Reykjanes - 16.05.2013, Blaðsíða 2
2 16. maí 2013
Alþingiskosningarnar þann 27. apríl s. l. marka mikil tímamót í sögu Suðurnesja. Sjö þingmenn náðu kjöri, sem búsettir eru hér á Suðurnesjum. Á valdatíma ríkisstjórnar Jóhönnu og Steingríms J.
gerðist lítið í atvinnuuppbyggingu hér á svæðinu eins og lesendur vita svo
mætavel. Þótt þingmenn séu að sjálfsögðu kosnir til að gæta hagsmuna landsins
alls skiptir það miklu máli að þeir þekki vel til staðhátta hér. Það hlýtur því að
vera fagnaðarefni fyrir okkur íbúa á Suðurnesjum að svo stór sveit skuli nú
setjast á Alþingi. Við hljótum að gera þá kröfu til þingmannanna hvar í flokki
sem þeir standa að þau vinni saman að hagsmunum svæðisins. Það skiptir
öllu að nú verði unnið hörðum höndum að byggja upp atvinnulífið og að
atvinnuleysi heyri sögunni til. Nýlega var birt athyglisverð könnun sem sýnir
svart á hvítu að stór hópur fólks hér er með tekjur undir 250 þús. krónum á
mánuði. Það hefur komið skýrt fram hjá Árna Sigfússyni, bæjarstjóra, að með
tilkomu álversins í Helguvík verði laun starfsmanna frá 500 þúsund krónum.
Það skiptir því öllu að álverið komist í gang.
Ný vinnubrögð framundan.
Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum verðurmikil endurnýjun á Alþingi. Það
gerðist einnig í kosningunum árið 2009. Mikið af ungu fólki kemur til með
að sitja á þingi. Það eru bundnar vonir við að framundan séu önnur vinnu-
brögð en verið hafa síðustu áratugina. Allur almenningur er orðinn þreyttur á
vinnubrögðum og ásýnd Alþingis. Traust á Alþingi er nánast ekkert því miður.
Þannig á það ekki að vera. Þingmenn eiga að geta unnið saman að málefnum
þótt þeir komi úr ólíkum stjórnmálaflokkum. Að sjálfsögðu er eðlilegt að
tekist sé á um málefni, en það hlýtur að vera hægt án þess að meirihlutinn sýni
valdníðslu eða að minnihlutinn haldi uppiendalausu málþófi. Þjóðin treystir
því að nú séu framundan betri vinnubrögð. Þá mun traust á Alþingi aukast.
Samfylkingarhrun.
Þjóðin fékk að kynnast vinnubrögðum hinnar tæru Vinstri stjórnar s. l. fjögur
ár. Það sýndi sig í Alþingiskosningum að þjóðin var búin að fá yfir sig nóg af
vinstri mennskunni. Tap vinstri stjórnarinnar var algjört. Samfylkingin setti
Íslandsmet í atkvæðatapi og spurning hvort það er ekki einnig Evrópumet.
Samfylkingin er því hrunflokkur Íslands.
Af öllum lélegum kosningaúrslitum á landsvísu er útkoma Samfylkingarinnar
í Suðurkjördæmi verst. Flokkurinn rétt skríður yfir 10% fylgi og missir tvo
þingmenn frá kosningunum 2009. Þessi úrslit hljóta að teljast verulegt áfall fyrir
forystumann Samfylkingar hér, Oddnýju G. Harðardóttur. Hún hefur gegnt
embætti ráðherra og er formaður þingflokks Samfylkingar. Þá er einnig hægt
að líta til þess að framboðslisti Oddnýjar í síðustu sveitarstjórnarkosningum
tapaði einnig tveimur fulltrúum í Garðinum. Kjósendur í Suðurkjördæmi
hafa sent skýr skilaboð að þeir hafi engan áhuga fyrir Samfylkingunni, hvorki
í sveitarstjórnum eða á Alþingi.
Oddný G. Harðardóttir fór hratt upp metorðalistann innan Samfylkingarinnar
en það lítur út fyrir að sama hraðferðin geti orðið niður listann.
leiðari
Sjö Suðurnesjamenn
taka sæti á Alþingi
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja.
Seg ið ykk ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn.
Vin sam leg ast send ið okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða
hring ið í síma 847 2779.
Reykjanes 9. Tbl. 3. áRganguR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. fotspor.is
reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi.
Viltu segja skoðun þína?
Næsta blað
Reykjanes kemur næst út fimmtu-daginn 30. maí n. k. Auglýsingasíminn er 578 1190 Netfang: auglysingar@fotspor.is
Ályktun frá Landsfundi Landssambands eldri borgara(LEB) haldinn í Hafnafirði 7. - 8. mai 2013:
laNdsfuNdur leb
ályktar eftirfar-
aNdi um kjaramál
eldri borGara
Kjaramálahópur á landsfundi LEB samþykkir að hækka þurfi skattleysismörk veru-
lega enda sé það besta kjarabótin fyrir
eldri borgara.
Einnig samþykkti hópurinn að at-
vinnutekur 67 ára og eldri skuli ekki
skerða greiðslur frá Tryggingastofnun.
Kjaramálnefnd LEB og stjórn
Landssambandsins hefur marg ítrekað
fjallað um niðurskurð á kjörum aldr-
aðra frá miðju ári 2009 þegar bætur
voru skertar. Sá mikli niðurskurður
hefur haft áhrif á kjör þúsunda eldri
borgara á undanförnum árum. Á sama
tíma hefur verðlag hækkað og verð-
bólga verið óvenju mikil. Alvarlegar
afleiðingar hrunsins bitna mjög á
eldri borgurum. Um það hefur verið
fjallað af opinberum aðilum en enn
sitja eldri borgarar eftir í að fá það
bætt.
Því er skorað á nýkjörna þingmenn
að virða réttarstöðu aldraðra en um
36.000 manns eru á aldrinum yfir 67
ára og hafa enga lögvarða samnings-
stöðu um kjör sín og réttindi. Hvatt
er til samráðs ríkis og sveitafelaga við
eldri borgara um kjör aldraðra.
Jafnframt skorar fundurinn á
verðandi ríksistjórn að taka til við að
innleiða nýtt frumvarp um almanna-
tryggingar sem ríkti mikil sátt um
eftir kynningar undirbúningshóps-
ins. Mikilvægt er að taka tillit til að í
frumvarpinu er gert ráð fyrir gildis-
töku um s.l. áramót þannig að fjögurra
ára innleiðing getur aðeins tekið þrjú
ár. Það er að segja að hækkanir sem
áttu fram að ganga á þessu ári með
samþykkt nýrra laga um almanna-
tryggingar ber að bæta og leiðrétta
gagnvart öldruðum
LEB krefst þess að kjaraskerðingin
frá 1. júlí 2009 verði strax afturkölluð
það er réttlætismál. Kjaraskerðingin
nemur í júli á þessu ári rúmlega
17milljörðum.
Vanefndir við að leiðrétta kjör eldri
borgara í samræmi við launaþróun
brýtur í bága við lög. Í lögum um
almannatryggingar eru ákvæði þess
efnis að við hækkun lífeyris skuli tekið
mið af hækkun launa og verðlags. Skuli
lífeyrir aldrei hækka minna en vísi-
tla neysluverð en því hefur ekki verið
framfylgt undanfarin ár.
Fundurinn lýsir einnig yfir mikilli
óánægju með hækkanir um s.l. ára-
mót á þjónustugjöldum til lækna,
sjúkraþjálfara, og nú lyfjakostnaðarog
fjölda annara hækkanna sem fólk þarf
að mæta án nokkurra leiðréttinga á
greiðslum til að mæta þessum kosnaði.
Landsfundur LEB krefs þess að virð-
isaukaskattur af lyfjum verði lækkaður
úr hæsta þrepi sem er 25,5 % í lægsta
þrep sem er 7%
Þessi breyting yrði stórlækkun á lyf-
jum fyrir eldri borgra landsins sem eru
sennilega fjölmennasti kaupandi lyfja
hér á landi. Það væri mikil kjarabót.
Aðalfundur LEB óskar eftir að ný
stefna verði tekin upp við álagningu
fasteignagjalda af húsnæði er menn
eiga og búa í. Óskað verði lagaheimild-
ar fyrir sveitafélögin til þess að þau hafi
heimild til að afnema fasteignagjöld af
húsnæði eldri borgara .léttur föstudaGur
Á morgun 17.maí verður Léttur föstudagur á Nesvöllum,sem
hefst kl.14:00. Séra Sigurður Grétar
Sigurðsson,sóknarprestur, mætir og
heldur smá hugvekju. Einnig ætlar Sig-
urður Grétar að taka með sér gítarinn.
Kaffihúsið opið. Allir velkomnir.
barátta til betri kjara
Á síðustu árum hafa eldri borgara orðið fyrir miklum kjaraskerðingum. í kosningabaráttunni á dögunum lofuðu
allir stjórnmálaflokkar að eldri borgurum yrði bættur skaðinn. Forystufólk Félags eldri borgara á Suðurnesjum
tók þátt í kröfugöngunni 1.maí s.l.
fækkar
oG fjölGar
Í Garði,Sandgerði og Vogum hefur íbúum fækkað frá 1.janúar 2012 til 1.janúar 2013. Í Grindavík og
Reykjanesbæ hefur íbúum fjölgað á
sama tímabili.
1. jan 2012 1. jan 2013
Garður 1477 1429
Sandgerði 1672 1581
Vogar 1126 1105
Grindavík 2830 2860
Reykjanesbær 14.137 14.231