópavogur - 12.04.2013, Blaðsíða 8
8 12. apríl 2013 Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í viðtali við Bæjarblaðið Kópavog: „Í Kópavogi er allt til alls og það er alveg ljóst að fólk sækist eftir því að búa í bænum“ Í tilefni þess að fyrsta tölublað Bæj-arblaðsins Kópavogs kemur út í dag var tekið hús á bæjarstjóra og hann spurður spjörunum úr. Við byrjum á því að góðum íslenskum sið að spyrja bæjarstjóra um ætt og uppruna. Hver er maðurinn? „Ég fæddist á Akureyri 17. júlí 1966 og er að mestu alinn þar upp, með tveimur undan- tekningum þó, þar sem ég bjó um tíma í sveit, Þverá í Öxnadal, og á Patreks- firði. Eftir grunnskóla fór ég í Iðnskól- ann á Akureyri, sem nú heitir Verk- menntaskóli, og lauk ég þar grunn- deild rafiðna. Að því loknu lá leiðin í Menntaskólann á Akureyri og þaðan í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Á þessum árum tók ég einnig svifflugs- og einkaflugmannspróf en hef þó lítið sinnt því áhugamáli mínu undanfarin ár. Vonandi gefst betra tækifæri til þess síðar. Ég stofnaði ungur að árum auglýsingastofuna Nonni og Manni en nafninu var síðar breytt í ENNEMM þegar fjölgaði í eigendahópnum. Eigin- kona mín er Hulda Guðrún Pálsdóttir og saman eigum við tvö börn.“ -Þá er bæjarstjóri inntur eftir því hvenær hann hóf afskipti af stjórn- málum. Hver var aðdragandi þess? „Ég byrjaði að spá mikið í pólitík á menntaskólaárunum en það var þó ekki fyrr en á háskólaárunum sem ég gekk í Sjálfstæðisflokkinn. Ég starfaði þar í ungliðahreyfingunni og sat m.a. í stjórn Sambands ungra sjálfstæðis- manna. Svo æxluðust mál þannig að ég tók að mér að vera kosningastjóri árið 1995 fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra og upp frá því hefur líf mitt, meira og minna, snúist um pólitík. Ég hef verið aðstoðarmaður ráð- herra, setið á þingi og í bæjarstjórn Kópavogs frá árinu 1998 og gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum. Fyrir rúmu ári varð ég svo bæjarstjóri Kópavogs.“ Landsmenn hafa fylgst með meirihlutaskiptum og átökum í bæj- arstjórn Kópavogs síðustu ár og ekki síst á yfirstandandi kjörtímabili. Því er ástæða til að spyrja bæjarstjóra út í þau mál og hvort draga megi lærdóm af þeim átökum. Hann segir að átök í bæjarstjórn Kópavogs séu ekki ný af nálinni: „Það er rétt hjá þér að saga bæjar- stjórnarmála í Kópavogi er að mörgu leyti saga átaka. Ef rýnt er til dæmis í bókina Við byggðum nýjan bæ, eftir Huldu Jakobsdóttur, fyrrverandi bæj- arstjóra, má sjá að átökin voru oft hatrömm á fyrstu árum sveitarfélags- ins. Ég dreg þó enga fjöður yfir það að átökin milli aðila í bæjarstjórn síð- ustu árin hafa einnig gengið úr hófi fram. Þau eru oft á tíðum bundin við ákveðnar persónur. Við höfum þó verið að reyna að breyta þessari umræðuhefð, til dæmis með breytingum á fundarfyrirkomu- lagi bæjarstjórnar. Þannig höfum við reynt að gera umræðu um einstök mál markvissari og betri. Það er ekki komin löng reynsla á þetta nýja fyrirkomulag, nokkrir fundir hafa gengið mjög vel en aðrir hafa farið í gamla farið. Ég hygg að við munum fara yfir þessar nýju reglur aftur og breyta ef þörf er á, til að ná betur markmiðum okkar. Þegar allt kemur til alls er þetta þó í höndum bæjarfulltrúanna sjálfra, það breytist ekkert nema þeir hafi raunverulegan áhuga og vilja til þess.“ -Er Kópavogsbær svefnbær að mati bæjarstjóra eða er það liðin tíð? „Það er langt síðan Kópavogsbær hætti að flokkast sem svefnbær. Hér hefur verið mikil uppsveifla frá því meirihluti Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks tók við stjórn bæjarins árið 1990 og svo aftur núna þar sem við erum í góðu samstarfi við Y-Lista Kópavogsbúa. Íbúum hefur fjölgað umtalsvert og það sama má segja um fyrirtækin í bænum. Í stuttu máli má segja að hér sé allt til alls. Kópavogur er öflugt atvinnu- svæði þar sem stunduð er fjölbreytt atvinnustarfsemi á sviði verslunar, þjónustu og framleiðslu. Hér eru góðir skólar, góð íþróttaaðstaða og blómlegt menningarlíf. Íbúum fjölgar jafnt og þétt milli ára og eftirspurn eftir lóðum er að aukast töluvert. Það er því alveg ljóst að fólk sækist eftir því að búa í Kópavogi.“ Um sameiningu við önnur sveitarfélög: „Ég er ekki viss um að það sé það sem bæjar- búar vilja. Maður getur líka spurt sig af hverju við ættum að vera breyta því sem vel gengur...“ Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri heimsótti alla leikskóla í Kópavogi á síðasta ári til að kynna sér starfsemi þeirra. Með honum er rannveig Ásgeirsdóttir, formaður bæjarráðs. Nú heimsækir Ármann alla grunnskóla bæjarins í sama tilgangi. Ármann ásamt heiðurslistamanni Kópavogs árið 2012, Ingibjörgu Þorbergs, og formanni lista- og menningarráðs, Karen E. Halldórsdóttur.

x

Kópavogur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.