Reykjanes - 07.02.2013, Blaðsíða 2

Reykjanes - 07.02.2013, Blaðsíða 2
2 7. febrúar 2013 ásgeiR og Byggðasafnið Eins og komið hefur fram þá lét Ásgeir Hjálmarsson af störfum s. l. sumar sem forstöðumaður byggðarsafnsins í Garðinum, en safnið er mikið tilkomið vegna elju Ásgeirs og ódrepandi áhuga á að varðveita gamla venjulega hluti. Vegna þessara tímamóta þá hefur Guðmundur Magnússon nú gert stutta heimildarmynd um uppbyggingu byggðarsafnsins, sem vonandi mun verða hluti þess sem hægt er að skoða á safninu um aldur og ævi. Hægt er að skoða myndbandið á www. svgardur.is MÚsíktilRaUniR 2013 –SKRÁNING HEFST 18. FEBRÚAR Músíktilraunir 2013 verða haldnar í Silfurbergi, Hörp-unni. Undankvöldin verða frá 17. til 20. mars og úrslitakvöldið þann 23. mars. Einnig hefur heimasíða Músíktilrauna 2013 verið sett í gang. Þetta er frábært tækifæri til að taka þátt í skemmtilegum og spennandi viðburði í glæsilegu umhverfi og kynna sig og kynnast öðrum í leiðinni. Miðasala verður á www. harpa.is Nú er því um að gera að dusta ryk- ið af hljóðfærunum og byrja æfingar. Við munum opna fyrir skráningu 18. febrúar nk. og henni lýkur svo 3. mars. Skráningargjald verður það sama og síðast,7000 kr. Fylgist með á www. musiktilraunir.is , en skráning mun verða aðgengileg þaðan. UPPHITUN FYRIR MÚSÍKTIL- RAUNIR 2013 Í HINU HÚSINU -vantar þig að taka upp demó eða bara góð ráð? - Hitt Húsið ætlar að bjóða upp á að- stöðu fyrir tónlistarfólk til að koma og æfa lögin sín í góðu hljóðkerfi, mögnurum o. fl. Einnig verður starfs- fólk hússins á staðnum til skrafs og ráðagerða um allt er varðar tilraunirnar og undirbúning fyrir þær. Í kjölfarið af þessu geta hljómsveitirnar/tónlist- arfólkið sótt um að taka upp demo í Hinu Húsinu til að skila í skráningu Músíktilrauna 2013. Dagsetningar sem í boði eru: -Æfing / spjall : Fimmtudagurinn 14. febrúar kl.17-22. -Demóupptökur: Laugardagurinn 16. febrúar Takmarkað pláss er í boði, hafið því samband við okkur sem fyrst í musikt- ilraunir@itr.is og í síma 411-5527. Við erum einnig á Facebook: http: // facebook. com/musiktilraunir1 Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst fimmtudaginn 21. febrúar n. k. Á fundinum er farið yfir stöðu mála og stefnan mörkuð fyrir komandi kosningar í apríl. Einnig verður forysta flokksins kjörin á Landsfund- inum. Mörgum óbreyttum Sjálfstæðismanni hefur fundist það brenna við að allt of lítið væri farið eftir samþykktum Landsfundarins. Forysta flokksins þurfi að hlusta meira á grasrótina. Það liggur t. d. alveg ljóst fyrir að ætli Sjálfstæðisflokkurinn að sigra stórt verður hann að leggja fram stefnu hvernig á að leysa skuldavanda heimilanna. Það þýðir ekkert að setja á blað eitthvert orðajálfur án innihalds Sjálfstæðisflokkurinn verður að segja á nákvæman hátt hvernig þetta verður framkvæmt. Kjósendur verða að gerta treyst því að eitthvað raunhæft gerist komist Sjálfstæðisflokkurinn í ríkisstjórn. Sama á við um atvinnumálin. Hvernig ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að koma atvinnumálunum í gang. Þar verður að leggja fram framkvæmdaáætlun til næstu ára. Framkvæmdaáætlun sem kjósendur geti treyst að verði fran- kvæmd. Sama á við um skattalækkanir. Kjósendur verða að geta treyst því að þær komi til framkvæmda undir stjórn Sjálfstæðisflokksins. Það verður að birta dagsetningar hvenær og um hvað mikið hinir einstöku skattar eiga að lækka eða þurrkast út. Kjósendur verða að geta treyst því að aðlögun að ESB haldi ekki áfram nema að þjóðin hafi samþykkt það í atkvæðagreiðslu. Fulltrúar kjósa formann og varaformann. Það var öllum Íslendingum mikið fagnaðarefni að heyra niðurstöðu EFTA dómstólsins vegna Icesave. Eðlilega rifja menn upp þátt Steingríms J. og Jóhönnu að ætla að samþykkja yfir 300 milljarða skattpíningu á almenning í landinu. Sem betur fer tók grasrótin til sinna ráða, þannig að með inngripi forsetans var hægt að koma í veg fyrir að nokkur Icesave samingur yrði samþykktur. Því miður hlustaði forysta Sjálfstæðisflokksins ekki á grasrótina varðandi seinni atkvæðagreiðsluna um Icesave. Forystan og stærsti hluti þingflokksins lagði til að samningurinn yrði samþykktur. Mikill meirihluti Sjálfstæðis- manna fór ekki eftir forystunni og sagði nei. Auðvitað veikir þetta stöðu Bjarna Benediktssonar á Landsfundinum ásamt fleiri málum, en Bjarni sam- þykkti samninginn. Aðeins 4 þingmenn Sjálfstæðisflokksins samþykktu ekki. Hin fjölmenna samkoma Sjálfstæðismanna á Landsfundinum velur forystuna. Hver og einn fulltrúi fær auðan seðil og í raun eru allir Landsfundarfulltrúar í kjöri. Grasrótin ræður því hver skipar embætti formanns og varaformanna. Hver og einn fulltrúi verður að gera það upp við sína samvisku hvernig hann metur hverjir eigi að gegna forystuhlutverki. Hvernig er líklegast að Sjálfstæð- isflokkurinn fái sem mest fylgi, meirhluti þjóðarinnar er örugglega á þeirri skoðun að ekki komi til greina að fá aftur Vinstri stjórn næsta kjörtímabil. Möguleikar Sjálfstæðisflokksins eru því gífurlega miklir til að geta haft forystu um myndun næstu ríkisstjórnar. Það skiptir því öllu fyrir Sjálfstæðisflokkinn að setja fram sterka og trúverðuga áætlun um hvernig landinu verði stjórnað, þannig að hagur almennings og fyrirtækja nái að blómstra. Það skiptir öllu að í forystu Sjálfstæðisflokksins veljist einstaklingar, sem landsmenn hafa trú á að geti komið í framkvæmd að stjórna landinu með breyttum vinnu- brögðum. Er Bjarni Benediktsson núverandi formaður líklegastur til að ná eyrum þjóðarinnar og vinna stærsta sigur í sögu Sjálfstæðisflokksins? Eða er Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálftsæðismanna líklegust til að ná eyrum kjósenda til að vinna stærsta sigur í sögu Sjálfstæðisflokksins. Eða er það einhver annar einstaklingur? Hver og einn Landsfundarfulltrúi verður að svara þessari samviskuspurningu áður en hann greiðir atkvæði. Hlustum á grasrótina. Sjálfstæðisflokkurinn á góða möguleika á stærsta sigri í sögu flokksins ef forystan verður skipuð einstaklingum, sem kjósendur treysta og þekkja af góðum störfum. leiðari Forystan þarf að hlusta á grasrótina. Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779. Reykjanes 3. Tbl.3. áRganguR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54,  108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. reykjanesblad.is reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi. Viltu segja skoðun þína? léttUR föstUdagUR Á morgun föstudaginn 7. febrúar er Léttur föstudagur kl.14: 00 á Nesvöllum. Þorvaldur Árnason lyfsali ætlar að fræða okkur um ýmsa þætti um apótek og þeirra starfsemi. Hann kemur m. a. inná eftirfarandi. Hvernig hafa apotek á islandi breytst sl.30-40 ár Hvernig er umhverfi apóteka þá og nú Hvað var framleitt af lyfjum í apótekum fyrir 40 arum Hvað er gert i dag Hvernig má koma í veg fyrir fölsun lyfja (kóði) Lyfjafalsanir eru vandamál í dag Hverjir urðu apotekarar og hversvegna Hverjir eru apotekarar i dag Hvernig var eignarhaldið Persónulegt og rekið á eigin kennitölu I dag eru það hlutafélög sem eiga ap- ótekin Hvernig hefur hlutur sjuklinga i lyfja- verði breyst og hvernig breytist hann á þessu ári. Hver var og er hlutur ríkisins í lyfja- kostnaði landsmanna í lyfjum sem seld eru í apótekum Hvernig var og er lyfjaverð ákveðið Hægt verður að sjá sina lyfjasögu á netinu Milliverkanir miðlægar Nú er um að gera að mæta. Allir vel- komnir. Kaffihúsið opið. Skemmtinefndin. Miða- sala á áRs- hátíð Árshátíð eldri borgara verður haldin í Stapa sunnudaginn 10. febrúar og hefst kl 18: 00. Miðasala verður á Nesvöllum í dag fimmtudaginn 7. febrúar frá kl.13: 00 til 17: 00. Skemmtinefndin. reTrobot tekur á móti verðlaunum fyrir 1. sæti á Músíktilraunum 2013 Ljósmynd: Brynjar Gunnarsson

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.