Kópavogur - 26.04.2013, Qupperneq 2
2 26. apríl 2013
Álfhólsskóli
Íslandsmeistari í skák
Skáksveit Álfhólsskóla er Ís-landsmeistari barnaskólasveita í skák. Sveitin vann sigurinn á
Íslandsmóti barnaskólasveita sem fór
fram í Rimaskóla fyrr í mánuðinum.
Alls tóku 45 sveitir þátt í mótinu, þar
af 13 úr Kópavogi. Hörðuvallaskóli
hafnaði í fjórða sæti og fékk auk
þess verðlaun sem besta sveitin með
nemendur úr 1. – 4. bekk. Salaskóli
varð efst meðal c-, d-, e- og f-sveita
á mótinu. Skáksveit Álfhólsskóla
skipa Dawid Kolka, Felix Stein-
þórsson, Guðmundur Agnar Braga-
son og Oddur Þór Unnsteinsson.
Skákkennari og liðsstjóri er Lenka
Ptácníková.
LHÞ
Tveir kjörstaðir í Kópavogi
- SV-kjördæmi fjölmennast með 63.154 á kjörskrárstofni – fjölgun um 8,5%
Kjörfundur vegna alþing-iskosninganna á morgun hefst kl. 9 og lýkur kl. 22.
Kjörstaðir í Kópavogi verða tveir.
Íbúar vestan Reykjanesbrautar og
í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu
Smáranum. Íbúar austan Reykjanes-
brautar að frátöldum þeim sem búa
í Lindahverfi kjósa í íþróttahúsinu
Kórnum.
Á kjörskrárstofni eru 63.154 í Suð-
vesturkjördæmi og er það þar með
stærsta kjördæmið og hefur kjós-
endum þar einnig fjölgað mest frá
síðustu kosningum eða um 8,5%.
Alls eru 11 listar í framboði í
Suðvesturkjördæmi. A-listi bjartrar
framtíðar, B-listi Framsóknarflokks,
D-listi Sjálfstæðisflokks, G-listi
Hægri grænna flokks fólksins, I-listi
Flokkur heimilanna (hét áður Lýð-
ræðisflokkurinn), J-listi Regnbog-
ans, L-listi Lýðræðisvaktin, S-listi
Samfylkingarinnar, T-listi Dögunar
(hét áður Borgarahreyfinigin), V-listi
Vinstriheyfingin – grænt framboð og
Þ-listi Pírata.
Tölur um kjörsókn verða birtar á
klukkutíma fresti á vef Kópavogs-
bæjar.
Ársreikningar 2012 lagðir fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn sl. þriðjudag:
Rekstrarafgangur bæjarins umfram áætlanir
-reyndist 186 milljónir kr. – áætlun hljóðaði uppá 102 milljónir kr.
Afkoma Kópavogsbæjar reyndist 84 milljónum króna betri en áætlanir bæjarins og
stofnana hans gerðu ráð fyrir. Tekjur
reyndust alls vera ríflega 20,5 millj-
arðar króna á árinu 2012 en bein
rekstrargjöld ríflega 15,7 milljarðar
króna. Þetta þýðir að hagnaður fyrir
fjármagnsliði og afskriftir reyndist vera
rúmlega 4,8 milljarðar króna.
Afskriftir reyndust tæpir 1,4 millj-
arðar og fjármagnskostnaður tæplega
3,3 milljarðar króna króna sem er
nokkuð hærri kostnaður en áætlanir
gerðu ráð fyrir, en þar var gert ráð fyrir
kosnaði vegna fjármagnsliða ríflega 2,5
milljarða króna. Afgangur af rekstri
bæjarins reyndist því 186 milljónir
króna eins og áður sagði sem er 84
milljónum betri afkoma en áætlanir
gerðu ráð fyrir. Sjá nánar bls. 2.
Rekstrarafgangur bæjar-
ins umfram áætlanir
Hagnaður vegna lóðaúthlutana á
árinu 2012 var tæpar 800 milljónir
króna en ekki hafði verið gert ráð fyrir
lóðaúthlutunum í áætlun ársins. Til
samanburðar var hagnaður af lóða-
úthlutunum á árinu 2011 rétt rúmar
335 milljónir króna. Þá segir að þessi
afgangur verði þrátt fyrir gengistap,
óhagstæða verðbólguþróun og hækkun
lífeyrisskuldbindinga. Gengistap er-
lendra lána var 445 milljónir króna og
gjaldfærsla lífeyrisskuldbindinga var
209 milljónir umfram áætlun.
Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri
segir þessa rekstrarniðurstöðu gefa
góð fyrirheit um framhaldið. „Árs-
reikningurinn sýnir bætta stöðu Kópa-
vogsbæjar sem gefur góð fyrirheit um
framhaldið. Mikill styrkur er fólginn
í því að rekstraráætlanir málaflokka
skuli standast og að á þær sé hægt að
treysta. Hjá Kópavogsbæ starfar hæft
fólk sem hefur lagst á árarnar til að ná
settu marki. Einnig er mikilvægt að
uppgreiðslu erlendra lána lýkur nánast
á þessu ári og verður sá áhættuþáttur
því óverulegur héðan í frá,“ segir Ár-
mann
Skuldahlutfall samstæðu Kópavogs-
bæjar var um síðustu áramót 206% en
var um 242% þegar hæst var árið 2010.
Markvisst er stefnt að því að lækka
skuldir bæjarins. Gert er ráð fyrir því
að skuldahlutfallið verði komið undir
lögbundið 150% hámark fyrir árið 2018
en aðlögunartíminn til að ná því hlut-
falli er til 2023.
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
Vinnuskóli Kópavogs:
Umsóknarfrestur til 5 maí
Byrjað er að taka við um-sóknum um starf í Vinnuskóla Kópavogs og er umsóknar-
frestur til 5. maí. Vinnuskólinn er
fyrir Kópavogsbúa á aldrinum 14
– 17 ára. Eins og undanfarin ár er
stefnt að því að veita öllum umsækj-
endum vinnu.
Helstu verkefnin eru snyrting
og fegrun bæjarins en elstu ung-
lingunum býðst einnig að vinna við
aðstoðarstörf hjá ýmsum stofnunum
og félögum í bænum. Skilyrði ráðn-
ingar er að viðkomandi eigi lögheimili
í Kópavogi. Hægt er að sækja um á vef
Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is
Ellefu framboð eru í boði í Suðvesturkjördæmi nú í alþingiskosningunum
2013. Kjörfundur í Kópavogi hefst í fyrramálið kl. 09 og lýkur kl. 22.
Frh. af forsíðu