Vesturland - 27.03.2013, Side 9
927. mars 2013
,,Sjávarútvegurinn áfram lykill að
velmegun Snæfellinga og jarðvarminn
helsta forsenda byltingar í búsetukostum”
- segir Sturla Böðvarsson fyrrverandi ráðherra og framkvæmdastjóri Þróunarfélags Snæfellinga
Sturla Böðvarsson er fæddur í Ólafsvík 1945. Lauk sveinspróf í húsasmíði frá Iðnskólanum í
Reykjavík og síðan meistaraprófi í hús-
byggingum. Vann við húsbyggingar
hjá föður sínum Böðvari Bjarnasyni
byggingameistara í Ólafsvík, m.a. við
að byggja Ólafsvíkurkirkju. Hann
fór síðan í framhaldsnám og lauk
B.Sc.-prófi í byggingatæknifræði við
Tækniskóla Íslands 1973. Starfaði sem
byggingartæknifræðingur á Verk-
fræðistofu Sigurðar Thoroddsen uns
hann var ráðinn sveitarstjóri og síðar
bæjarstjóri í Stykkishólmi 1974-1991.
Hann var kjörinn í bæjarstjórn Stykk-
ishólmsbæjar 1990 til 1994. Sat á Al-
þingi fyrir Vesturlandskjördæmi 1991
til 2003 og fyrir Norðvesturkjördæmi
2003 til 2009. Var samgönguráðherra
frá 1999 til 2007 og forseti Alþingis frá
2007 til 2009.
VESTURLAND spurði Sturlu
hvernig það hefði verið að hætta
þingmennsku eftir 18 ára setu á Al-
þingi. „Það var mikil breyting að hætta
afskiptum af stjórnmálum eftir svo
langan tíma í eldlínu sem leiðtogi
flokksins í kjördæminu. En allt hefur
sinn tíma og mér þótt gott að geta
ákveðið það sjálfur og geta tilkynnt
vinum mínum og samstarfsmönnum
þá ákvörðun þegar hún var tekin. Ég
ákvað það raunar fyrir kosningarnar
2007 að það yrðu mínar síðustu kosn-
ingar til Alþingis. En þetta var góður
og gefandi tími á Alþingi og þegar
sagan verður rannsökuð og skrifuð af
yfirvegun þá tel ég að það muni koma
í ljós að þessi tími er mesta framfara-
skeið Íslandssögunnar.“
- Hverjar voru þínar mestu gleði-
stundir á Alþingi og hvað olli þér
mestum vonbrigðum?
„Ánægjulegasti fundurinn sem ég
sat á Alþingi var þegar minnst var
fimmtíu ára afmælis lýðveldisins á
Þingvöllum 17. júní 1994 í einstak-
lega fögru veðri. Mér fannst ég finna
mjög sterklega fyrir því hversu þétt
þjóðin stóð að baki okkur þing-
mönnum á þeirri stundu. Auðvitað
átti ég margar ánægjulegar stundir
sem ráðherra þegar ég mælti fyrir
og fékk samþykkta löggjöf eða áætl-
anir um stórframkvæmdir sem hafa
markað spor í framþróun samfélags-
ins. Þar er af mörgu að taka. Einnig var
mjög ánægjulegt að starfa sem forseti
Alþingis elsta þjóðþings veraldar.
Mestu vonbrigðin á Alþingi voru
að fylgjast með því þegar lagður var
eldur að Alþingishúsinu og nær allar
rúður í framhlið þess brotnar og grjót-
hnullungur lá inni á borði á skrifstofu
forseta Alþingis. Og það var sorglegt
að þurfa að slíta fundi þegar ráðist var
inn í þinghúsið. Í stjórnarskrá okkar
nýtur Alþingi friðhelgi og innrásin í
þinghúsið var auðvitað stjórnarskrár-
brot.”
Búseta í Stykkishólmi án
vafa fyrsti kostur
- Þú býrð í Stykkishólmi. Hefur komið
til greina að búa einhvers staðar
annars staðar?
,,Í dag erum við fjölskyldan sam-
mála um það að enginn annar staður
hefði komið til greina.Við Hallgerður
kona mín keyptum okkur litla íbúð
í Reykjavík þegar við vorum í skóla
og menntun mín sem byggingatækni-
fræðingur leiddi til þess að ég fékk
vinnu á verkfræðistofu í Reykjavík
og þar leið okkur vel. En eftir kosn-
ingarnar 1974 vildu D-listamenn í
Stykkishólmi ráða mann með mína
menntun og komu til mín þar sem ég
sat sára saklaus við teikniborðið í Ár-
múlanum. Þar var teningnum kastað
og við fluttum með börn og buru til
Stykkishólms þar sem ég varð sveit-
arstjóri og Hallgerður lauk því stúd-
entsprófinu utan skóla frá Öldunga-
deildinni í Hamrahlíð. Hún lauk svo
háskólaprófi eftir að ég settist á þing
og við vorum syðra með yngstu börnin
að vetrinum.”
Þróunarfélag Snæfellinga
stóð fyrir ráðstefnu um út-
flutnings- og markaðsmál
Sturla er framkvæmdastjóri Þróu-
narfélags Snæfellinga ehf. sem var
stofnað 7. nóvember 2011 en tilgan-
gur félagsins er að starfa á breiðum
grunni að framþróun og eflingu at-
vinnulífs og samkeppnishæfni byg-
gðarlaga á Snæfellsnesi. Félagið stóð
nýlega fyrir ráðstefnu í Ólafsvík um
útflutnings- og markaðsmál í samstarfi
við Íslandsstofu og Markaðsstofu Ves-
turlands. Sturla var spurður um star-
fsemi Þróunarfélags Snæfellinga og
hver var rótin Hver var rótin að þessari
ráðstefnu í Ólafsvík um útflutnings- og
markaðmál og hvaða árangri skilaði
hún?
,,Þróunarfélag Snæfellinga á í mjög
góðu samstarfi við Íslandsstofu og
Markaðsstofu Vesturlands um marg-
vísleg málefni. Hugmyndin með ráð-
stefnunni var að fá fyrirlesara sem fjöll-
uðu um þá þjónustu sem Íslandsstofa
stendur fyrir, um kosti okkar Snæ-
fellinga við að nýta sérstöðu okkar á
markaði og draga fram þá möguleika
sem fyrirtæki á Snæfellsnesi eiga á
mörkuðum bæði innanlands sem utan.
Einnig var fjallað um þjónustu Mark-
aðsstofu Vesturlands á sviði kynningar
og markaðsmála, um kosti klasasam-
starfs, um aukin verðmæti og nýtingu
sjávarfangsins, um mikilvægi þess að
ferðaþjónustan verði rekin allt árið og
það mikilvæga verkefni að laða að fjár-
festa. Ráðstefnan var vel sótt og þótti
takast vel. Verður efni hennar nýtt á
vettvangi Þróunarfélagsins og munu
ræðurnar birtast á vef Íslandsstofu.”
- Hvar liggja helstu tækifæri Vestur-
lands og Vestlendinga til atvinnuupp-
byggingar í náinni framtíð?
,,Þau liggja víða. Stóriðjan á
Grundartanga hefur verið sterkasta
uppspretta nýrra atvinnutækifæra
á Vesturlandi síðustu tvo áratugi
ásamt með þróuninni í sjávarútvegi
og ferðaþjónustu. Hvað Snæfellsnesið
varðar þá eru framtíðarverkefnin á
mörgum sviðum. Snæfellsnesið hefur
sterka stöðu vegna góðra samgangna
og nálægðar við stærsta markaðs-
svæðið, vegna umhverfisvotturnar
og Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls sem
er með eyjum Breiðarfjarðar megin
segull svæðisins. Ég vil telja hér upp
í símskeytastíl það sem mér finnst
blasa við; sjávarútvegur mun áfram
gegna mikilvægu hlutverki og með
aukinni verðmætasköpun svo sem
með próteinvinnslu mun störfum
geta fjölgað; heilsutengd ferðaþjón-
usta á mikla möguleika vegna þeirra
„bláulóna” sem við höfum aðgang
að og jarðvarminn hefur ekki verið
nýttur til fullnustu í þágu heimila og
atvinnustarfsemi; vinnsla þörunga
úr lífmassa Breiðafjarðar á mikla
möguleika og gæti skapað fjölmörg
störf; bætt aðstaða á fjölförnum ferða-
mannastöðum, aukin þjónusta vegna
hestaferða og fjölgun gististaða getur
styrkt stöðu ferðaþjónustunnar til
mikilla muna. Það er mitt mat að ef
rétt er á spilunum haldið eigi Snæfells-
nesið að geta eflst sem og Vesturlandið
allt. En til þess að svo geti orðið þarf
að hafa ríkt í huga máltækið sem segir
„að þeir fiska sem róa” og það þekkja
Snæfellingar vel.”
Vaxandi ferðaþjónusta í
Stykkishólmi
- Hvað með Stykkishólm. Er vaxta-
broddur fólgin fyrir það sveitarfélag
t.d. í ferðaþjónustu umfram ýmislegt
annað?
,,Um Stykkishólm gildir hið sama
og um Snæfellsnesið allt. Við eigum
mikla möguleika. Og styrkur Stykk-
ishólms liggur ekki síst í hitaveitunni
sem bætir búsetuskilyrðin og skapar
margvíslega möguleika. Þess vegna
varðar svo miklu að tryggja nýtingu
jarðvarmanns fyrir Snæfellsnesið allt.
Ferðaþjónustan hefur vaxið í Stykk-
ishólmi um lengri tíma og hefur þess
vegna tiltekið forskot og það má sjá á
þróuninni að enn er mikil vöxtur bæði
í uppbyggingu gisti og veitingastaða
og uppbyggingu í kringum afþreyingu
svo sem siglinga um eyjasundin þar
sem fuglaskoðun er vinsæl. En mestu
umsvifin tengjast siglingum Baldurs en
hann flytur þúsundir ferðamanna yfir
fjörðinn á hverjum mánuði.”
- Sjávarútvegur og landbúnaður hafa
lengi verið mjög öflugar atvinnu-
greinar á Vesturlandi. Eru teikn á lofti
um að það kunni að breytast? Munu
þessar atvinnugreinar styðja hverja
aðra í náinni framtíð?
,,Sjávarútvegurinn verður áfram
lykill að velmegun Snæfellinga og enn
frekari nýting lífmassans í Breiða-
firðinum skapar skilyrði til enn frekari
verðmætasköpunar ef okkur tækist að
fá orku á góðu verði til vinnslunnar.
Hvernig sem á það er litið þá er jarð-
varminn lykill að byltingu í búsetu-
kostum hjá okkur.
Hvað varðar hefðbundinn land-
búnað þá hefur hann tekið breytingum
og mun trúlega gera það áfram. Hins-
vegar eru miklir möguleikar tengdir því
í sveitunum að nýta jarðirnar einnig
við ræktun íslenska hestsins og hesta-
tengdrar ferðamennsku. Einnig ættu
að vera möguleikar í fiskeldi þar sem
heitar og kaldar lindir eru nýtanlegar,”
segir Sturla Böðvarsson.
Stóriðjan á Grundartanga
hefur verið sterkasta upp-
spretta nýrra atvinnutæki-
færa á Vesturlandi síðustu
tvo áratugi ásamt með
þróuninni í sjávarútvegi og
ferðaþjónustu.
stykkishólmur.
sturla Böðvarsson og kona hans, Hallgerður Gunnarsdóttir, á Landsfundi
sjálfstæðisflokksins fyrr á þessu ári.