Selfoss - 26.09.2013, Side 9
926. september 2013
myndir um skipulag og hönnun
svæðisins,“ segir Drífa Kristjánds-
dóttir, oddviti Bláskógabyggðar.
„Ég tel þetta tímamót að auglýst
hafi verið hugmyndasamkeppni
um Geysissvæðið. Nú liggur fyrir
að menn eru að sameinast um að
leggja því svo lið að byggja svæðið
upp og koma því í fallegt horf. Upp-
bygging þjónustuaðila hefur verið
aðdáunarverð og metnaðarfull og
þeir sinna gestum mjög vel.,“ segir
Drífa.
Talið er að um hálf milljón ferða-
manna sæki Geysisvæðið heim á
hverju ári. Ferðamannastraumurinn
eykst gríðarlega og mikið álag er á
umhverfið. Allt að 6 þúsund manns
koma daglega þegar mest lætur.
Keppendur þurfa að taka mið af
mögulegri gjaldtöku í framtíðinni.
Dómnefndin leggur m.a. áherslu á
aðkomu og ásýnd svæðisins og flæði
innnan þess. Virðingu beri að hafa
fyrir umhverfinu: Tekið er fram í
útboðsgögnum að það verði að stýra
aðgangi inn á svæðið til að tryggja
að viðkvæmu svæði verði hlíft. Þá
séu aðstæður breytilegar eftir árstím-
um. Allt þetta og meira til verði að
hyggja að ... en tillögurnar verði
að vera raunhæfar og framkvæman-
legar. Ýmsar gagnlegar upplýsingar
er að finna í samkeppnisgögnum svo
sem um veðurfar, jarðveg og gróður.
Samkeppnin er hugmynda-
samkeppni. Fyrstu verðlaun eru 4
milljónir króna og er stefnt að því
að handhafar fyrstu verðlauna verði
fengnir til að útfæra verkið nánar.
Skilafrestur tillagna er til 30. janúar
2014 og niðurstaða dómnefndar á
að liggja fyrir 6. mars 2014.
Samkeppnin fer fram í samvinnu
við Arkitektafélag Íslands, Land-
eigendafélag Geysis ehf, ríkið og
Félag Landslagsarkitekta og allir
eiga fulltrúa í dómnefndinni. Sjá
frekar m.a. á vef Bláskógabyggðar,
www.blaskogabyggd.is
ÞHH