Selfoss - 18.10.2012, Qupperneq 8

Selfoss - 18.10.2012, Qupperneq 8
8 18. október 2012 Þjóðaratkvæðagreiðsla um frumvarp til stjórnskipunarlaga: FÚSK EÐA TIL FYRIRMYNDAR Líklegt er að niðurstöður í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag muni verða pólitísku marki brenndar fremur en að upplýst þjóð segi álit sitt. Þingskjal 1398, 138. löggjaf-arþing 112. mál: framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslna (heildarlög). Lög nr. 91 25. júní 2010. Lög um framkvæmd þjóðarat- kvæðagreiðslna. 1. gr. Álykti Alþingi að fram skuli fara almenn og leynileg þjóðaratkvæða- greiðsla um tiltekið málefni eða lagafrumvarp fer um framkvæmdina samkvæmt lögum þessum. Niður- staða slíkrar atkvæðagreiðslu er ráð- gefandi ... Þannig hljóðar upphaf laga um þjóðaratkvæðagreiðslu – eins og þá sem fram fer á laugardaginn. Í núgildandi stjórnarskrá segir ekk- ert um þjóðaratkvæðagreiðslur. Það er rangt sem haldið er fram að þjóðaratkvæðagreiðslan um tillög- ur Stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga (eins og segir á kjörseðlinum) sé einhvern veginn öðruvísi en þjóðaratkvæðagreiðsla geti verið eða eigi að vera. Það var Alþingi sjálft sem samþykkti að atkvæðagreiðslan skyldi vera ráðgefandi. Það er ekki við aðra að sakast. Það er heldur ekki þannig að ráðgefandi atkvæðagreiðsla sé ómerkilegri en önnur atkvæðagreiðsla. Alþingi er og verður æðsta löggjafarsamkoma þjóðarinnar. Rétt er að drattast á kjörstað til að segja nei Formaður Sjálfstæðisflokksins tekur meðal annarra undir þær vangaveltur sem fjalla um að þjóðaratkvæða- greiðslan skipti ekki svo miklu máli. Rétt sé þó að drattast á kjörstað (fólk ætti að mæta á kjörstað) ... jafnvel þótt ekki sé um EIGINLEGA (leturbr. ÞHH) þjóðaratkvæðagreiðslu að ræða, þar sem mál er til lykta leitt, heldur ráðgefandi kosningu (eins og segir í netbréfi til samherja frá formann- inum). Þetta eru skilaboðin til þjóðar- innar sem tók þátt í þjóðfundi og til þeirra þúsunda sem hafa lagt sig fram um að hafa skoðanir á því hvernig stjórnskipun skuli vera í landinu. Það tekur enginn völdin af Alþingi, æðstu löggjafarsamkomu þjóðarinnar. Þess vegna er atkvæða- greiðslan á laugardag ráðgefandi. Alþingi ákvað spurningarnar Það er ekki við Stjórnlagaráð að sak- ast. Ráðsmenn gátu ekki ákveðið að niðurstöðurnar í þjóðaratkvæða- greiðslunni yrðu bindandi fyrir land og þjóð. Meira að segja var það Alþingi Íslendinga sem ákvað hvaða spurningar skyldu lagðar fyrir þjóðina á laugardaginn. Það var ekki Stjórnlagaráð sem ákvað þær. Og röðun spurninganna er ekki þeirra verk. Í dag er umræðan hvað mest um það hvað NEI eða JÁ við fyrstu spurningunni þýði. Ef fólk segir JÁ er það þá að samþykkja allar greinar í tillögum Stjórnlagaráðs. Þannig er reynt að túlka það. JÁ-svar er vissulega leiðbeinandi og alþingis- menn munu taka tillit til þess. Eins er um Nei-svar. Það er auðvitað ekki hægt að hundsa það sem kjósandi mun gera. Fúsk eða til fyrirmyndar Það sem ég og væntanlega fleiri óttu- mst er að skotgrafir flokkanna muni túlka niðurstöðurnar eftir flokkslín- um. Línan er útgefin fyrirfram eins og sjá má af viðbrögðum sumra foystumanna flokkanna. Áðurnefnd- ur formaður Sjálfstæðisflokksins gef- ur afdráttarlaust í skyn að ... óþarfi sé að taka stjórnskipunina til heildstæðrar endurskoðunar, enda hafi meginstoðir hennar reynst vel (eins og segir í netbréfi til samherja frá formanninum). Niðurstöður Stjórnlagaráðs eru heildarendurskoðun á stjórnskip- uninni. Hver einasta grein er í sam- hengi við þá heildarsýn sem speglast í verkum og tillögum ráðsmanna. Samkvæmt þessu er lyfseðill for- mannsins til sjálfstæðismanna (og annarra) að hafna skuli tillögunum. Og hvernig sem fer er stefnan tekin á að efnið skuli ekki skoða í heild sinni. Það sé óþarfi. Formaðurinn leyfir sér að kalla verk Stjórnlaga- ráðsmanna FÚSK. Fólk eigi að flykkjast á kjörstað til að koma í veg fyrir að fúskið ráði ekki för, eins og formaðurinn komst að orði. Sr. Baldur Kristjánsson sem ritar grein í Selfoss-Suðurland í dag kemst að annarri niðurstöðu en formaður Sjálfstæðisflokksins. Baldur telur að drög Stjórnlagaráðs myndu sóma sér vel sem stjórnarskrá lýðveldisins Íslands. Hefði átt að spyrja annarra spurninga? Menn geta haft skoðanir á því hvort önnur atriði í tillögum Stjórnlaga- ráðs hafi lýst betur andanum í tillög- um ráðsins en það sem fram kemur í spurningunum sem eru lagðar fyrir þjóðina á laugardaginn. Kosningin á laugardag er áfangi á leið. Þjóðin sjálf í gegnum Þjóðfund kom að endurskoðunarvinnunni, þúsundir hafa tjáð sig á netheimum og í öðr- um miðlum, á alls kyns samkomum, 525 manns (þar af 46 úr Suðurkjör- dæmi) buðu sig fram í kosningum til Stjórnlagaþings (sem síðar varð að ráði) og 25 manns í Stjórnlagaráði tóku að sér heildarskoðun á stjórn- arskránni í ljósi mikilla gagna sem sköpuðust á þeim vettvangi sem á undan var genginn og meðan á starfi ráðsins stóð. Sérfræðingar voru kall- aðir til og samanburður var gerður á íslensku stjórnarskránni og stjórn- skipun annarra landa. Hægt er að öðlast innsýn í starf Stjórnlagaráðs með því að rýna í fundargerðir þess. Fundir þess voru opnir og aðgangur að efni. Skilaboðin hafa verið skýr – og við taka samræður Viðbrögð talsmanna Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins eru á svipaða lund. Líklegast er að niður- stöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag verði fremur gæddar sterk- um pólitískum lit en að þær byggist á ígrunduðum athugunum og bolla- leggingum. Það styttist í Alþingiskosn- ingar og eru margir komnir í próf- kjörsham. Að loknum kosningunum á laugardag taka við samræður á Al- þingi Íslendinga til að leiða málið – og væntanlega - til lykta með endanlegu lagafrumvarpi að nýrri stjórnarskrá. Skilaboð þúsunda úti í þjóðfélaginu hafa verið skýr. Alþingismenn þurfa að skilja þau og skilgreina þau og gefa öllum færi á að gera upp hug sinn í at- kvæðagreiðslunni. Forystumenn stóru stjórnarandstöðuflokkanna virtust ætla að hundsa þjóðaratkvæðagreiðsl- una (og hvetja aðra til þess sama) en hafa nú snúið við blaði. Hvetja fólk til að taka þátt í fúskinu og segja nei. Því miður bendir flest til að niður- stöður í þjóðaratkvæðagreiðslunni um endurnýjun stjórnarskrár muni fremur spegla átök milli stjórnmálaflokka en að upplýst þjóð gangi að kjörborði til að láta í ljós álit sitt á hvort og hvernig stjórnskipan og áherslur þjóðar í mik- ilvægum málaflokkum; um auðlindir, mannréttindi og miklu fleira skal verða leiðarvísir að nýju samfélagi. Fréttaskýring: Þorlákur Helgi Helgason Þjóðaratkvæðagreiðsla á laugardag

x

Selfoss

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.