Vesturland - 27.03.2013, Qupperneq 14
14 27. mars 2013
Skólahreysti 2013:
Grundaskóli sigraði í Vesturlandsriðlinum
Keppni í fimmta riðli í Skólahreysti MS fór fram í Smáranum í Kópavogi 14.
mars sl. Í þessum riðli öttu kappi skólar
af Vesturlandi og var keppnin afar jöfn.
Í upphífingum var það Árni Ólafsson
úr Grunnskólanum í Borgarfirði sem
náði flestum upphífingum eða 40; í
armbeygjum sigraði sigraði Magðalena
Lára Sigurðardóttir úr Grundaskóla á
Akranesi með 40 armbeygjur; Krist-
inn Bragi Garðarsson úr Grundaskóla
tók flestar dýfur, 55 alls; sem sigraði
dýfur; í hreystigreip sigraði Sesselja Rós
Guðmundsdóttir í Heiðarskóla í Hval-
fjarðarsveit sem hékk í 2,56 mínútur og
fljótust gegnum hraðaþrautina voru
þau Sólrún Sigþórsdóttir og Sigurður
Ívar Erlendsson úr Brekkubæjarskóla
á tímanum 2,32 mín.
Í lok keppni stóð lið Grundaskóla
uppi sem sigurvegarar með 33 stig.
Lið Grunnskóla Borgarfjarðar í öðru
sæti, aðeins einu stigi neðar með 32
stig og svo lið Brekkubæjarskóla á
Akranesi í þriðja sæti með 29 stig. Lið
Grundaskóla fer beint í úrslitakeppn-
ina í Laugardalshöll 2. maí nk. en þau
tvö lið sem er með bestan árangur í 2.
sæti riðlakeppnanna vinnur sér sæti í
úrslitakeppninni, þar sem keppa 12 lið.
Stigagjöf
Fyrir fyrsta sæti í upphífingum, arm-
beygjum, dýfum og hreystigreip eru
gefin 20 stig. annað sæti gefur 19 stig;
þriðja sæti gefur 18 stig og svo koll af
kolli. Besti tíminn í hraðaþrautinni
færir viðkomandi liði 40 stig, meðan
annað sæti gefur 38 stig, þriðja sæti 36
stig og svo framvegis. Sá skóli sem hlý-
tur flest samanlögð stig stendur uppi
sem sigurvegari í Skólahreysti. Skólah-
reysti er viðurkennd af og nýtur opin-
bers stuðnings menntamálaráðuney-
tis, heilbrigðisráðuneytis, norrænu
ráðherranefndarinnar, Íþrótta &
Ólympíusambands Íslands og sveit-
arfélaga.
Belladonna á Facebook
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir flottar konur
Stærðir 40-58
Er ferming framundan?
ERNA
Skipholti 3 - Sími: 552 0775
www.erna. is
Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA
Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október
312 fyrir réttum 1700 árum, sá
Konstantín mikli teikn krossins
á himni og orðin “in hoc signo
vinces” “Undir þessu tákni muntu
sigra”. Árið 313 er Konstantín var
orðinn keisari veitti hann kristnum
mönnum trúfrelsi eftir langvarandi
ofsóknir.
Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd
Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,-
úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og
úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-).
IN HOC SIGNO VINCES
(Undir þessu tákni muntu sigra)
stuðningshópurinn frá Brekkubæj-
arskóla á akranesi fagnar heilshugar
afrekum sinna keppenda.
sigurvegarar Grundaskóla á akranesi, f.v.: Kristinn Bragi Garðarsson, atli
Vikar Ingimundarson, Júlía Björk Gunnarsdóttir, Hrafnhildur a. sigfúsdóttir
(varamaður), magðalena L. sigurðardóttir og Bakir anwar Nassar (varamaður).
Hér reynir á að hanga sem lengst í
keppnisgrein sem nefnist hreystigreip.
Þetta eru keppendur, frá vinstri, frá
Brekkubæjarskóla, Grunnskólanum
Grundarfirði, Heiðarskóla í Hval-
fjarðarsveit ( en hún hékk lengst af
stelpunum á slánni) og Grundaskóla.
Hreinsunaraðgerðir í Kolgrafarfirði
Fyrsta áfanga hreinsunaraðgerða í Kolgrafafirði er nú að mestu lokið og verður framhald að-
gerða endurmetið í ljósi aðstæðna.
Búið er grafa allt að 15.000 tonn af
síldarúrgangi í fjörunni fyrir neðan
bæinn Eiði og fara með um 1000 tonn
af grút til urðunar í Fíflholtum. Mik-
ill munur er á fjörunni við Eiði eftir
þetta hreinsunarátak; sýnileg síld er
nú hverfandi og umfang grútar hefur
minnkað töluvert. Þá er gert ráð fyrir
að átakið dragi úr lyktarmengun þegar
fram líða stundir. Hins vegar er ljóst að
verulegt magn grútar er enn í fjörum
og úti á firðinum og er nauðsynlegt
að fylgjast vel með afdrifum hans í
framhaldinu.
Grúturinn hefur blandast í möl
og jarðveg í fjörunni og hafa hlýindi
undanfarna daga flýtt fyrir því ferli.
Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að
endurmeta hreinsunaraðgerðir. Um-
hverfisstofnun metur aðstæður þannig
að ekki stafi bráðahætta af grútnum í
fjörunni nú, en að leita þurfi leiða til
að fjarlægja hann eftir því sem færi og
aðstæður leyfa.
Hreinsunaraðgerðirnar í Kolgrafa-
firði eru þær umfangsmestu sem gripið
hefur verið til í því skyni að sporna við
náttúrulegri mengun á Íslandi, enda
er síldardauðinn í firðinum að því að
best er vitað án fordæma á Íslandi að
magni til. Alls er talið að yfir 50.000
tonn af síld hafi drepist í tveimur við-
burðum, um miðjan desember og 1.
febrúar sl. Ríkisstjórnin hefur lagt til fé
til eftirlits og hreinsunarstarfa og mun
áfram liðsinna við verkefnið í samráði
við fagstofnanir, ábúendur, Grundar-
fjarðarbæ og aðra heimamenn.
Frá Kolgrafarfirði.