Reykjanes - 07.02.2013, Side 12
7. febrúar 2013
FXNytro M-TX árg. 2013
kr. 2.690.000
FARÐU LENGRA!
FXNytro M-TX Arctic Trucks, í samstarfi við MC
Xpress og Alpine ehf, býður nú
Yamaha Nytro vélsleða með turbo
uppfærslu. Þrjár útfærslur eru í
boði; 190, 240 og 270 hestöfl.
www.yamaha.is
Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900
Verð með turbo uppfærslu
frá kr. 3.475.000,-
turbo
Hitaveitu &
gasskápar
Blikksmiðjan Vík ehf / Skemmuvegur 42, 200 Kópavogi / kt. 4309850279 / Sími: 557-1555 / blikkvik@blikkvik.is
fyrir sumarbústaði og heimili
Gæði • Þjónusta • Öryggi
Hitaveituskápar
Við sérsmíðum og eigum líka hitaveitukassa á lager.
Einnig smíðum við mikið af kössum á kerrur, bíla ofl.
Fáanlegir í mörgum litum.
Gasskápar
Eigum gasskápa á lager. Læsanlegir
og smíðaðir úr áli.
Láttu ekki stela af þér kútunum!
12
www. fotspor.is
Blásið til sóknaR
Nú er unnið að stefnumótun fyrir Grindavíkurhöfn. Mark-mið er tvíþætt. Annars vegar
að greina stöðu Grindavíkurhafnar í
samkeppnisumhverfi sínu. Hins vegar
að koma með tillögur að stefnumótun
og sóknaráætlun fyrir Grindavíkurhöfn.
Sigurður A. Kristmundsson hafnar-
stjóri átti hugmyndina að því að fá ýmsa
hagsmunaaðila til að setjast niður og
ræða stöðu hafnarinnar og horfa til
framtíðar. Þorsteinn Gunnarsson,
upplýsinga- og þróunarfulltrúi Grinda-
víkurbæjar og nemi í MPM við HR, tók
að sér verkefnastjórn og nýtti tæki og
tól í náminu til þess að stýra vinnunni
á grundvelli stefnumótunarfærni.
Í hagsmunaaðilahópnum voru: Sig-
urður A. Kristmundsson hafnarstjóri,
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Sigurður
Jónsson skipstjóri, Pétur Már Benedikts-
son hjá Vélsmiðju Grindavíkur, Andrés
Óskarsson útgerðarstjóri í Vísi hf. og
Andrés Guðmundsson útgerðarstjóri
hjá Þorbirni hf. Hópurinn hefur skilað af
sér skýrslunni til hafnarstjórnar sem er
með hana til efnislegrar meðferðar. Þar
kemur m. a. fram að hlutverk hafnar-
innar okkar er að veita skipum öryggi
og þjónustu. Framtíðarsýn hafnarinnar
er að verða í fararbroddi sjávarútvegs-
hafna landsins.
Grindavík er ein stærsta verstöð
landsins. Hafnarsvæðið er lífæð Grinda-
víkurbæjar. Sjávarútvegurinn er hér í
öndvegi en Grindavík er langstærsti
saltfiskútflytjandi landsins. Umsvif
Grindavíkurhafnar eru mikil enda öflug
sjávarútvegsfyrirtæki sem gera héðan út.
Milli 30 og 40 þúsund tonnum af botn-
fiski hefur verið landað í Grindavíkur-
höfn á ári undanfarin ár. Fimm stærstu
sjávarútvegsfyrirtækin skapa rúmlega
700 bein störf í Grindavík við veiðar og
vinnslu. Auk þess eru fyrirtækin með
rekstur víða annarsstaðar um landið
sem skapar hundruði starfa til viðbót-
ar, m. a. í Vogum, á Þingeyri, Húsavík,
Djúpavogi, Reykjanesbæ og víðar. Það
má því hæglega halda því fram að sjáv-
arútvegsfyrirtækin í Grindavík skapi um
1.000 bein störf við veiðar og vinnslu á
Íslandi. Eru þá ótalin störf við fjölda
smærri sjávarútvegsfyrirtækja. Fjöldi
afleiddra starfa sem sjávarútvegur í
Grindavík skapar hleypur á hundruð-
um. Útflutningsverðmæti þess afla sem
landað er í Grindavík eru líklega um
20 milljarðar ári sem er um 4% heildar
útflutningsverðmæta Íslendinga. Inn-
flutningur um höfnina felst aðallega í
salti frá Spáni og Túnis. Fiskveiðar skipa
sem gerð eru út frá Grindavík hafa á
undanförnum áratug þróast úr veiðum
með mismunandi veiðafærum á tveim-
ur til þremur tímabilum á ári yfir í það
að veiða með einu veiðafæri allt árið.
Stærsti hluti aflans sem landaður er hér
kemur af togskipum, frystitogurum og
línuvélabeitningabátum. Þorskur, ýsa,
keila og langa eru algengustu tegund-
irnar. Auk þess landa hér netabátar og
handfærabátar og á vorin koma hingað
grásleppubátar.
Skipum hefur fækkað á undanförn-
um árum og sérhæfing orðið meiri. Árið
2012 voru gerðir út frá Grindavík þrír
frystitogarar og tveir ferskfisktogarar,10
stór línuskip 35-55 m löng og 12 smærri
línuveiðiskip c. a.15 m löng, tveir snur-
voðabátar og tveir netabátar. Þessu til
viðbótar eru um 10-15 handfærabátar.
Flestir þeirra fara í dagróðra. Auk þess
landa hér nokkur skip sem hafa aðra
heimahöfn en Grindavík. Fiskimenn
í Grindavík sækja á sömu aflamið og
forfeður þeirra öldum saman sem er til
marks um hófsama veiðar án rányrkju.
Grindavíkurhöfn veitir almenna hafnar-
þjónustu eins og hafnsögu, vigtun, af-
greiðslu á ferskvatni, rafmagni, og sorp-
hirðu. Starfsemi er samkvæmt samþykkt
hafnarstjórnar og hafnalögum. Starf-
semin tekur til afgreiðslu og þjónustu
skipa, afgreiðslu á vörum, ökutækjum
og farþegum og við lönd-un á fiski.
Eftir dýpkunarframkvæmdir í ár er
vilji bæjaryfirvalda að vinna að mótun
framtíðarsýnar Grindavíkurhafnar til
þess að gera markaðssetningu mark-
vissari, fá fleiri skip og auka tekjur.
(Greinin er úr Járngerði, fréttabréfi
Grindavíkurbæjar).
fRiðjón Vill fækka
stjóRnaRMönnUM
Bæjarráð Reykjanesbæjar tók fyrir undargerð Heklunn-ar, atvinnuþróunarfélags
Suðurnesja á fundi sínum 17. janúar
s. l. Friðjón Einarsson óskar bókað
að hann leggi eindregið til við stjórn
SSS að fækkað skuli stjórnarmönnum
í félaginu.
Vogar:
inga sigRÚn hættiR,
oddUR tekUR Við
Inga Sigrún Atladóttir forseti bæjarstjórnar lagði fram svo-hljóð andi bókun og tillögu á
fundi bæjarstjórnar Voga 23. janúar
s.l.: Ég óska hér með eftir að seja af
mér embætti forseta bæjarstjórnar í
Sveitarfélaginu Vogum í samræmi við
30. gr. sveitarstjórnarlaganna. Ástæð-
an eru annir og álag vegna fram boðs
til alþingiskosninga auk þess sem ég
tel farsælla að ég sé ekki tals maður
bæjarstjórnar á meðan ég stend í
kosningabaráttu á öðrum vett vangi.
Ég legg því til að Oddur Ragnar
Þórðarson verði forseti bæjarstjórnar
sveitarfélagsins. Tillagan er samþykkt
samhljóða með 7 atkvæðum.
Þar sem Oddur Ragnar Þórðarson
hefur verið kjörinn forseti bæjar-
stjórnar er lagt til að í hans stað
sem annar varaforseti bæjarstjórn-
ar verði kjörin Sveindís Skúladóttir.
Samþykkt samhljóða með 7 atkvæð-
um.
Bergur Brynjar Álfþórsson leggur
fram svohljóðandi bókun: Undirrit-
aður lýsir furðu sinni á því að frá-
farandi forseti telji farsælt að hún
sé ekki talsmaður bæjarstjórnar í
að draganda þingkosninga en skuli
samt ætla að vera talsmaður bæjar-
stjórnar á mikil vægasta vettvangi
samstarfs sveitarfélaga á Suðurnesj-
um.
íBÚUM fjölgaR
í ReykjanesBæ
og gRindaVík
en fækkaR
annaRs staðaR
Milli áranna 2011 og 2012 fjölg-aði íbúum Reykjanesbæjar
um 80 og fjölgun varð í Grindavík
um 30 íbúa. Í Sandgerði fækkaði íbú-
um um 90 og í Garði fækkar íbúum
um 50. Í Vogum fækkar íbúum um
20 milli ára.
oddný tapaði
Oddný G. Harðardóttir Garð-kona hefur verið á mikilli
framabraut innan Samfylkingar.
Hún hefur tekið að sér hvert for-
ystuhlutverkið af öðru og spennti
nú bogann hátt og bauð sig fram í
varaformannsembættið.
Oddný haði líst yfir stuðningi
við Guðbjart , sem formann, en
hann tapaði fyrir Árna Páli. Svo
fór að Oddný tapaði fyrir Katrínu
Júlíusdóttur, í Varaformannskjöri.
Oddný þarf því að bíða enn um sinn
til að komast til æðstu metorða inn-
an Samfylkingarinnar.
Mynd: Haraldur Hjálmarsson.
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.