Reykjanes - 16.05.2013, Qupperneq 12
16. maí 2013
Garður:
sterk fjárHaGsleG staða
Ársreikningur Sveitarfélagsins Garðs fyrir árið 2012 fel-
ur í sér sterka fjárhagslega stöðu
sveitarfélagsins. Handbært fé A- og
B- hluta í óbundnum bankainni-
stæðum nam kr. 655 milljónum
og langtímaskuldir voru kr. 291
milljónir. Skuldahlutfall samkvæmt
viðmiðum í fjármálareglum sveit-
arstjórnarlaga var 2,04%, en má
vera allt að 150%. Rekstrarafkoma
samkvæmt samanteknum ársreikn-
ingi A- og B-hluta, fyrir afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) var já-
kvæð að fjárhæð kr. 37 milljónir.
Rekstrarniðurstaða ársins var hins
vegar rekstrarhalli að fjárhæð kr.
50 milljónir. Báðar þessar lykil-
tölur rekstrarreiknings eru mun
hagstæðari en gert var ráð fyrir í
fjárhagsáætlun ársins. Framlag frá
Jöfnunarsjóði sveitarfélaga nam
um 32% af heildartekjum A-og
B- hluta og er því ljóst að rekstur
sveitarfélagsins er mjög háður þeim
framlögum, m. a. þar sem íbúum
sveitarfélagsins hefur fækkað og
skatttekjur eru lágar í samanburði
við mörg önnur sveitarfélög. Það
er því ljóst að meðan ekki verður
aukning á skatttekjum sveitarfé-
lagsins verður Sveitarfélagið Garður
að treysta á framlög Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga. Bæjarstjórn Sveitar-
félagsins Garðs lýsir ánægju með
sterka fjárhaglega stöðu sveitar-
félagsins og leggur áherslu á að
viðhalda henni til framtíðar. Bæj-
arstjórn lýsir einnig ánægju með
að niðurstöður rekstrarreiknings
sýna betri afkomu en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun. Hins vegar
leggur bæjarstjórn áherslu á að
sveitarfélagið standist ákvæði í fjár-
málareglum sveitarstjórnarlaga um
jafnvægisreglu varðandi rekstrar-
niðurstöðu næstu ára.
Bókunin samþykkt samhljóða.
þiNGmaNNarúta suðurNesja
Suðurnesjamenn hafa aldrei átt eins marga þingmenn og núna. Sjö stykki þingmenn komu upp
úr kjörkössunum. Nú hlýtur að verða
einstök blómatíð framundan hjá okkur.
Snjókallinn hefur hlerað að Samtök
sveitarfélaga á Suðurnesjum ætli að
festa kaup á rútu til að sjö menningarn-
ir geti ferðast saman til og frá Alþingi.
Saman í rútu mun sýna þjóðinni hversu
mikil eining og samhugur ríkir á milli
þingmannanna. Svo sýnir þetta mikla
ráðdeild og er umhverfisvænt.
12
www.snarverk.is • Snarverk ehf
Steypusögun og kjarnaborun • Alhliða gröfuþjónusta
Gröfum fyrir sólpöllum, drenlögnum og skolpi.
Öll almenn jarðvegsskipti,
fjarlægjum jarðveg og komum með nýjan.
Snarverk ehf • sími 863-1291
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Belladonna á Facebook
tjaldsVæðið
í GriNdaVík
opNað
Tjaldsvæðið í Grindavík opn-aði mánudaginn 13. maí síðast liðinn en ferðamanna-
sumarið 2013 fer svo í gang fyrir
alvöru þegar líða fer á mánuðinn.
Tjaldsvæðið verður opið fram í
miðjan september. Allar upplýsingar
um verðskrá og fleira má sjá á www.
visitgrindavik. is. Þeir ferðaþjón-
ustuaðilar sem vilja koma upplýsing-
um inn á þá síðu geta sent tölvupóst
á heimasidan@grindavik. is
ViðsNúNiNGur í rekstri
GriNdaVíkurbæjar
Ársuppgjör Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2012 var lagt fram til fyrri umræðu í
bæjarstjórn Grindavíkurbæjar í byrjun
maí. Rekstrarniðurstaðan er talsvert
betri en áætlanir gerðu ráð fyrir en 230
milljón kr. rekstrarafgangur varð í fyrra
sem er um 170 mkr. betri afkoma en
ráð var fyrir gert. Munar þar mestu
um að rekstrartekjur eru 208 mkr yfir
áætlun, þar á meðal útsvar rúmlega
100 mkr. og framlag úr Jöfnunarsjóði
tæpar 50 mkr.
Gert er ráð fyrir fjárfestingu upp á
1700 mkr. á næstu fjórum árum. Ráðast
á í uppbyggingu íþróttamannvirkja og
byggingu bókasafns og tónlistarskóla
við grunnskólann. Framkvæmdirn-
ar verða að mestu fjármagnaðar með
veltufé frá rekstri og um 200 mkr af
handbæru fé. Því þarf ekki að taka lán
til framkvæmdanna en á móti kemur að
reksturinn mun þyngjast talsvert þegar
mannvirkin verða komin í notkun.
„Niðurstaðan er jákvæð og ljóst að
reksturinn er á réttri leið og í samræmi
við markmið sem bæjarstjórnin setti
sér undir lok árs 2010 og aftur fyrir
síðustu fjárhagsáætlun. Við erum að
ráðast í miklar framkvæmdir án þess
að taka lán og því er mikilvægt að bæj-
arsjóður skili góðum afgangi á næstu
árum. Þessi viðsnúningur í rekstri bæj-
arins til hins betra er samstilltu átaki
bæjarstjórnar og starfsfólks bæjarins
að þakka sem hefur lagt sitt af mörk-
um við ýmsar hagræðingaraðgerðir.
Grindavíkurbær er einn vinnnustaður
og ábyrgðin og árangurinn er okkar
allra, “ segir Róbert Ragnarsson bæj-
arstjóri.
Rekstrarniðurstaða A-hluta Grinda-
víkurbæjar var jákvæð upp á 180, 3
mkr. en áætlun gerði ráð fyrir 55, 9 mkr.
hagnaði. Rekstrarniðurstaða í saman-
teknum reikningsskilum A og B hluta,
var 230, 4 mkr. í afgang en áætlun gerði
ráð fyrir 58, 6 mkr. í rekstrarafgang.
Við gerð fjárhagsáætlunar ársins 2013
var ljóst að útsvarstekjur ársins 2012
yrðu nokkuð umfram áætlun. Því var
samþykkt að lækka útsvarshlutfall úr
14, 48% í 14, 28%
Samkvæmt sveitarstjórnarlögum
skal rekstur sveitarfélaga vera fyrir
ofan núllið á hverju þriggja ára tímabili
með árið 2011 sem upphafsár. Áætlanir
gerðu ráð fyrir að tap ársins 2011, sem
var rúmar 100 mkr. , yrði jafnað á ár-
unum 2012 og 2013. Tekjuauki á árinu
2012 gerir hins vegar að verkum að
búið er að jafna tapið nú þegar.
Snjó kall inn skrif ar:
MENNTASJÓÐUR
Menntasjóður Sveitarfélagsins Voga auglýsir
hér með eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum.
Nemendur sem ljúka öðru ári í framhaldsskóla á
skólaárinu sem nú er að ljúka geta sótt um styrki
þessa, en auk þess eru þeim þremur nemendum
sem sýna bestan námsárangur á lokaprófum í 10.
bekk Stóru-Vogaskóla veittur styrkur.
Umsóknarfrestur er til 10. júní 2013, og skal um-
sóknum skilað til bæjarskrifstofunnar í Iðndal 2.
Með umsókninni skal fylgja staðfest útskrift af
námsárangri fyrstu tveggja ára framhaldsskóla-
náms. Styrkirnir verða afhentir á fundi bæjar-
stjórnar í lok júní.
Sveitarfélagið Vogar
Iðndal 2,
190 Vogar