Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 14
14 7. mars 2013
Grindavík
nemendur fá
dýr í heimsókn
Heimsóknir dýra í 5. P að undanförnu er liður í því að efla félagsfærni nemenda
með því að skapa þeim tækifæri til
virkrar þátttöku í skólastarfi. Eins
er verið að leggja áherslu á að skapa
jákvæðan skólabrag og góðan anda
á meðal nemenda. Með þessu móti
upplifa nemendur jákvæða samveru-
stundir með gæludýrunum og finna
fyrir væntumþykju sem smitast í
hópinn. Þá gefst einnig tækifæri til
að ræða þátt dýra í tengslum við nátt-
úrufræði, samfélagsfræði og lífsleikni.
Nýlega komu hvolparnir hennar
Ástu Sigríðar í heimsókn. Þeir eru
tveggja mánaða Cavilier tegund og
aðeins tveggja mánaða. Þeir heita
Karó, Tessí og Matti. Það var okkur
afar ánægjulegt að fá gest sem heit-
ir Matti eins og okkar ástkæri Matti
húsvörður. Margt var líkt með þeim
nöfnum þ. e. ljúfir og afar áhugasam-
ir um nemendurna í kringum sig. Á
næstunni munu þessir yndislegu
hvolpar eignast ný heimili. (Heima-
síða Grindavíkur)
Grindavík
3. Bekkur í útikennslu
Á þessu skólaári er fyrirkomu-lag smiðju þannig í Hópsskóla að 3. bekkur er í útikennslu
í textíl, myndmennt og tæknimennt
ásamt heimilisfræði. Hvert tímabil er
sjö vikur og eru kennsustundir tvisvar
í viku. Í útikennslu er lögð áhersla á
að fræða nemendur í umhverfinu og
fá þau til að ræða og skoða Grindavík
og nærumhverfi barnanna. Við leiðum
hugann að því hvað einkenni bæinn
okkar og nánsta umhverfi hans, förum
í heimsóknir og kíkjum á bryggjuna
og fleiri staði. Einnig er farið í úti-
kennsluverkefni nálægt skólanum þar
sem unnið er með verkefni er tengjast
stærðfræði og íslensku.
Vinsælast er þó að fara út í hraunið
og þar gerast ævintýrin hjá nemend-
um. Í vikunni var farið í Kúadalinn.
Í hrauninu þar deildi einn nemendi
hópsins ævintýraveröld sinni og systur
hans með okkur. Þarna töldu þau sig
finna hella og ýmsar furðuverur. Álfa-
rennibraut og álfakirkju og þarna var
álfagolfvöllur.
Í umhverfi eins og þessu fer hug-
myndaflug nemenda á flug og allir
hlutir verða svo merkilegir og nýtan-
legir. Þessi grindvísku börn vorkenna
börnum sem fá sjaldan tækifæri til að
kynnast svona ævintýraheimi. (Heima-
síða Grindavíkur)
Ókeypis Blóðsykurmælar og strimlar fyrir sykursjúka
Þú nærð tökum á sykursýkinni
með því að mæla blóðskykurgildið þitt reglulega
Bjóðum Medismart Zapphiro blóðsykurmæla og
strimla frá Swissneska fyritækinu Lobeck Medical Ltd.
* Mjög einfaldur í notkun, stór skjár, léttur og
handhægur
* "No Coding" - þarf aldrei að núllstilla
(calibrera)
* Þarf mjög lítið magn til mælinga * 0,6 µl
* Mælir blóðsykur á bilinu 1,1-35 mmol/L
* Mæling tekur aðeins 5 sek.
* Geymir 480 mælingar í minni
* Hægt að tengja við tölvu
blóðsykursmælir
Félagar í FEB
fá 12% afslátt
af öllum vörum
Apótek Suðurnesja
er opið
Mánud. - föstud. 9:00-19:00
Laugardaga 14:00-18:00
Velkomin í lágt lyfjaverð
í Apóteki Suðurnesja
að kjósa um
samning Við esB
Á Landsfundi Vinstri grænna var rætt um Evrópumál-in. Ítrekuð var andstaða
Vinstri grænna við inngöngu Íslands
í Evrópusambandið en ákveðið að
ljúka aðildarviðræðum og bera samn-
inginn undir þjóðina í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Þannig var ákveðið klára það
ferli sem þingmenn vinstri hreyfingar-
innar græns framboðs samþykktu að
hefja á Alþingi 2009.
Með því að samþykkja að setja að-
ildarviðræðum ákveðinn tímafrest
er þess krafist að fyrir liggi tímasett
viðræðuáætlun svo hægt verði að sjá
fyrir endann á aðildarviðræðunum.
Í tillögunni var nefnt eitt ár og tekið
mið af því að hægt yrði að taka afstöðu
til aðildarsamnings samhliða sveitar-
stjórnarkosningum 2014. Í tillögunni
sem var samþykkt á Landsfundinum
var einnig lagt til að Vinstri græn
beittu sér fyrir því að niðurstaða úr
þjóðaratkvæðagreiðslu yrði bindandi.
Það er mikilvægt að umræðan um
Evrópumálin festist ekki í kappræð-
um andstæðra póla og því geta legið
sóknarfæri í því að sjá endanlegan
samning. Margir hafa reiknað með því
að í samningi felist ýmislegt gott, jafn-
vel það gott að það sé hægt að leggja að
jöfnu við sjálfsákvörðunarrétt þjóðar-
innar í ákveðnum málaflokkum. Með
því að klára samningaferlið er hægt að
fá úr því skorið og þannig meta kosti
og galla þess sem "er í pakkanum".
Vinstri græn boðuðu tvöfalda
þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild fyrir
síðustu kosningar. Í fyrri atkvæða-
greiðslunni átti að kjósa um hvort
þjóðin vildi hefja aðildarviðræður
með tilliti til þeirrar stjórnskipun-
ar og hugmyndafræði sem að baki
sambandinu býr. Þessi krafa Vinstri
grænna var ein þeirra sem varð að
gefa eftir fyrir fyrstu vinstri stjórn
lýðveldisins. Þannig er einfaldlega
vinna í stjórnmálum, málamiðlanir
um stórt og smátt.
Nýkjörinn formaður Vinstri grænna
sagði í Silfri Egils um helgina að hún
eigi ekki í neinum vandræðum með
að vera á móti inngöngu í Evrópu-
sambandið en leyfa samt sem áður
samningaviðræður og þjóðaratkvæða-
greiðslu. Katrín Jakobsdóttir veit að í
lýðræðisþjóðfélagi eru sameiginlegar
ákvarðanir þær ákvarðanir sem sátt
skapast um. Hún benti einnig á að
Norðmenn hefðu tvisvar sinnum farið
í þjóðaratkvæðagreiðslu um samning,
það hefðum við aldrei gert.
Nýafstaðinn Landsfundur VG
markaði tímamót í starfi hreyfingar-
innar. Þar var kosin ný forysta sem
stimplaði sig inn með því að horfa
fram á veginn. Í ræðu Katrínar gaf
hún fyrirheit um nýja tíma. Síðasta
kjörtímabil fór í að bjarga ríkisfjár-
málunum og nú er kominn tími til
að bæta hag almennings–það verður
megin verkefni Vinstri hreyfingar-
innar græns framboðs á næsta kjör-
tímabili.
Inga Sigrún Atladóttir
guðfræðingur skipar 2. sæti
á lista VG í Suðurkjördæmi.