Vesturland - 27.03.2013, Síða 2

Vesturland - 27.03.2013, Síða 2
2 27. mars 2013 Vestlendingar með flott atriði á Söng- keppni Samfés Framlag félagsmiðstöðvarinnar Arnardals í Söngkeppni Samfés sem frám fór í Laugardalshöll- inni fyrir skömmu var skemmtilegt og afar fagmannlega flutt. Margrét Brandsdóttir söng lagið ,,Lífið er ljúft,” sem er lag eftir Guns n‘ Roses og ís- lenskur texti eftir Brand Sigurjónsson. Hljómsveitina skipuðu Nikulás Marel Ragnarsson á bassa, Aðalsteinn Bjarni Valsson og Kristinn Bragi Garðarsson á gítar, Ingibjörg Birta Pálmadóttir á hristur og Elvar Kaprasíus Ólafsson á trommukassa. Hjördís Tinna Pálma- dóttir sá um bakrödd. Frá félagsmiðstöðinni Afrepi í Snæfellsbæ kom Hlöðver Smári Oddsson sem flutti lagið ,,Einn með sjálfum mér” en textinn fjallar um lífsviðhorfið. Hlöðver Smári er afar fjölhæfur, semur lög og spilar í hljóm- sveit. Hann tekur þátt í trúbadora- keppni sem fram fer í Grundarfirði 16. apríl nk., en keppendur eru frá Rifi, Hellissandi, Grundarfirði og svo Hlöðver Smári frá Ólafsvík. Sóknaráætlanir landshluta eiga m.a. að leggja grunn að nýrri hugsun í byggðamálum - til Vesturlands fara 45,9 milljónir króna og með mótframlagi gera það 79,8 milljónir króna Undirritaðir hafa verið samn-ingar um sóknaráætlanir í átta landshlutum. Með samningunum er brotið í blað í sögu samskipta landshlutanna við Stjórn- arráðið að því er varðar úthlutun op- inberra fjármuna til einstakra verk- efna um land allt. Með samningunum er staðfest nýtt verklag sem einfaldar þessi samskipti, gerir þau skilvirkari og stuðlar að bættri nýtingu fjármuna. Markmiðið er að færa aukin völd og aukna ábyrgð til landshlutanna við forgangsröðun og skiptingu opin- bers fjár sem rennur til verkefna á sviði byggða- og samfélagsþróunar. Ríkisstjórnin tryggir á þessu ári 400 milljónir króna til verkefnanna sem samþykkt hafa verið en þau eru alls 73 í átta landshlutum. Mótframlag frá landshlutunum sjálfum nemur um 220 milljónum króna.Katrín Júlíusdóttir, fjármála- og efnahag- ráðherra, undirritaði samningana fyrir hönd ríkisstjórnarinnar en öll ráðuneytin hafa komið að málinu á ýmsum stigum þess. Svonefnt stýrinet er skipað fulltrúum allra ráðuneyt- anna auk fulltrúa Sambands íslenskra sveitarfélaga og Byggðastofnunar. Annast stýrinetið samninga, leiðsögn við áætlanagerðina og önnur sam- skipti við landshlutasamtökin þvert á öll ráðuneyti. Fyrir hönd lands- hlutasamtaka sveitarfélaga skrifuðu formenn hver undir sinn samning. Sóknaráætlanirnar urðu til innan samráðsvettvanga í hverjum lands- hluta. Landshlutasamtökin leiddu vinnuna en fulltrúar atvinnulífs, sveit- arstjórna, stofnana og samfélags tóku þátt. Áætlað er að allt að 800 manns hafi komið að gerð þeirra. Dreifnám í Dölum Til Vesturlands eiga að fara 45,9 milljónir króna úr sóknaráætlun. Meðal verkefna sem Ráðast skal í er Beint frá býli – mat- arsmiða, en opna skal matvælasmiðju í þeim tilgangi að bæða aðstöðu til matvælaframleiðslu bænda. Frá sókn- aráætlun koma 8 milljónir króna og sama upphæð sem mótframlag, eða samtals 16 milljónir króna. Einnig má nefna verkefnið Dreifnám í Dölum. Markmið verkefnisins er að ljúka greiningu og áætlanagerð um upp- byggingu dreifnáms í Dalabyggð og koma af stað dreifnámsdeild haustið 2013. Til þessa verkefnis koma 4 milljónir króna frá sóknaráætlun og mótframlag er 2 milljónir króna, eða alls 6 milljónir króna. Framtíðarsýnin með samningnum er m.a. að nýtt verklag muni skerpa og skýra samskipaferlið milli ríkis og sveitarfélaga og leggja grunn að nýrri hugsun í byggðamálum. Ánægjulegur áfangi í starfi Snorrastofu í Reykholti Sýningin Saga Snorra opnuð Laugardaginn 16. mars sl var blásið til opnunar nýrrar sýningar í Reykholti um Snorra Sturlu- son. Dagskráin hófst í Reykholtskirkju þar sem Snorri Hjálmarsson söngvari og Viðar Guðmundsson píanóleikari riðu á vaðið með laginu góðkunna um Snorra, ,,Þegar hnígur húm að þorra.” Því næst voru flutt nokkur ávörp í sam- spili við söng og hljóðfæraleik ásamt merkum listaverkagjöfum. Ávörp fluttu Björn Bjarnason formaður stjórnar Snorrastofu, Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra, Óskar Guðmundsson rithöfundur höf- undur sýningarinnar, Bergur Þorgeirs- son forstöðumaður Snorrastofu og sr. Geir Waage í Reykholti. Í athöfninni færði Guðmundur Einarsson leirkerasmiður Snorrastofu að gjöf frummyndina Sögumanninn eftir afa hans, Guðmund frá Miðdal, sem fyrst var sýnd árið 1955 og var endurgerð í fullri stærð síðar. Páll Guð- mundsson listamaður í Húsafelli af- henti stofnuninni að gjöf steinþrykk af Snorra Sturlusyni eftir hann sjálfan og lék Páll auk þess á panflautu, sem hann hefur sjálfur smíðað úr rabbarbara og hvönn. Viðar Guðmundsson lék með á hið sögufræga orgel kirkjunnar. Dag- skrárstjóri var Jónína Eiríksdóttir. Að því búnu var haldið niður í safn- aðarsal kirkjunnar, þar sem Katrín Jak- obsdóttir mennta- og menningarmála- málaráðherra klippti á borða og opnaði sýninguna, Sögu Snorra, sem segir í máli og myndum frá ævi og samtíð hins merka rithöfundar og höfðingja, sem sat staðinn fyrir um 800 árum. Í Gestastofu, sem rekin er á jarðhæð byggingarinnar gefur að líta fjóra nýja áfanga í starfi Snorrastofu, sem eins og fram kom í ávarpi forstöðumanns- ins, er fagnað um leið og sýningin er opnuð. Þar er um að ræða nýja lýsingu, sem Páll Ragnarsson hefur hannað og sett upp, ljósmyndasýningu Guðlaugs Óskarssonar, Perlur í Reykholtsdal, nýjar innréttingar verslunar Gestastofu og uppsetningu og merkingu legsteina úr Reykholtskirkjugarði, sem kenndir hafa verið við Húsfellinga, sem hjuggu þá og unnu. Allir þessir áfangar miða að því að bæta móttöku og þjónustu við gesti, sem sækja Reykholt heim. Kveðið skýrar á með rannsóknir Saga Snorra hefur verið lengi í un- dirbúningi og margir hafa komið að gerð hennar. Höfundur er Óskar Guðmundsson rithöfundur og aðal- hönnuðir Birna Geirfinnsdóttir og Lóa Auðunsdóttir. Einnig unnu að teikningu, hönnun, útskurði og málun þau Sigríður Kristinsdóttir hönnuður, Bjarte Aarseth útskurðarmeistari og Hallur Karl Hinriksson listmálari. Samtals komu um 40 aðilar að gerð hennar og uppsetningu. Í sýningar- rýminu var við þetta tækifæri un- dirrituð breytt stofnskrá Snorrastofu, en hana þurfti að endurbæta vegna breytinga sem orðið hafa á tilhögun sveitarfélaga frá því að hún var stofnuð árið 1995. Þá var kveðið skýrar á með þær rannsóknir, sem Snorrastofu ber að stuðla að. Sýningin verður opin alla daga sumarsins frá 1. maí kl. 10.00 -18.00 og virka daga kl. 10.00 -17.00 að vetrarlagi. Óskar Guðmundsson rithöfundur og höfundur sýningarinnar ásamt Hauki Júlíussyni frá móbergi á Barðaströnd, en hann rekur vinnuvélaverkstæði á Hvanneyri og hefur m.a. gert upp gamlar dráttarvélar og heyvinnslu- tæki. Páll Guðmundsson í Húsafelli lék á panflautu sem er smíðuð úr rabbar- bara og hvönn. Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, klippir á borða og opnar sýninguna með formlegum hætti. myndir/Guðlaugur Óskarsson. Hlöðver smári Oddsson frá afdrepi söng ,,Einn með sjálfum mér.” Gunnar sigurðsson, stjórnarformaður samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, undirritaði samninginn ásamt fulltrúum annara landshlutasamtaka og fjármála- og efnahagsráðherra, Katrínu Júlíusdóttur. margrét Brandsdóttir frá arnardal söng ,,Lífið er ljúft.”

x

Vesturland

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturland
https://timarit.is/publication/989

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.