Vesturland - 27.03.2013, Síða 12
27. mars 2013
Snæfellsbær mætir
Skagafirði í Útsvari
Grindavíkurbær þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Snæfellsbæ í æsispennandi viðureign.
Lokatölur kvöldsins voru 92 -91. Lið
Snæfellsbæjar er komið í 8. liða úrslit
og mætir liði Skagfirðinga í næstu um-
ferð, 6. apríl nk.
Keppni Snæfellsbæar og Grinda-
víkur var hnífjöfn frá upphafi til enda
og andrúmsloftið rafmagnað í sjón-
varpssal Rúv þetta föstudagskvöldið.
Fyrir fyrsta auglýsingahlé var staðan
18 – 18 og þurfti því að kasta upp
á hver hæfi leikinn í orðaleiknum.
Það var Grindavíkurbær sem gerði
það og fékk fullt hús stiga, sem Snæ-
fellsbær svaraði í sömu mynt. Eftir
flokkaspurningarnar var Snæfellsbær
komin með ágæta forystu, staðan var
62 – 51. Í stóru spurningunum byrj-
aði Grindavíkurbær auðvitað á að fá
15 stiga spurningu sem þeir svöruðu
rétt, það gerði Snæfellsbær líka með
hjálp símavinar. Þegar ein spurn-
ing var eftir var staðan 91 – 87 fyrir
Grindavíkurbæ og valdi Snæfellsbær
5 stiga spurningu sem þeir svöruðu
rétt. Lokatölur kvöldsins voru 92 -91
fyrir Snæfellsbæ.
12
GRÁSLEPPA
Kaupum ferska óskorna
Grásleppu um allt land.
Tökum einnig verkuð
hrogn til útutnings.
Fiskislóð 34, 101 Reykjavík
Sími 520-7302 (Ragnar)
Hér er á ferðinni einhver besta
varmadæla sem komið hefur fyrir
allt venjulegt húsnæði.
Þessi verðlaunaða varmadæla hitar t.d.
ofnaker, gólfhita og neysluvatn.
Getur notað vatn, jörð og sjó til
orkuöunar.
Allur búnaður innandyra.
NIBE F1245 eyðir litlu og sparar mikið.
NIBE frá Svíþjóð.
Stærstir í Evrópu í 60 ár.
W
NIBE™
F1245 |
Jarðvarmadæla
Ný kynslóð af varmadælum
Nýtt
Með NIBE F1245 getur þú lækkað húshitunarkostnað um allt að 85%
Er rafmagnsreikningurinn of hár?
Er þá ekki kominn tími til að við tölum saman?
FFriorka www.friorka.is 571 4774
NIBE™ F1245 Jarðvarmadæla
VÉLABÆR EHF - BÆ í BÆJARSVEIT
ALHLIÐA VIÐGERÐAÞJÓNUSTA Á BÍLUM,
DRÁTTAVÉLUM OG VÉLUM TENGDUM LANDBÚNAÐI.
SMUR OG HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA
TINDAR, HNÍFAR OG HJÓLBARÐAR
FYRIR HEYVINNSLUVÉLAR.
435 1252 - 893 0688
velabaer@vesturland.is
Lið snæfellsbæjar, f.v.: sigfús almarsson matsveinn hjá Grunnskóla snæfells-
bæjar í Ólafsvík, Guðrún Lára Pálmadóttir sem starfar hjá Umhverfisstofnun
og magnús Þór Jónsson skólastjóri grunnskólans.
Breiðfirðingar í undan-
úrslit í spurningakeppni
átthagafélaganna
Lið Breiðfirðingafélagsins lagði lið Árnesinga í 2. umferð spurn-ingakeppni átthagafélaganna 21.
mars sl. og keppir við lið Skaftfellinga
fimmtudaginn 11. apríl nk. í Breið-
firðingabúð. Þá keppa einnig Norð-
firðingar sem unnu Húnvetninga gegn
Dýrfirðingum sem unnu Héraðsmenn.
Úrslitakvöldið er svo síðasta vetrardag,
24. apríl nk. og að lokinni keppni er
slegið upp balli.
Snæfell og Skallagrímur
komust í úrslitakeppnina
Vesturlandsliðin í Dominos-deild karla í körfubolta komust bæði í úrslitakeppn-
ina sem er nýhafin. Snæfell mætti
Njarðvík í fyrsta leiknum og vann hann
en tapaði síðan 105:90 fyrir Njarð-
vík þannig að til hreins úrlsitaleiks
kemur milli liðanna um hvort liðið
heldur áfram. Skallagrímur mætti
deildarmeisturum Grindavíkur, og
tapaði báðum leikjunum, þeim síð-
ari í Borgarnesi 78:102, og er úr leik.
Eftir lokaumferð deildarkeppninnar á
þessu tímabili var loks ljóst hvaða lið
tryggðu sér sæti í úrslitum í ár og hvaða
lið myndu falla, en það varð hlutskipti
Tindastóls og Fjölnis í ár.
Fulltrúar snæfells og skallagríms með fulltrúum annara liða í Dominosdeildinni
þegar deildin var kynnt í haust af KKÍ. Fulltrúi snæfells er annar frá vinstri í
efri röð en fulltrúi skallagríms fyrstur frá vinstri í fremri röð.
Lið Breiðfirðinga sem lagði lið Árnesinga 21. mars sl., Urður maría sigurðar-
dóttir, Páll Guðmundsson og Grétar Guðmundur sæmundsson.
Stórhættulegt
sprengiefni á
Hvalfjarðar-
strönd
Sprengjusveit Landhelgis-gæslunnar var kölluð út fyrir nokkru að beiðni sérsveitar
ríkislögreglustjóra eftir að tilkynning
barst til lögreglunnar um að tals-
vert magn sprengiefnis væri geymt
í gámi við íbúðarhús á sveitabæ í
Hvalfjarðarsveit. Tveir af sprengju-
sérfræðingum LHG fóru á vettvang
ásamt lögreglunni eftir að staðfest
hafði verið að um sprengiefni var að
ræða, sem er farið að „svitna“ vegna
aldurs og því orðið stórhættulegt.
Hluti sprengiefnisins.