Selfoss - 26.09.2013, Blaðsíða 6

Selfoss - 26.09.2013, Blaðsíða 6
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á Legur og drifbúnaður Verkfæri og öryggisvörurLoft- og vökvakerfi 26. september 20136 Hamarskorið hægra, heilt vinstra... Staldrað við í Ölfusréttum Tímarnir breytast. Ölf-usréttir voru haldnar sl. mánudag. Margt um manninn og ríflega hálft þúsund fjár ef glöggur heimildarmaður hefur rétt fyrir sér. Klukkan 2 var tekið til við að reka inn og draga í dilka. Handagangur í öskjunni við að koma síðustu gripunum í al- menninginn. Þannig var það líka í Ölfusréttum um miðja síðustu öld. Árið er 1957 og líklega aldrei fleira fé að mati Eyjólfs á Þurá sem ræddi við tíðindamann Alþýðublaðsins, Unnar Stefánsson úr Hveragerði. Eyjólfur var að fara 84. árið í rétt- irnar! 1957 var féð saman komið úr þremur leitum, Austurleit, Miðleit og Vesturleit. Austurleit mun hafa farið eftir Arnarbælissókn, Miðleit eftir Reykjasókn og Vesturleit eftir Hjallasókn. Leitarsvæðið náði yfir Ingólfsfjall að austan, Reykjafjöll- in, Hengil og allt norður í Borg- arhóla á Mosfellsheiði og niður í Bolaöldu fyrir ofan Fóhelluvötn á Sandskeiði. Í vestur var farið að Geitafelli. Smölunin tók venjulega 3 daga og var lagt af stað sunnudagskvöld. Var þá riðið suður á Hól (Kolvið- arhól). Þar var áður gist en 1957 er næturstaðurinn Skíðaskálinn í Hveradölum. Tíðindamaður blaðsins segir að fyrst á vettvang hafi verið börnin úr Hveragerði sem komu hlaupandi. Þegar dráttljóst varð tók fólk að streyma í réttirnar á jeppabílum, vörubílum og nýjum fólksbílum. Nokkrar dráttarvélar hafi sést og margir hnarreistir öldungar hafi komið upp á gamla móðinn á reið- skjótum sínum og enn aðrir gang- andi. Eyjólfur á Þurá í sömu réttum í 84. sinn og fáir jafnsprækir. Reykvíkingar áttu um 300 fjár í Ölfusréttum 1957 og fluttu það í sjö stórum vörubílum til Reykjavík- ur. Auk þess eiga Grafningsmenn feikilega margt fé í Ölfusréttum. Þetta var 27. september 1957. Ekki verður sagt að það hafi verið feikilega margt fé í Ölfusréttum 23. september 2013. En réttirnar eru tákn þess gamla og nýja. Smalað, rekið inn og dregið í dilka. Hver á sitt mark og þess er vandlega gætt í Landmarkaskrá fyrir allt Ísland. Ég minntist þess að mitt mark aust- ur á Síðu var hamarskorið hægra og heilt vinstra. Það er gott mark, sagði Ólafur Dýrmundsson ráðu- nautur við mig í Ölfusréttum. ÞHH

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.