Kópavogur - 26.04.2013, Side 9

Kópavogur - 26.04.2013, Side 9
926. apríl 2013 Stórmót í blaki fer fram í Kórnum Stórviðburður fer fram í Kórnum dagana 28. – 30. apríl næstkomandi þegar 38. öldungamót Blaksambands Íslands fer fram. Á mótinu sem ber að þessu sinni nafnið HKarlinn 2013 keppa 1200 þátttakendur úr 144 liðum víðsvegar að af landinu. Búast má við að mótið sé einn fjölmennasti íþróttaviðburðurinn sem haldinn er í Kópavogi þetta árið. Blakdeild HK er gestgjafi mótsins og formaður deildarinnar, Hrafn- hildur Theódórsdóttir er þessa dag- ana að skipuleggja þetta stóra mót. Blakgólf verður lagt á gólf knatt- hússins í Kórnum og spilað verður allt mótið innan veggja Kórsins. Að sögn Hrafnhildar hefur það aldrei verið gert áður hérlendis. ,,Við réðumst í það verkefni að breyta knatthúsinu í fjölnota íþróttahús,‘‘ segir hún. Spilaðir verða yfir 430 blakleikir á 13 völlum. Þar af verða sjö vellir eftir endilöngum grasvellinum og sex vellir inni í íþróttasalnum. Þannig er hægt að hafa þetta risavaxna mót allt á einum stað en undanfarin ár hefur mótið farið fram í nokkrum íþróttahúsum samtímis vegna fjölda þátttakenda. Mikil spenna er því ríkjandi hvernig til muni takast. Öldungamótið er ætlað blakiðk- endum sem náð hafa 30 ára aldri og er haldið árlega víðsvegar um landið. LHÞ Guðmundur steingrímsson, Bjartri framtíð: 2 Við teljum það algjört forgangsmál að koma Íslandi út úr verðbólguum- hverfi og mynda stöðugt efnahags- umhverfi, þar sem verðtryggingin verður óþörf og hægt er að fá óverð- tryggja húsnæðisvexti á viðunandi kjörum til langs tíma. Það er leið A. Allt annað er plan B, næstbesta leiðin. VIð eigum ekki að sætta okkur við hana. Vandinn við að lagfæra eigna- bruna skuldugra heimila, er að þau heimili sem eru skuldugust eru jafn- framt þau eignamestu og með mestu ráðstöfunartekjurnar. Almenn leið- rétting á höfuðstól lána færi því að mestu til fólks sem er ekki í greiðslu- vanda. Verðbólga gæti aukist í kjöl- farið sem aftur myndi gera vanda fólks í greiðsluvanda enn verri. En aftur segum við: Að sjálfsögðu viljum við hjálpa fólki sem er í vandræðum. Almenn leiðrétting er þó líklega ekki besta leiðin til þess. 3 Lán eru of dýr vegna þess að áhættan í hagkerfinu er of mikil. Það er algjört forgangsatriði að laga það, koma á stöðugleika með nýjum gjaldmiðli, auknu verðmæti útflutnings, aðhaldi í ríkisfjármálum og pólitískri sátt um langtímamarkmið í efnahagsmálum. Auk þess er verðlag of hátt. Það er m.a. vegna þess að opið samkeppnis- og markaðsumhverfi skortir. Þá þurfa atvinnutækifæri að vera fjölbreytt og verðmæt störf þurfa að verða til í meiri mæli. Björt framtíð er með plan í þeim efnum. Auk þess þarf að efla fjármála- læsi á Íslandi sem hjálpar fólki að vinna betur úr þröngum fjárhagsaðstæðum, sem og neytendavitund. En lykilatriðið er að bæta kjör. Þau hrundu í hruninu. 4 Björt framtíð vill klára aðildarviðræð- urnar við ESB og landa það góðum samningi að þjóðin geti samþykkt hann. Skömmu síðar er hægt að fara í gjaldmiðilssamstarf við evrópska seðlabankann í gegnum ERM II, sem heldur genginu stöðugu innan vik- marka. Þegar réttar aðstæður skapast er svo hægt að taka upp evru. Lýður Árnason, Lýð- ræðisvaktinni: 2 Lýðræðisvaktin vill afnema/breyta verðtryggingunni í núverandi mynd þar sem hún tekur bara til lánveitenda, ekki látakaenda. Lýð- ræðisvaktin vill sanngjarna áhættu- dreifingu milli lánþega og lánveit- enda, svo að lántakendur skaðist ekki, þegar kaupmáttur launa minnkar og lánveitendur haldi sínu, þegar kaup- máttur launa vex. Þetta væri hægt að gera með því að endurreikna höfuðstóll verðtryggðra á grundvelli nýrrar vísitölu aftur í tímann, t.d. frá og með hruninu 2008, og rétta þannig hlut heimilanna. Aðrar leiðir eru líka færar að sama marki, t.d. viðmiðun húsnæðislána við verðbólgumarkmið Seðlabankans frekar en við núgildandi verðvísitölu. Kosti og galla ólíkra leiða og kostn- aðinn, sem af þeim leiðir, þarf að vega og meta. Lýðræðisvaktin telur mikinn akk í því fyrir þjóðfélagið að ná skuldugu heimilum aftur inn í hagkerfið, Lýðræðisvaktin viðurkennir þann forsendubrest sem varð en varar um leið við að kjósa yfir sig aftur Hrun- flokkana þrjá sem gengu á þessum viðsjárverða tíma erinda fjármagns- eigenda en ekki heimilanna í landinu. 3 Ástæður þess, hversu mörg heimili ná varla endum saman, eru einkum tvær: (1) Hrunið, sem Sjálfstæðis- flokkurinn, Framsókn og einnig Samfylkingin bera höfuðábyrgð á, og (2) langvarandi óstjórn í efna- hagsmálum, sem allir gömlu flokk- arnir bera sameiginlega ábyrgð á. Þess vegna vill Lýðræðisvaktin veita gömlu flokkunum hvíld eða a.m.k. létta af þeim þungum byrðum. Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sókn afhentu vinum sínum bankana á silfurfati 1998-2003, og vinirnir keyrðu bankana í kaf og efnahags- lífið fram af hengiflugi 2008. „Enginn gekkst við ábyrgð,“ sagði formaður Rannsóknarnefndar Alþingis að loknum yfirheyrslum yfir 147 meintum hrunverjum. Sjálfstæðis- flokkurinn og Framsókn hafa ekki enn beðist afsökunar á sínum þætti hrunsins. 4 Nýja stjórnarskráin kveður á um, að aðild að ESB og þá um leið upptaka evrunnar verði ákveðin í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Mál, sem þjóðin ræður til lykta í þjóðaratkvæða- greiðslu, þurfa ekki og eiga ekki að koma til kasta Alþingis, þar eð þjóðin er yfirboðari þingsins, eins og stendur skýrum stöfum í nýju stjórnarskránni. Þess vegna hefur Lýðræðisvaktin ekki tekið ákveðna stefnu í gjaldmiðils- málinu. Lýðræðisvaktin mun virða stjórnarskrárbundna verkaskiptingu þings og þjóðar og lúta niðurstöðu allra þjóðaratkvæðagreiðslna, einnig um nýjan gjaldmiðil. Eygló Harðardóttir, Framsóknarflokki: 2 Já, Framsóknarmenn vilja afnema verðtryggingu á nýjum neytenda- lánum. Aðeins þannig rjúfum við þann vítahring verðbólgu og skuldasöfnunar sem sligar heimilin. Innleiða þarf nýtt húsnæðiskerfi þar sem fólk með verð- tryggð lán getur skipt yfir óverðtryggð, lántakendum bjóðast stöðugir vextir og áhættunni er skipt eðlilega á milli lán- veitenda og lántaka. Vextir eru verð á peningum. Núverandi lánafyrirkomu- lag felur raunverulegan kostnað lán- anna og skekkir eðlilega verðmyndun á peningum. Því verður að breyta. 3 Heimilin eru gangverk efnahagslífsins. Ef þau eru að drukkna í skuldum geta þau ekki keypt vöru eða þjónustu. Fyr- irtæki geta þá ekki hækkað laun, ráðið nýja starfsmenn eða fjárfest í nýjum atvinnutækifærum. Tekjur ríkissjóðs standa þá í stað eða dragast saman og við getum ekki tryggt velferðina. Þess vegna hafa fjárfestingar í atvinnulífinu verið í algjöru lágmarki, þess vegna ganga spár um hagvöxt ekki eftir og þess vegna nær tæpur helmingur heim- ila vart eða ekki saman endum milli mánaða. 4. Framsóknarmenn telja að íslensk króna verði gjaldmiðill landsins í nálægri framtíð og vilja efla umgjörð hennar. Undir þetta tók samráðshópur allra þingflokka um gjaldmiðlastefnu. Því þarf að endurskoða umgjörð peninga- stefnunnar, til að tryggja meiri stöð- ugleika og koma í veg fyrir óeðlilegar sveiflur í gengi íslensku krónunnar. Fuglatalning í sumar Umhverfis- og samgöngunefnd bæjarins hefur samþykkt að hafin verði fuglatalning í voginum Kópavogi í sumar. Fyrir skömmu barst erindi frá Jóhanni Óla Hilmarssyni fuglafræðingi og Ólafi Einarssyni líffræingi um mikilvægi á fuglavöktun í Kópavogi. Nefndin leitaði álits Nátturufræðistofu Kópa- vogs og að teknu tilliti til gagna frá Náttúrufræðistofunni tekur umhverfis og skipulagsnefnd undir mikilvægi fuglatalningar í landi Kópavogs. Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is.

x

Kópavogur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.