Kópavogur - 26.04.2013, Qupperneq 12

Kópavogur - 26.04.2013, Qupperneq 12
12 26. apríl 2013 Ævintýri húsmóðurinnar HK margfaldir meistarar í blaki Karlalið HK í blaki tryggði sér Íslandsmeistaratitil-inn annað árið í röð fyrr í mánuðinum. HK sigraði KA 3 – 1 í úrslitaleiknum sem fram fór í Fagra- lundi. Mikil stemning var ríkjandi og troðfullt hús stuðningsmanna. KA vann fyrstu hrinu en HK vann þá næstu með miklum yfirburðum. HK vann svo næstu tvær hrinur og tryggði sér þannig titilinn. Lið HK hefur unnið alla þá titla sem í boði hafa verið á keppnistímabilinu sem er að ljúka og eru því deildarmeistarar, bikarmeistarar og Íslandsmeistarar. Þjálfari liðsins er Elsa Sæný Val- geirsdóttir og fyrirliði er Brynjar J Pétursson. Kvennalið HK fagnar einnig góðum árangri í blaki en liðið fagn- aði bikarmeistaratitlinum í mars- mánuði þegar stúlkurnar sigruðu Þrótt Neskaupstað 3 – 2. Þjálfari kvennaliðsins er Natalia Ravva og fyrirliði er Laufey Björk Sigmunds- dóttir. Þess má einnig geta að HK eru Íslandsmeistarar í 2. flokki karla og kvenna og í 3. flokki karla. Það má því með sanni segja að HK sé stór- veldi í blaki. LHÞ -á kosningavakt- Það hefur ekki farið fram hjá mörgum að alþingiskosn-ingarnar eru að skella á. Hvort sem sóst er sérstaklega eftir því að fylgjast með öllum umræðuþáttunum í sjónvarpinu, greinunum í blöðunum, fréttunum í útvarpinu eða áróðrinum í bæklingunum þá kemst enginn hjá því að vera minntur á það. - Nema kannski ef viðkomandi er staddur á Suðurpólnum eins og íslenska hetjan okkar var fyrir skömmu. Verðskuldað atkvæði Húsmóðirin hefur alltaf vandað sig við að taka vel upplýsta ákvörðun um hvernig hún ver sínu atkvæði og mætir að sjálfsögðu alltaf á kjörstað. Í aðdraganda þessara kosninga hefur hún þó átt erfitt með að taka ákvörðun um hver verðskuldi atkvæði hennar. Fjöldi framboða og misvísandi skila- boð hafa skapað ringulreið í huga húsmóðurinnar skipulögðu og því taldi hún að grípa þurfti til róttækra aðgerða. – Nú skyldi stefnan vera tekin á að hitta þessa frambjóðendur í eigin persónu og taka meðvitaða ákvörðun!! Prúðbúnir frambjóðendur Viku fyrir kosningar skundaði húsmóðirin af stað. Hún klæddi sig í sumarkápuna sína, setti á sig nýja, bleika klútinn og fór í svörtu leður- stígvélin sín. Á stóra fjölskyldubílnum hófst leitin af frambjóðendum. Leiðin lá í Smáralindina, enda öruggt að mati húsmóðurinnar að þeir söfnuðust fyrir þar. Naglann hitti hún á höfuðið þar því prúðbúnir frambjóðendur með bros á vör kepptust við að bjóða henni bæklinga í öllum regnbogans litum. Húsmóðirin setti upp gáfulega svip- inn sinn og bjó sig undir spekings- legar spurningar til frambjóðendanna sem töluðu hver í kapp við annan. ,,Hvernig ætlar þú að leysa skulda- vanda heimilanna,‘‘ spurði hún svo. Tónleikar í beinni Hver frambjóðandi á fætur öðrum setti sig í stellingar til að svara þessu. En svarinu náði hún engan veginn því í sama mund dundi við hávært gítarsóló, fagnaðarlæti og söngur því einn vinsælasti söngvari landsins hafði stigið á svið þar rétt hjá. Trommur og bassi bættust við og því ómögulegt með öllu að halda uppi spjalli við þetta hefðarfólk. Í stað þess að rembast eins og rjúpan við staurinn að fylgja spurn- ingunni eftir og ráða í svörin, staldraði húsmóðirin frekar við og naut þess að hlusta á þessa skemmtilegu tóna sem ómuðu um húsið. Lausnamiðuð húsmóðir Magaverkir fóru fljótlega að gera vart við sig hjá húsmóðurinni og eftir á að hyggja hafði ekki verið snjallt að gúffa í sig lakkrískonfektinu í bílnum á leiðinni. Eftir bestu getu reyndi hún að halda aftur af loftinu sem reyndi sífellt meira að komast út um óæðri endann. Tónlistin var að ná hámarki og stemningin var góð. Greinilegt var að söngvarinn var ekki vinsæll að ástæðulausu. Þar sem húsmóðirin hefur alltaf verið einstaklega lausna- miðuð og í ljósi þeirra vindverkja sem kvöldu hana datt henni snilldarráð í hug. – Leysa loftið úr læðingi meðan tónlistin dundi sem hæst! Skammvinn gleði Einhvern veginn tókst húsmóður- inni að þjappa loftinu saman og lét svo vaða. Vá, hvað það létti mikið á maganum, þetta er allt annað, hugsaði húsmóðirin hróðug með sér. Gleðin yfir útsjónarseminni var þó frekar skammvinn. Um leið og vindurinn leitaði sér útgöngu úr líkama húsmóð- urinnar, stoppaði tónlistin. Þögn skall á og því heyrðist vel um víðan völl hátt og hvellt prumphljóð og ekki fór á milli mála hvaðan það kom. Frambjóðendurnir litu undrandi á húsmóðurina og gerðu sitt besta til að halda andlitinu, enda líklega orðnir vanir því. Aðdáendur söngvarans sem höfðu horft á hann með tilbeiðslu- svip snéru sér hins vegar við og horfðu undrandi á húsmóðurina, enda ekki með sömu þjálfun í að halda andlitinu. Söngvarinn vinsæli fór hins vegar að skellihlæja og kallaði upphátt; ,,gefið konunni með bleika klútinn gott klapp fyrir flott sóló!‘‘ Taktfast klapp Með ótrúlegri ró og yfirvegun gerði húsmóðirin sitt besta að halda reisn sinni þó hana langaði mest af öllu til að hverfa af yfirborði jarðar. Hún gekk því hnarreist á brott undir takt- föstu klappi og blístri viðstaddra og sagði um leið; ,,ohhh, ég verð að fara að breyta um hringitón í símanum mínum.‘‘ Svörin við spurningunni til fram- bjóðendanna fékk húsmóðirin í umræðuþáttunum í sjónvarpinu, greinunum í blöðunum, fréttunum í útvarpinu og áróðursbæklingunum sem komu inn um bréfalúguna. Húsmóðirin deilir ævintýrum hversdagsins með lesendum blaðsins. Mynd:Þorsteinn G Guðmundsson Óskum öllum launþegum á Íslandi til hamingju með baráttudag verkalýðsins 1. maí MÁLTÍÐ MÁNAÐARINS Á KFC 90568 • P ipar • S ÍA 899krónur Aðeins + + Meltz franskar gos gerðir í boði sweet chili bbq TRANS- TAFI ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðhe ra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við sty jum eilshugar v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útveg mannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Hornafjarðar ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshugar v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Stálskip ehf Hvalur Félag hrefnuveiðimanna Útvegsmannafélag Hafnarfjarðar Hafmeyjan ákvörðun fyrrverandi sjávarútvegsráðherra um auknar hvalveiðar til styrktar íslensku atvinnulífi, enda stuðla sjálf- bærar hvalveiðar að jafnvægi í lífríki sjávar. Við styðjum heilshug r v ið s k ip t a b la ð ið / a x e l jó n / 0 2 0 2 2 0 0 9 Verkalýðsfélag Akranes Útvegsmannafélag Reykjavíkur Útvegsmannafélag Hornafjarðar Smiðjuvegi 48 200 Kópavogur Sími 567 0790 lakkhusid@lakkhusid.is ÞEKKING - ÞJÓNUSTA www.lakkhusid.is Fyrir heimili - húsfélög - fyrirtæki Úrval slökkvitækja. Leitið tilboða! Dalvegi 4 - 201 Kópavogur Hamraborg 14 - 200 Kópavogur Sími: 564 4700 Hjartabrauð Þitt hjartans mál...í hvert mál...

x

Kópavogur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kópavogur
https://timarit.is/publication/987

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.