Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 2

Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 2
2 7. mars 2013 Vilja hafra- graut Áhugi foreldra nemenda í Gerðaskóla var kannaður fyrir því að bjóða uppá hafragraut í byrj- un skóladags og var 65% svörunar var jákvæður fyrir þessu. Ánægja var með þetta framtak í skólanum. góugleði í garði Kvennfélagið Gefn og Félag eldri borgara á Suðurnesjum halda Góugleði í Samkomuhúsinu í Garði sunnudaginn 10. mars kl.15: 00. Fólk hvatt til að mætab og eiga saman skemmtilega stund. Kaffihlaðborð á kr.1500. Nú styttist óðum í alþimgiskosningarnar 27. apríl n. k. Stjórnmálaflokk-arnir hafa flestir slípað til sínar áherslur og í sjálfu sér ætti myndin að vera orðin nokkuð skýr hjá kjósendum. Núverandi ríkisstjórnar- flokkar Samfylkingin og Vinstri grænir bjóða áfram upp á það sama og verið hefur s. l. fjögur ár. Þeir sem áfram vilja stöðnun og skattahækkanir velja að sjálfsögðu vinstri flokkana. Við höfum reynsluna af vinstri stjórn. Íbúar á Suðurnesjum hafa rækilega fengið að kynnast stjórnarháttum Samfylkingar og Vinstri grænna. Atvinnuleysi og stöðnun. Mikill fjöldi einstaklinga og fyrirtækja hafa misst eignir sínar á nauðungarsölu. Vilja kjósendur virkilega þetta sama ófremdarástand áfram? Valkostur við stöðnunarstefnu Samfylkingar og Vinstri grænna er stefna Sjálf- stæðisflokksins. Flokkurinn hélt nýlega landsfund sinn undir yfirskriftinni Í þágu heimilanna. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að skapa atvinnu- lífinu tækifæri til að hefja framfarasókn. Við verðum að nýta tækifærin sem við höfum í orkuauðlindum okkar. Við verðum að skapa sjávarútveginum góð rekstrarskilyrði áfram. Með því móti sköpum við fleiri og fleiri störf. Kakan stækkar sem við höfum til skiptanna. það er hagur allra. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á lækkun skatta. Með því að efla at- vinnulífið koma meiri tekjur og skatttekjur ríkisins aukast. Það er hagur allra að einstaklingarnir hafi meira í sinni buddu. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að koma verði til móts við skuldsett heimili með því að draga úr vægi verðtryggingar á húsnæðis og neytenda- lánum. Auðveldum afborganir af húsnæðislánum með skattaafslætti. Sjálfstæðisflokkurinn leggur áherslu á að hag okkar Íslendinga sé best borgið utan ESB. Sjálfstæðisflokkurinn hefur óbilandi trú á landinu og íslensku þjóðinni. Það eru að myndast mjög skarpar línur í pólitíkinni. Valið stend- ur á milli þess hvort við kjósum áfram stöðnun, skattahækkanir og ranga forgangsröðun verka eða hvort við kjósum atvinnuuppbyggingu sem skapar möguleika á skattalækkunum. Kjósendur hafa slæma fjögurra ára reynslu af vinstri stjórn. Nú þarf íslenska þjóðin að breyta til hins betra og kjósa Sjálfstæðisflokkinn í þágu heimilanna. leiðari Í þágu heimilanna Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779. Reykjanes 5. Tbl.3. áRganguR 2013 Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is. framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is. auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54,  108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is. Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. reykjanesblad.is reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi. Viltu segja skoðun þína? Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is. aðalfundur feB Laugardaginn 9. mars kl.13: 30 verð-ur aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum haldinn á Nesvöllum. Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffi verð- ur í boði Landsbankans og FEB. Eldri borgarar eru hvattir til að mæta. Grindavík endurnýjun gatnalýs- ingar Við heiðarhraun, hVassahraun og skólaBraut Bæjarstjórn hefur samþykkt til-lögu að útboðsgögnum vegna endurnýjunar gatnalýsingar við Heiðarhraun, Hvassahraun og Skóla- braut unnin af Eflu og Verkís í desem- ber 2012. Innifalið í kostnaðaráætlun er breyting á götumynd Heiðarhrauns og Hvassahrauns þar sem göturnar verða þrengdar til þess að hægja á umferð- arhraða og auka öryggi gangandi veg- farenda. Verkefnið verður nánar kynnt í næstu Járngerði. Umfang verksins hefur því aukist töluvert frá fyrstu hugmynd. Skipulags- og umhverfisnefnd hefur yfirfarið hönnunargögn og umfang verksins. Sviðsstjóri skipulags- og um- hverfissviðs óskar eftir því að fjármagn sem áætlað var til endurnýjunar gatna- lýsingar á árinu 2014 verði flutt yfir á árið 2013 svo hægt sé að mæta fram- kvæmdakostnaði. Bæjarráð samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að samþykkt- ur verði viðauki við fjárhagsáætlun ársins 2013 að fjárhæð 10.000.000 kr og á móti lækki fjárfestingaáætlun ársins 2014 um sömu fjárhæð. Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu bæjarráðs. Kostnaðarauka á árinu 2013 verði mætt með lækkun á handbæru fé. (Heimasíða Grindavíkur) Búið er að setja upp styttu við Byggðasafnið í Garði. Hér er um að ræða Konu sjómannsins eftir Helga Valdimarsson. léttur föstudagur Á morgun 8. mars verður Léttur föstudagur á Nesvöllum. Að þessu sinni mætir Sigríður Pálína Arnardóttir frá Lyfju og fræðir okk- ur um allt mögulegt varðandi lyf og þjónustu. jóna Valgerður mætir Aðalfundur Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður haldinn laugardaginn 9. mars kl.13: 30 á Nes- völlum. Jóna Valgerður Kristjánsdóttir formaður Landssamband eldri borgara mætir og segir frá störfum sambandsins. kona sjómannsins

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.