Kópavogur - 26.04.2013, Page 8
8 26. apríl 2013
Samfylkingin
2.
Katrín
Já, við jafnaðarmenn viljum afnema
verðtryggingu með upptöku evru.
Verðtryggingin er fylgifiskur íslensku
krónunnar vegna áhættunnar sem
henni fylgir. Gengi krónunnar hefur
því bein áhrif á íbúðaverð og verðlag
almennt á Íslandi. Við viljum stöð-
ugt umhverfi þar sem fjölskyldurnar
í landinu geta gera áætlanir fram í
tímann sem standast. Það hefur
aldrei tekist í krónuhagkerfinu. Ef
þjóðin segir já við ESB verður strax
hægt að flytja inn stöðugleika með
tenginguna krónu við evru.
Við viljum að gengið verði lengra
í niðurfærslu skulda með því að
tryggja að Íbúðalánasjóður útfæri
110% leiðina með sama hætti og
aðrar lánastofnanir. Þessi leið hefur
þegar fært niður skuldir nær 12.000
heimila. Þá þarf að mæta þeim sér-
staklega sem keyptu á versta tíma
fyrir hrun sá hópur stendur enn illa
og það gengur ekki. Þá eru þau heim-
ili sem eru með lánsveð jafnframt í
forgangi.
3
Magnús orri
Hrun gjaldmiðilsins árið 2008 setti
fjárhag fjölda heimila í uppnám vegna
mikils samdráttar í kaupmætti, þyngri
byrði vegna skulda og í mörgum til-
fellum atvinnumissis. Skuldir heimila
og fyrirtækja voru miklar þegar áfallið
reið yfir. Eftir aðgerðir síðustu ára eru
skuldir heimila svipaðar og 2006. Þrátt
fyrir þetta er enn verk að vinna, ekki
síst gagnvart þeim sem keyptu á versta
tíma fyrir hrun. Við þurfum að komast í
stöðu þar sem þetta gerist ekki aftur. Því
þurfum við að tryggja stöðugleika með
losun fjármagnshafta, ábyrgð í ríkisfjár-
málum og að lokum upptöku evru. Til
framtíðar er það verðmætasköpun með
aukinni fjárfestingu í atvinnulífinu sem
mestu skiptir fyrir afkomu heimilanna.
Fyrirtækin, heimilin og hið opinbera
greiða árlega um 150 milljarða vegna
kostnaðar sem fylgir krónunni. Hags-
munirnir af því að stefna markvisst að
því að vinna okkur út óstöðugu verðlagi
og hærri vöxtum eru miklir fyrir bæði
atvinnulíf og heimili. Því er stefna okkar
jafnaðarmanna í Evrópumálum um leið
atvinnu- og lífskjarastefna.
4.
Margrét gauja
Já, í Evrópu býr fólk við helmingi lægri
vexti og minni verðbólgu. Þar er hægt
að gera áætlanir til langs tíma um að
koma sér upp þaki yfir höfuðið án þess
að verðbólgan éti upp eignirnar. Við
tryggjum stöðugleika krónunnar með
því að komast inn í fordyri evrunnar að
loknum aðildarviðræðum við ESB. Til
þess þarf að byrja strax í dag. Markmiðið
er að komast sem fyrst í þá stöðu að geta
tengt krónuna við evru með stuðningi
evrópska seðlabankans svo hægt sé að
viðhalda lægri vöxtum og verðbólgu.
Fram að þessum tímapunkti verðum
við að haga hagstjórn og ríkisfjármálum
með ábyrgum hætti og vinna að losun
fjármagnshafta þannig að við náum
að tryggja stöðugleika í gengismálum.
Þannig uppfyllum við bæði skilyrði fyrir
aðild að myntsamstarfi ESB og verjum
heimili og fyrirtæki fyrir verðbólgu og
eignabólum.
Þetta er engin töfralausn heldur þvert
á móti vinna, agi og ábyrgð sem þarf
að halda áfram að loknum kosningum.
Ábyrgðarleysi og lausatök munu festa
okkur í höftum og verðtryggðri krónu.
Margrét Tryggvadóttir,
Dögun:
2
Verðtryggingin er eins og krabbamein
í hagkerfinu og hún sjálf veldur verð-
bólgu. Um hver mánaðarmót verða
til peningar í bankanum þegar lán
heimilanna hækka án þess að nokkur
verðmætasköpun hafi átt sér stað. Þá
peninga geta fjármálafyrirtækin lánað
út aftur, ekki bara einu sinni heldur
margoft sem eykur enn á peningamagn
í umferð og verðbólgu. Verðtryggingu
ber að afnema með lögum en einnig
þarf að skipta út þegar gerðum samn-
ingum og koma á nýju kerfi með vaxta-
þaki þannig að það skapist hvati til að
halda verðbólgu niðri. Og já, það þarf
að leiðrétta fyrir eignabrunanum, sjá
svar við lið 1.
3.
Það fylgir því gríðarlegur fórnarkostn-
aður að búa á Íslandi. Í samfélaginu
viðgengst mikil sóun. Skýrasta dæmið
er fjármagnskostnaður sem er þungur
baggi á bæði heimilum og fyrirtækjum
og skýrist af ofskuldsetningu, verð-
tryggingu og vaxtaokri. Við hrunið
breyttist Ísland einnig í láglaunasvæði
á svo til einni nóttu og þar erum við
enn. Laun á Íslandi eru engan veginn
sambærileg við launakjör í nágranna-
ríkjunum og því verðum við að breyta.
Dögun vill lögfesta lágmarksframfær-
sluviðmið sem ættu að tryggja öllum
viðunnandi framfærslu.
4.
Dögun leggur til að lögð verði upp
samsett aðgerð til að takast á við
gjaldeyrishöft og ósjálfbæra skulda-
og eignastöðu í efnahagskerfinu;
með myntskiptum á mismunargengi
(mismunandi skiptigengi), eða annars
konar leiðréttingum eigna/skulda,
með bröttum og tímabundnum skatti
á útstreymi gjaldeyris – og með því
að leggja á „uppgripaskatt“ (windfall-
tax). Jafnhliða verði leitað allra færra
leiða til að koma á heilbrigðum gjald-
eyrisbúskap og annað hvort tengja
íslenska krónu við körfu erlendra
gjaldmiðla eða taka upp nýja íslenska
krónu. Dögun hefur því ekki viljað loka
neinum leiðum í gjaldmiðlamálum.
Íslenska krónan er ónýt og ætti heima
á Þjóðminjasafninu. Upptaka evru í
gegnum Evrópusambandsaðild gæti
verið framtíðarlausn en það ferli er
seinlegt og verðtryggð króna er óá-
sættanlegur kostur á meðan á þeirri
bið stendur.
hákon Einar Júlíusson, Pírötum:
2.
Verðtryggð lán hafa hækkað um
fjórðung síðan eftir efnahagshrunið,
þetta hefur bitnað sérstaklega á
húsnæðislánum, s.s. á heimilum
og fyrirtækjum. Helsti vandinn við
verðtrygginguna er að hvatinn hjá
lánafyrirtækjum og hagstjórnum til
þess að halda verðbólgu lágri verður
mun minni og meiri líkur eru á því
að eignir fólks brenni upp. Ég tel að
það þurfi tvímælalaust að breyta eða
afnema verðtrygginguna þannig að
bæði lántakendur og lánveitendur
deili ábyrgðinni og koma þannig í
veg fyrir að forsendubrestur geti átt
sér stað. Það þarf að auðvelda lántak-
endum að leita réttar síns í kerfinu og
tryggja að þeir dómar sem kvaðnir
eru upp verði framfylgt, þ.e.a.s. Komi
lagalegur forsendubrestur í ljós á fjár-
málafyrirtækjum að vera skylt að bæta
upp það eignartjón sem þau hafa ollið.
3.
Ég vísa helst í svar mitt við spurn-
ingu nr 1. Ástæðan er margþætt en þá
helst vegna hækkandi útgjalda heimila
vegna húsnæðislána, húsnæðisleigu
og annarra skulda. Laun á íslandi eru
heldur ekki alveg í takt við það sem
er að gerast annað staðar í nágranna-
löndum okkar og vinnutími er lengri.
Á sama tíma er stór hluti af matvörum
og öðrum nytjavörum innfluttar og
íslendingar þurfa að greiða það sama
eða meira fyrir þessa hluti hér á landi
en í nágrannalöndum okkar. Við þetta
má bæta við að ríkissjóður skuldar
mikið og hafa stjórnvöld verið dug-
leg við að hækka gjöld og skatta á
almenning. Það þarf að skoða þessi
mál ítarlega og ekki gáfulegt að að-
eins stjórnmálamenn og forsvarsmenn
fjármálafyrirtækja sjái eingöngu um
að finna lausnir á því. Til þess þurfa
fleiri að koma að borðinu.
4.
Það er ekki til ein töfralausn svo koma
megi stöðugleika á gjaldmiðil þjóðar-
innar, hvort sem það heitir Kanada-
dollar, Evra eða Króna. Ég held að það
þurfi fyrst og fremst að draga úr mið-
stýringu á gjaldmiðlamarkaði og fjár-
málakerfið þarf að vera fjölbreytt svo
að við séum ekki að setja öll eggin í eina
körfu. Það þurfa margir að koma að
borðinu til þess að móta lausnir á þessu
málum og auka þarf ákvarðanatöku
almennings þar sem þessi mál snerta
hvern og einn á grundvallarstigum.
Hvaða lausnir hafa flokkarnir?
Frambjóðendur eru duglegir að skrifa greinar til birtingar í
fjölmiðlum en lítið fer fyrir spurningum til þeirra um helstu
mál þessara kosninga. Bæjarblaðið Kópavogur sendi því öllum
framboðum sem skiluðu inn framboðslista í suðvesturkjördæmi
spurningalista.
Forystumenn flokkanna fengu það verkefni að svara fjórum
spurningum sem hér eru tilteknar hér að neðan. Ekki bárust
svör frá Sjálfstæðisflokki, Hægri-grænum, Regnboganum né
Flokki heimilanna.
2.
Teljið þið nauðsynlegt að afnema
eða breyta verðtryggingunni? Ef svo
er hvaða leiðir viljið þið fara? Teljið
þið nauðsynlegt að lagfæra þann
eignabruna sem varð hjá skuldugum
heimilum vegna hárrar verðbólgu og
þar með hækkunar vísitölu í kjölfar
forsendubrests vegna hrunsins?
3.
Ný lífskjarakönnun sýnir að tæpur
helmingur heimila nær vart eða ekki
saman endum milli mánaða. Hvaða
ástæður telur þinn flokkur vera fyrir
þessari stöðu?
4.
Eigum við á nýju kjörtímabili að vinna
að því að koma upp nýjum og stöðugri
gjaldmiðli en óverðtryggðu íslensku
krónuna.? Greinið frá útfærslu ykkar
á því
X2013
X2013
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is.