Vesturland - 27.03.2013, Qupperneq 4
4 27. mars 2013
Unglingar í Borgarnesi sóttu námskeið í fjármálalæsi
Hjálmaklettur er menningarhús í Borgarnesi, rétt við Borgar-
fjarðarbrúna. Þar er m.a. starfsemi
Menntaskóla Borgarfjarðar til húsa.
Byggingin er glæsileg og skapar fal-
lega umgjörð utanum hvers kyns upp-
ákomur og viðburði. Þar er stór salur
með rúmgóðu sviði og vönduðum
tæknibúnaði. Veitingaaðstaða er góð,
anddyri rúmgott og bílastæði næg.
Húsið er staðsett að Borgarbraut 54 í
Borgarnesi. Menntaskóli Borgarfjarðar
starfar í húsinu og þar er einnig Dans-
skóli Evu Karenar til húsa og hljóðver
RUV á Vesturlandi.
Nýlega var Jón Jónson tónlistar-
maður og hagfræðingur þar á ferðinni,
ræddi um fjármál og söng nokkur lög.
Fjármálafræðsla Jóns var fyrir unglinga
á aldrinum 12 – 16 ára, lifandi og
auðskiljanleg fyrir þennan aldurshóp,
ekkert stofnanamál þar á ferðinni. Í
fræðslunni fór Jón yfir hvernig pen-
ingar virka, mikilvægi þess að setja sér
markmið og hvernig hægt er að láta
peninginn endast aðeins lengur. Þessi
fræðsla var á vegum Arionbanka og var
haldin á nokkrum stöðum á landinu
nú í mars. Efnið er byggt á bókinni
,,Ferð til fjár” eftir Breka Karlsson, for-
stöðumann Stofnunar um fjármálalæsi.
Það var stór hópur unglinga sem var
mættur til að hlusta á Jón og fá sér
pitsur sem runnu ljúft niður. Þegar
Jón hafði lokið fræðlunni tók hann
fram gítarinn og tók nokkur lög. Eftir
að hafa verið klappaður upp og tekið
aukalag ræddi hann við þá fjölmörgu
aðdáendur sína sem voru mættir í
Hjálmaklett og gaf eiginhanaáritanir.
Vesturland
3. tBl. 2. ÁrGanGur 2013
Útefandi: Fórspor ehf., Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík. Ábyrgðarmaður: Ámundi
Ámundason, auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason sími 824-2466, netfang
amundi@fotspor.is. auglýsingar: Sími: 578-1190 & netfang: auglysingar@fotspor.
is. ritstjóri: Geir A. Guðssteinsson, sími: 898-5933 & netfang: geirgudsteinsson@
simnet.is. umbrot: Prentsnið, Prentun: Ísafoldarprentsmiðja, 6.400 eintök. dreifing: Íslandspóstur.
Fríblaðinu er dreiFt í 6.400 eintökum í allar íbúðir á akranesi,
dreiFbýli á akranesi og í borgarnesi. blaðið liggur einnig Frammi
á helstu þéttbýlisstöðum á Vesturlandi
Þessu tölublaði VESTURLANDS fylgir úr hlaði nýr ritstjóri, sá sem undir þennan leiðara skrifar. Ætlunin er að auka vægi frétta af mannlífi og atvinnulífi á Vesturlandi, en einnig að segja frá því sem brottfluttir
Vestlendingar eru að fást við, og þá kannski helst að fylgjast með starfsemi
átthagafélaga. Það ætti að vera gagnkvæmt, brottfluttir vilja lesa fréttir úr
þeirra heimabyggð og eins vilja þeir sem búa á Vesturlandi vita hvað þeir eru
að fást við sem hafa hleypt heimdragann. Hér er notað tækifærið og fólk hvatt
til að láta vita þegar eitthvað skemmtilegt, og ekki síst menningarlegt, er að
gerast í þeirra heimabyggð. Öllum verður tekið vel. Skagamenn leika í efstu
deild karla sem kunnugt er en nú hafa Víkingar í Ólafsvík tekið sæti í deild
þeirra bestu í fyrsta sinn. Leikir þessa liða verða eflaust spennandi, bæði þegar
leikið verður á Akranesi og eins í Ólafsvík. Fyrir knattspyrnuþyrsta lesendur
skal bent á að fyrri leikur liðanna fer fram í Ólafsvík 30. júní.
Vesturland er landshluti á Íslandi sem venjulega er sagður ná frá Gilsfirði og
Holtavörðuheiði í norðri og norðaustri að Hvalfirði í suðri. Vesturland nær
þannig yfir Dalina, Snæfellsnes, Mýrar og Borgarfjörð auk Hvalfjarðar að
Botnsdal. Þetta eru ekki ný sannindi fyrir þá Vestlendinga sem þetta lesa en
þróun íbúafjölda á þessu svæði er kannski ekki öllum eins ljós. Árið 1920 búa
á Vesturlandi samkvæmt manntali 10.167 manns sem þá var 10,77% alls íbúa-
fjöldans á Íslandi. Síðan þá hefur orðið nokkur mannfjöldaaukning, en ekki
mikil, en árið 2010 var íbúafjöldinn orðinn 15.370 manns, en kominn niður
í 4,84% af heildaríbúatölu landsins.Þannig má segja að nokkur stöðugleiki
hafi verið í íbúafjöldanum en vegna mikillar aukningar á íbúatölunni á höf-
uðborgarsvæðinu hefur hlutfallið snarminkað. Borgarfjörðurinn hefur alltaf
verið búsældarlegur, mjólkurframleiðsla mikil og allmikill sauðfjárbúaskaður
svo hlutfall þeirra jarða sem hafa farið í eyði í uppsveitum Borgarfjarðar er
líklega mun lægra en víða annars staðar á landinu.
Starfsemi Menningarráðs Vesturlands endurspeglar nokkuð blómlegt menn-
ingarlíf á Vesturlandi, en á þessu ári var úthlutað styrkjum að upphæð lið-
lega 24 milljónir króna. Þrír styrkir ná einni milljón króna. Árnastofnun,
Byggðasafn og héraðsskjalasafn í Dalabyggð, og Nýpurhyrna á Skarðsströnd
fá styrk til að vinna að því að fá handritin alla leið heim. 350 ár eru liðin frá
því Árni Magnússon fæddist að Kvennabrekku. Rímnahandrit sem kennt er
við Staðarhól verður endurgert og sýnt og því fylgja margvísleg hátíðarhöld.
Íslenskir Eldsmiðir fá styrk til að halda norrænt mót í eldsmíði að Görðum
á Akranesi og Markaðsstofa Vesturlands fær svokallaðan RARIK-styrk til að
markaðssetja menningarstaði og menningartengda ferðaþjónustu. Ekki veitir
líklega af, ef tala erlendra ferðamanna nær einni milljón á ári innan skamms
tíma. Ferðamenn verður þá víða að sjá á Vesturlandi og ferðamannatíminn
mun væntanlega að skapi lengjast umtalsvert. En böggull kann að fylgja
skammrifi ef ekki er þess gætt að vernda landið fyrir ágangi. Hætt er við að
á ýmsa rynnu tvær grímur ef þúsundir manna væri að rölta um Dritvík á
einum og sama deginum, skoða Reykholt eða ganga á Baulu eða Ok. Ekki er
ráð nema í tíma sé tekið.
Geir A. Guðsteinsson, ritstjóri
Mannfjöldi, ferðafólk,
menning og íþróttir
Leiðari
Það þarf heilt þorp…..
Þriðjudagskvöldið 19. mars sl. fór fram fundur um eineltis-mál sem bar heitið ,,það þarf
heilt þorp til að ala barn” og fór hann
fram í Hjálmakletti í Borgarnesi. Hann
hófst með stuttmynd um Pál Óskar
söngvara þar sem hann segir frá æsku
sinni og því einelti sem hann varð
fyrir sem barn og unglingur. Hann og
Magnús Stefánsson frá Marína fræðsl-
unni ræddu um myndina, einelti og
forvarnir. Fyrirspurnir voru síðan
nokkrar úr sal þar sem þeir svöruðu
af bestu getu. Boðið var upp á dýrindis
súpu og brauð og eftir það fóru börnin
og unglingarnir heim eða í Óðal að
horfa á kvikmynd. Síðan var komið að
fyrirlesurum og fræðurum frá Bugli
og Heimili og skóla.
Mikill fjöldi fólks sótti þennan
fund, eða um 500 manns. Það voru
þær Kristín Gísladóttir og Sigrún
Katrín Halldórsdóttir sem höfðu veg
og vanda af þessum fundi og fengu
þær miklar þakkir fyrir og voru leystar
út með blómum og páskaeggjum.
Sindri Birgisson nemandi við LBHÍ tilefndur til Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands:
Verkefnið fjallaði um notkun
útivistarsvæða á Akranesi
Nýsköpunarverðlaun forseta Ís-lands 2013 voru veitt við há-tíðlega athöfn á Bessastöðum
í febrúarmánuði. Verkefnið sem hlaut
verðlaunin að þessu sinni heitir OHM
– hönnun, þróun og smíði nýs hljóð-
færis og var það unnið af Úlfi Hanssyni,
nemanda við Listaháskóla Íslands. Leið-
beinandi hans í verkefninu var Hans
Jóhannsson hjá Fiðlusmíðaverkstæðinu.
Fimm öndvegisverkefni Nýsköpunar-
sjóðs námsmanna voru tilnefnd til
Nýsköpunarverðlauna forseta Íslands.
Eitt þessara verkefna var Ströndin og
skógurinn: Útivistarnotkun og sóknar-
færi frá Sindra Birgissyni, nemanda í
skipulagsfræðum við Landbúnaðarhá-
skóla Íslands á Hvanneyri. Leiðbein-
endur hans voru Helena Guttorms-
dóttir LBHÍ, Hrafnkell Proppé LBHÍ
og Íris Reynisdóttir, Akraneskaupstað.
Eitt meginmarkmið verkefnisins, sem
unnið var á Akranesi sl. sumar, var að
athuga hvort notkun útivistarsvæða gæfi
upplýsingar sem styrkt gætu svæðin til
að auka útivist og lýðheilsu. Í félagslegri
stoð sjálfbærrar þróunar er áhersla á
félagslega velferð og lýðheilsu. Þar eru
þátttaka almennings, vitund um heil-
brigði og þekking á heimabyggð og
nærumhverfi lykilhugtök. Verkefninu
,,Ströndin og skógurinn” var ætlað að
styrkja og vera innlegg í þessa umræðu.
Tvö megin útivistarsvæði eru á
Akranesi. Þau eru í eðli sínu ólík,
strönd og skógur. Langisandur liggur
fyrir opnu hafi, stærsta sandströnd í
þéttbýli á Íslandi. Skógræktin er mann-
gert svæði við bæjarmörkin tengt golf-
velli og safnasvæði. Litlar upplýsingar
liggja fyrir um notkun svæðanna eða
hvaða hugmyndir íbúarnir hafa um
þau. Markmiðið var að kanna hvort
yfirfæra megi aðferðafræði arkitekts-
ins Jan Gehl á íslenskar aðstæður og
fá með þeim hætti vísindalega nálgun
og þekkingu á hegðun einstaklinga og
notkun á útivistarsvæðum. Þannig
mætti sjá möguleika til betri nýtingar
með sérstakri áherslu á hreyfingu, at-
ferli og lýðheilsu. Með því að hafa
ólík svæði ættu einnig að fást gagn-
legar samanburðarupplýsingar sem
gætu haft yfirfærslugildi fyrir fleiri
sveitarfélög. Ekki er mikið vitað um
notkun á íslenskum útivistarsvæðum
og litlar rannsóknarhefðir eru hér á
landi á þessu sviði. Verkefnið er liður í
að efla fræðigreinarnar og styrkja rann-
sóknarbakland umhverfisskipulags-
brautar Landbúnaðarháskóla Íslands.
Súgandisey –
styrkur til
uppbyggingar
Framkvæmdasjóður ferðamanna-staða er vistaður hjá Ferðamála-stofu. Samkvæmt lögum um
sjóðinn er markmið og hlutverk hans
að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og
verndun ferðamannastaða í opinberri
eigu eða umsjón um land allt. Þá skal
með fjármagni úr sjóðnum leitast
við að tryggja öryggi ferðamanna og
vernda náttúru landsins. Einnig er
sjóðnum ætlað að fjölga viðkomu-
stöðum ferðafólks til að draga úr álagi
á fjölsótta ferðamannastaði.
Stykkishólmsbær fær 5,7 milljónum
króna styrk sem er ætlaður til fram-
kvæmda í Súgandisey vegna gerðar
göngustíga, hellulögn, palla, tröppur
og merkingar samkvæmt teikningum
landslagsarkitekts og samþykktri fram-
kvæmdaáætlun. Markmiðið er m.a. að
byggja upp og bæta stíga, merkingar
og áningastaði í Súgandisey við Stykk-
ishólm, fegra umhverfi eyjarinnar og
bæta öryggi og upplifun ferðamanna.
Styrkurinn er liður í uppbyggingu
EDEN, gæðaáfangastaða ferðamanna.
Fleiri verkefni á Vesturlandi hluti
styrk. Þrísker ehf. fær 3,7 milljónir
króna til uppbyggingar frystihússins
í Flatey a Breiðafirði og Snæfellsbær
hlaut 1.350.000 krónur vegna gerðar-
útivistarstígs og áningarstaða milli Rifs
og Ólafsvíkur.
Kristín Gísladóttir og sigrún Katrín
Halldórsdóttir höfðu veg og vanda
af fundinum.
Gyða steinsdóttir, bæjarstjóri stykk-
ishólmsbæjar, tekur við styrk Fram-
kvæmdasjóðs ferðamannastaða num
úr hendi steingríms J. sigfússonar,
atvinnuvegaráðherra sem er ætlaður
til uppbyggingar í súgandisey.
Við afhendingu Nýsköpunarverðlaunanna á Bessastöðum. sindri Birgisson
stendur næstur forseta Íslands.