Vesturland - 27.03.2013, Page 10
10 27. mars 2013
Landbúnaðarháskóli Íslands á Hvanneyri:
Ný fræðastofnun á gömlum grunni
Landbúnaðarháskóli Íslands er reistur á grunni öflugrar rann-sóknastofnunar og tveggja
gróinna menntastofnana á landbún-
aðarsviði, Rannsóknastofnunar land-
búnaðarins, Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri og Garðyrkjuskóla ríkisins.
LbhÍ tók til starfa í upphafi árs 2005.
Aðalstarfstöð skólans er á Hvanneyri.
Megin viðfangsefni hans er nýting
og verndun náttúruauðlinda á landi
og bæði er boðið upp á háskólanám
og starfsmenntanám. Landbúnað-
arháskólinn hefur talsverða sérstöðu
í mengi háskólanna. Örar breytingar
í þjóðfélaginu kalla á mun víðtækari
þekkingu á náttúru Íslands og nýt-
ingu hennar en áður. Landnot verða
æ fjölbreyttari og því er nauðsynlegt
að mennta mun stærri hóp en áður
til starfa á þessu sviði. Stærri og fleiri
svæði eru tekin til íbúðarbyggðar, skóg-
ræktar, uppgræðslu, vega, virkjana og
ekki síst ferðaþjónustu.
Skóli síðan 1889
Búnaðarskóli var stofnaður á Hvan-
neyri 1889 og 1947 var þar stofnuð
háskóladeild. Árið 1999 var skólinn
formlega gerður að háskóla. Þar er
einnig boðið upp á almennt nám í
bændadeild til búfræðiprófs jafnframt
háskólanáminu. Öflug endurmenn-
tunardeild er við LbhÍ og boðið upp
á fjarnám. Á staðnum er unnið að
margvíslegum rannsóknum.
Á Hvanneyri er verndað búsvæði
blesgæsarinnar, sem er áberandi fugl
á túnum staðarins vor og haust. Bles-
gæsin er dekkst grárra gæsa. Hún er
grábrún með ljósar rákir að ofan og
dökkar rákir á síðum. Hvít blesa er
ofan goggrótar. Blesgæs hagar sér
svipað og aðrar gráar gæsir en er
sneggri í uppflugi, sýnist grennri og
liprari á flugi, hópamyndun er losara-
legri. Er lipur sundfugl eins og aðrar
gæsir og ávallt félagslynd. Fuglinn
hefur viðkomu á Íslandi á leið til og frá
varpstöðvum sínum á Vestur - Græn-
landi en hefur vetursetu á Írlandi og
í Skotlandi.
Sérstaða meðal háskóla
Landbúnaðarháskóli Íslands hefur
mikla sérstöðu meðal háskóla hérlen-
dis. Þessi sérstaða felst fyrst og síðast
í viðfangsefni skólans sem er náttúra
Íslands - nýting, viðhald og verndun.
Nútíma skilgreining á landbúnaði er
mjög víð en þar er almennt átt við
hvers konar nýtingu, ræktun, vörslu
og verndun búfjár, ferskvatnsdýra
og auðlinda landsins til atvinnu- og
verðmætasköpunar. Viðfangsefni
kennslu og rannsókna við LbhÍ er því
landið og það sem á því lifir. Á stun-
dum er sagt að LbhÍ sé ,,Háskóli lífs og
lands” sem er réttnefni.
LbhÍ býður háskólamenntun til
BS- og MS-gráða. Við skólann á
Hvanneyri eru þrjár háskóladeildir;
umhverfisdeild býður upp á nám
í umhverfisskiplagi, náttúru- og
umhverfisfræði, skógfræði og land-
græðslu; auðlindadeild býður upp á
nám í búvísindum og hestafræðum
og starfs- og endurmenntunardeild.
Heildarfjöldi nemenda við LbhÍ er um
550, yfir helmingur í staðarnámi en
aðrir í lotubundnu námi og nýta sér
fjarnámslausnir. Mikil áhersla er lögð
á rannsóknir, sem eru sá rauði þráður
sem einkennir mest allt starfið. Um
60% af starfsemi háskólans er tengd
rannsóknum á einhvern hátt. Þessi
staðreynd undirstrikar að um rann-
sóknaháskóla að ræða. Þetta er mikill
styrkur þegar kemur að rannsókna-
tengdu námi þ.e. námi til masters og
doktorsgráða.
Eitt stoðsvið skólans er búreksturinn
þar sem vilji er til að vera í fremstu
röð. Starfrækt er öflugt tilraunabú að
Hesti og í því liggja mikil verðmæti
því þaðan kemur stærsti hluti þeirra
erfðaframfara sem eiga sér stað í sauð-
fjárræktinni. Fylgt er þeirri byltingu
sem er í mjólkurframleiðsluog þar er
nýtt kennslu- og rannsóknarbúið á
Hvanneyri.
Daglegur rekstur Landbúnaðarhá-
skóla Íslands er í höndum yfirstjórnar
LbhÍ en í henni eiga sæti Ágúst Sig-
urðsson, rektor, Áslaug Helgadóttir,
aðstoðarrektor rannsóknamála, Björn
Þorsteinsson, aðstoðarrektor kennslu-
mála, Guðríður Helgadóttir, forstöðu-
maður Starfs- og endurmenntunar-
deildar, Jóhannes Sveinbjörnsson,
deildarforseti Auðlindadeildar, Ólafur
Arnalds, deildarforseti Umhverfis-
deildar og Þorvaldur T. Jónsson,
rekstrarstjóri.
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
2 sjónvarpsdagskráin » Þriðjudagur 11. maí 2012
xxxxxxxxx20:10 xxxxxxxxx20:10 xxxxxxxxx20:10 xxxxxxxxx20:10 xxxxxxxxx20:10
1
6
.
Ja
n
ú
a
r
2
0
1
1
Dag skrá ÍNN er end ur tek in um helg ar
og all an sól ar hring inn.
Hraðvirkt bólgueyðandi verkjalyf
ibuxin rapid
fæst án lyfseðils í apótekum
ibuprofen
Notkunarsvið: ibuxin rapid inniheldur ibuprofen sem er lyf sem dregur úr verkjum og hita (flokkur:
bólgueyðandi gigtarlyf sem ekki er steri). ibuxin rapid er notað við vægum til miðlungi miklum verkjum,
svo sem höfuðverk, tannverk, tíðaverk, bráðum mígrenihöfuðverk, hita og verkjum vegna kvefs. Ekki má
nota ibuxin rapid: Ef þú ert með ofnæmi fyrir ibuprofeni eða einhverju öðru innihaldsefni ibuxin rapid. Ef
þú hefur fundið fyrir mæði, astma, nefrennsli, þrota eða ofsakláða eftir notkun acetylsalicylsýru eða
annarra bólgueyðandi gigtarlya sem ekki eru sterar (NSAID). Ef þú ert með óútskýrða blóðmyndunar-
truflun. Ef þú ert með eða hefur haft endurtekin sár (ætisár) eða blæðingu í maga/skeifugörn. Ef þú hefur
fengið blæðingu eða rof í meltingarvegi við fyrri meðferð með bólgueyðandi gigtarlyum (NSAID). Ef þú
ert með blæðingu í heilaæðum eða aðra virka blæðingu. Ef þú ert með alvarlega skerðingu á lifrar- eða
nýrnastarfsemi. Á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Ef þú ert með kransæðasjúkdóm eða alvarlega
hjartabilun. Ef þú þjáist af verulegri ofþornun. Gæta skal sérstakrar varúðar við notkun ibuxin rapid:
Ef þú ert með arfgengan blóðmyndunarsjúkdóm (bráða porfýríu með hléum). Ef þú ert með ákveðna
sjálfsnæmissjúkdóma (rauða úlfa og blandaðan bandvefssjúkdóm). Ef þú ert með sjúkdóma í
meltingarfærum eða langvinna bólgusjúkdóma í þörmum (sáraristilbólgu, Crohn´s sjúkdóm). Ef þú ert
með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi. Ef þú þjáist af ofþornun. Ef þú ert með eða hefur haft háþrýsting eða
hjartabilun. Ef þú ert með ofnæmi (t.d. húðviðbrögð við öðrum lyum, astma, ofnæmiskvef ), langvarandi
þrota í slímhúðum eða langvarandi teppusjúkdóm í öndunarfærum. Ef þú ert með storkutruflun í blóði.
Strax eftir stórar skurðaðgerðir. Meðganga og brjóstagjöf: Þú mátt aðeins nota ibuxin rapid á fyrstu 6
mánuðum meðgöngu eftir að hafa ráðfært þig við lækninn. Ekki má nota ibuxin rapid síðustu 3 mánuði
meðgöngu. Yfirleitt er ekki nauðsynlegt að gera hlé á brjóstagjöf við skammtíma notkun í ráðlögðum
skömmtum. Algengustu aukaverkanir: Sár, rof eða blæðing í meltingarvegi, stundum lífshættuleg,
einkum hjá öldruðum, geta komið fram. Ógleði, uppköst, niðurgangur, vindgangur, hægðatregða,
meltingartruflanir, kviðverkur, sortusaur, blóðuppköst, sáramunnbólga, versnun ristilbólgu og Crohn´s
sjúkdóms hafa komið fram. Skammtastærðir: Fullorðnir og unglingar yfir 40 kg: 200 mg – 400 mg
skammtar, að hámarki 1.200 mg á sólarhring. Börn og unglingar: Hámarksskammtur af ibuprofeni á dag
er 30 mg á hvert kg líkamsþyngdar, skipt niður í 3 til 4 staka skammta. 20-29 kg: 200 mg skammtar, að
hámarki 600 mg á sólarhring. 30-39 kg: 200 mg skammtar, að hámarki 800 mg á sólarhring. Ekki skulu líða
minna en 6 klst. á milli skammta. ibuxin rapid skal aðeins nota hjá börnum sem eru a.m.k. 20 kg að
þyngd. Lesið vandlega leiðbeiningar í fylgiseðli sem fylgir lynu. Júlí 2012.
HÖFUÐVERKUR - TANNVERKUR - TÍÐAVERKUR - MÍGRENI - HITI
Urður á Hvanneyri afurðahæsta kýr landsins
Meðaltalsafurðir yfir landið hafa hækkað milli ára og eru nú
5.606 kg eftir hverja árskú árið 2012.
Það er einnig hækkun afurða á svæði
Búnaðarsambands Vesturlands og er
nú meðaltalið 5.313 sem er hækkun
um 160 kg/pr árskú. Árið 2012 eru 5
bú á svæði Búnaðarsambands Vestur-
lands með meðalafurðir yfir 7.000 en
voru aðeins 3 árið 2011.
Þegar skoðað er uppgjör afurða-
hæstu kúa árið 2012 er það kýrin
Urður 1229 á Hvanneyri sem er með
mestu afurðir landsins að þessu sinni,
eða 13.031 kg mjólkur. Nú eru 13 kýr
á svæði Búnaðarsambands Vestur-
lands sem hafa ársafurðir yfir 10.000
kg mjólkur en árið 2011 voru það 8
kýr. Nafngiftir á kúm eru með ýmsum
hættir en þessar afburðakúr á Vestur-
landi og Vestfjörðum heita auk Urðar
m.a. Varúð, Blúnda, Hlyna, Sómalind,
Flækja, Artemis, Dýsa, Tillý, Krista,
Díla og Lögg. Hvað er orðið af gömlu
og góðu nöfnunum eins og Búkolla,
Rauðka, Dimma og Blíða?
Urður er í eigu félags sem heitir
Grímshagi ehf. Það er dótturfélag
Landbúnaðarháskóla Íslands, og
stendur fyrir rekstri kennslu- og
rannsóknarbús á Hvanneyri og Hesti
í Borgarfirði. Lárus Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Grímshaga ehf., segir að
Urður hafi borið fjórum sinnum, fyrst
22. desember 2009, átti þá kvíguna
Skuld (eldri) sem festi aldrei fang og
var felld 3ja ára gömul án þess að bera
nokkurn tímann, en hún var undan
systkinum vegna mistaka. 21. nóvem-
ber 2010 átti hún nautið Úranus, en
það var tekið til notkunar á nautastöð
Bændasamtaka Íslands, og eru fyrstu
kálfarnir undan honum nýfæddir. 30.
október 2011 var það nautið Satúrnus
og loks 22. september 2012 kvígan
Skuld (yngri).
Skráðar afurður Urðar eru 10.224
kg árið 2010, 9.799 kg árið 2011 og
13.031 kg árið 2012.
Á þvi mjaltaskeiði sem nú stendur
yfir fór Urður hæst í 57,7 kg/dag (7
daga meðaltal), og var yfir 50 kg/dag
í rúma 2 mánuði, og yfir 40 kg í rúma
5 mánuði, en er að síga niður hægt og
rólega núna og er í ca 36 - 37 kg/dag
þessa dagana.
,,Urður er einstök kýr á allan hátt,
og frábær ,,vinnufélagi,” segir Lárus
Pétursson. ,,Mjög skapgóð og með-
færileg, mætir alveg eins og klukka í
mjaltir, dugleg að éta og hefur verið
sérlega heilsuhraust hingað til. Ekki
spillir heldur fallegur liturinn. Það
eina sem hægt væri að segja henni til
vansa er að fitu- og prótein lutföll í
mjólkinni eru lág.”
Urður 1229.
Frá Hvanneyri.