Kópavogur - 26.04.2013, Qupperneq 4
4 26. apríl 2013
Viðurkenningar fyrir umhverfismál:
Auglýst eftir tilnefningum
Unhvefis- og samgöngunefnd auglýsir eftir tilnefningum vegna viðurkenninga í um-
hverfismálum. Slíkar viðurkenningar
hafa verið veittar ár hvert og eru viður-
kenninginar vegna umhirðu við hús
og lóðir, endurgerð húsa, framlag til
ræktunarmála og framlags til um-
hverfis og samfélags. Tekið er á móti
tilnefningum til 29. júní og ferða um-
hverfisviðurkenningarnar síðan veittar
í ágúst. Hægt er að skila tilnefningum
til umhverfisfulltrúa bæjarins á net-
fangið solveighj@kopavogur.is.
Kópavogur
2. TBL. 1. ÁrgaNgur 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@
fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri:
Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Auglýsingasími 578 1190, netfang:
auglysingar@fotspor.is. Ritstjórar: Hólmfríður Þórisdóttir, sími 699 0450, netfang: holmfridur@
vedurehf.is, Sigurður Þ Ragnarsson netfang: hafnarfjordur@vedurehf.is, Ljósmyndari: Þórir Snær
Sigurðarson, sími 615 2049. Blaðamenn: Linda Hrönn Þórisdóttir, Þórir Snær Sigurðarson. Veffang:
fotspor.is, Umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 11.000 eintök. dreifing: Póstdreifing.
Fríblaðinu er dreiFt í 11.000 e intökum
í allar íbúðir í kópavogi
Á morgun er komið að því að landsmenn geti nýti sinn lýðræðislega rétt að velja fulltrúa á löggjafarsamkomu þjóðarinnar til næstu fjögurra ára, gangi allt upp eins og kosningalöggjöfin segir. Eins og ávallt kjósa
menn út frá mismunandi forsendum, ekki síst út frá sjónarhóli þess sem kýs.
Nú er að ljúka fjögurra ára stjórnartið hreinnar vinstri stjórnar. Það væri
ósanngjarn að segja að á þessum tíma hafi ekkert áunnist í að koma þjóðar-
skútunni á flot að nýju eftir strandið 2008. Okkur miðar en vélin höktir enn
og stutt er í brimgarðinn. Því verðum við að gera okkur grein fyrir.
Sjálfsagt eru margir þeirrar skoðunnar að þessi hreinræktaða vinstristjórn
hefði mátt líta til launþega þessa lands í meira mæli enda sýna lífskjarakann-
anir að helmingur heimila nær ekki endum saman milli mánaðamóta. Það
er ekki viðunandi staða. Hvorki gagnvart þeim sem eru í þeirri stöðu né
gagnvart vinstri stjórninni sem nú leggur verk sín á borð kjósenda. Ónægjan
endurspeglast m.a. í því að stjórnarflokkarnir hafa átt undir högg að sækja í
skoðanakönnunum og víðar.
Allir þessir flokkar og listar virðast sjá þennan vanda þegar komið er að
kosningum og nú vilja allir lagfæra þetta. Sem betur fer vilja flokkarnir ná
því markmiði með ólíkri nálgun, ólkum aðferðum, sem okkur kjósendum er
ætlað að ákveða með þvi að kjósa á milli mismunandi lista eða flokka. Sem
betur fer ætla ekki allir sama slóðann þó markmiðin kunni að vera keimlík.
Það hefur því komið mér á óvart hversu lágt hefur verið lagst nú á loka-
sprettinum í að gera einstaka flokka og menn tortryggilega. Menn hafi ætt út
í forarpyttinn með eineltistilburði að vopni með það að markmiði að skemma
og eyðileggja mannorð annarra. Nokkuð sem þroskað fólk gerir ekki og er
þeim sem þetta gera til mikillar minnkunar. Eitt skulu menn ávallt hafa í huga
að það að þurfa að verja eigið skinn, hreinsa sitt orðspor, er eitt það erfiðasta
sem nokkur maður getur lent í. Enginn vill þurfa að lenda í slíkri stöðu. Við
erum nefnilega stundum fljót að dæma.
Krafa borgaranna er skýr. Mannvænlegra samfélag þar sem fólkið sem byggir
þetta land getur lifað mannsæmandi lífi í landi án þeirrar spennu hvort það
komist af mánaða á milli. Við búum í landi þar sem þjóðartekjur er með því
hæsta sem gerist. Til að sátt náist þurfa allir að fá sinn skerf til að líða vel og
áhyggjulítið í landi allsnægtanna. Þannig þarf Ísland framtíðarinnar að vera.
Það er því eðlilegt og sjálfsagt að fólk nýti lýðræðislegan rétt sinn og fara á kjör-
stað og velja flokk eða lista og þar með leiðir að samfélagi sem við viljum sjá.
Góða helgi
Sigurður Þ. Ragnarsson
Mikilvægustu
kosningar
síðari tíma
Leiðari
Óþrifn-
aður við
hesthúsa-
lóðir
Umhverfis og samgöngunefnd hefur fengið ábendingar frá íbúum um óþrifnað við
hesthúsalóðir á Kjóavöllum. Ákvað
nefndin að fela umhverfissviði bæj-
arins að vinna áfram m.a. með
fulltrúum frá hestamannafélaginu
Spretti að bættri umgengni á svæðinu.
Nefndin leggur áherslu á að mikil-
vægt sé að svæðið sé snyrtilegt þar sem
það er í mikilli nálægð við íbúða- og
íþróttasvæði.
Umsóknir um styrki
vegna fasteignagjalda:
Fjölmörg
erindi
borist
Fjölmörg erindi félaga og félaga-samtaka um styrk til greiðslu fasteignaskatts fyrir árið 2013
hafa borist Kópavogsbæ.
Fastmótaðar reglur gilda um styrk-
veitingarnar og á grundvelli þeirra
var auglýst eftir umsóknum um styrki
fyrir árið 2013 og hefur bæjarráð þegar
samþykkt styrk til eftirtalinna vegna
greiðslu fasteigeignaskatta í ár:
Soroptimistasamband Íslands
- kr. 125.247
Tónlistarfélag Kópavogs
- kr. 2.974.304
Félag eldri borgara - kr. 184.500
Félag eldri borgara v/ ársins 2012
- kr. 171.353
Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna – kr. 376.380
Hestamannafélagið á Kjóvöllum
/ Sprettur – kr. 63.655
Leikfélag Kópavogs – kr. 665.184
SOS-barnaþorpin - kr. 138.006
Kvenfélag Kópavogs – kr. 221.646
Kópavogsdeild Rauða Kross Íslands -
kr. 331.608
Skíðadeild ÍR, skíðaskáli Lækjar-
botnar/Skíðaskáli í Bláfjöllum
- kr. 784.248
Skíðadeild Víkings, skíðaskáli Lækj-
arbotnar/Skíðaskáli í Bláfjöllum
- kr. 784.248
Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks lagði fram eftirfar-
andi bókun vegna styrks til íþróttafé-
laga í Reykjavík:
"Ég teldi rétt að íþróttafélögin sæki
styrk til Reykjavíkurborgar vegna
greiðslu fasteignaskatts til Kópavogs-
bæjar“.
Erindi Samfylkingarfélags Kópavogs
var hins vegar hafnað á grundvelli þess
að umsóknin félli ekki að reglum Kópa-
vogsbæjar um styrkveitingar.
Yrpa Sjöfn Gestsdóttir: Já ég er búin að ákveða mig, Ég ætla að kjósa
Samfylkinguna.
Herdís Óðinsdóttir: Ég er eiginlega búin að ákveða mig og hef kynnt mér
málin í sjónvarpinu og með því að lesa bæklinga flokkanna.
Linda Júlíusdóttir: Ég er ekki búin að ákveða mig. Ég reyni að fylgjast með
kosningaumfjöllun í sjónvarpinu til að bera saman flokkana.
Kristján Sigtryggsson: Mér finnst enginn flokkur með nógu afgerandi
stefnu fyrir mig. Ég tek ákvörðun á kjördag reikna ég með.
Sigtryggur Kristjánsson: Ég er ekki búinn að ákveða mig hvað ég ætla að
kjósa. Stefnumálin eru svipuð að mínu mati og ég reikna með að ákveða
mig í kjörklefanum.
Ertu búin(n) að ákvEða
hvað þú ætlar að kjósa? X2013
Bæjarblaðið Kópavogur fór á stúfana og spurði
vegfarendur hvort þeir væru búnir að taka ákvörðun
um hvað þeir ætluðu að kjósa á laugardaginn.