Reykjanes - 27.06.2013, Blaðsíða 15
11Árborg Lifandi samfélag í alfaraleið
Öflugt starf og
allir velkomnir
L
eikfélag Selfoss er eitt af öflugustu
áhugaleikfélögum landsins og
margar uppsetningar félagsins
hafa vakið mikla athygli. Sigríður
Hafsteinsdóttir tók við sem formaður
félagsins á þessu ári og við hittum á
hana og varastjórnarkonuna Gerði H.
Sigurðardóttur þar sem þær voru að
ljúka einum af mörgum velheppnuðum
dögum á leikhúsnámskeiði fyrir börn
sem haldin eru í Leikhúsinu við Sigtún
á sumrin.
„Starf leikfélagsins er nokkuð
fastmótað frá ári til árs,“ segja þær
stöllur. „Starfsárið byrjar yfirleitt í
ágúst og er alveg fram í júní eða júlí.
Við byrjum oft á Hugarflugi á haustin
sem er stuttverkahátíð þar sem allir
geta stigið á svið og gert það sem þá
langar til. Síðan höfum við stundum
verið með uppsetningar á haustin,
það hefur ekki verið regla á því en
okkur langar til að hafa möguleika
á því að setja upp eitthvað styttra
á fyrir áramót og gefa þá jafnvel
félagsmönnum sem hafa verið að læra
leikstjórn í Leiklistarskóla Bandalags
íslenskra leikfélaga tækifæri á að
spreyta sig á uppsetningu,“ segir
Sigríður en í desember er komin hefð
á jóladagskrá hjá félaginu.
„Þar eigum við saman notalega
og skemmtilega stund í leikhúsinu,
hlustum á jólasögur, syngjum og
borðum smákökur. Svo er stóra
uppsetningin okkar frumsýnd eftir
áramót. Stundum byrjum við að vinna
í henni fyrir jól og frumsýnum í janúar,
eða þá að við byrjum eftir áramót og
frumsýnum í febrúar. Síðan er sýnt fram
á vor, þá er gjarnan annað Hugarflug
oftast í tengslum við Vor í Árborg.
Síðan eru það sumarnámskeiðin
sem loka leikárinu hjá okkur eftir að
grunnskólum lýkur. Þau hafa verið
starfrækt í meira en tíu ár og hafa verið
mjög vel sótt. Það hafa verið biðlistar á
þessi námskeið og í fyrra bættum við
við tveimur námskeiðum til að anna
eftirspurn,“ bætir Gerður við.
Sunnlendingar duglegir
að mæta í leikhús
Síðustu uppsetningar hjá félaginu
hafa gengið vel, sýningarnar hafa
fengið góða dóma og mikla aðsókn.
„Sunnlendingar eru búnir að vera
duglegir að mæta í leikhús hjá okkur.
Við erum með mjög metnaðarfullar
uppfærslur og höfum kynnt þær vel.
Félagið er líka mikilvægur þáttur í
menningarlífinu í sveitarfélaginu
og það er ánægjulegt að sjá hvað
aðsóknin hefur verið góð og hversu
mikinn áhuga íbúarnir sýna starfinu
okkar,“ segir Sigríður.
Leikfélag Selfoss er opið öllum
og þeir sem eru áhugasamir um
starfið ættu að vera óhræddir við
að banka uppá í leikhúsinu. „Við
höldum gjarnan haustfundi áður en
vetrarstarfið hefst og fyrstu samlestrar
fyrir uppsetningar eru auglýstir
í héraðsblöðunum. Þar eru allir
velkomnir,“ segir Gerður.
„Á haustin höfum við líka
oft verið með laugardagskaffi á
laugardagsmorgnum þar sem húsið er
opið fyrir gesti og gangandi og öllum
er velkomið að reka inn nefið þar.
Annars er formleg inntaka félaga á
aðalfundi á vorin en öllum er frjálst að
koma og taka þátt í starfi félagsins ef
þeir vilja vera með – hvenær sem er.“
Gerður er Selfyssingur og hefur
starfað með leikfélaginu í yfir tuttugu
ár. Styttra er síðan Sigríður gekk í
félagið eftir að hún flutti á Selfoss.
„Ég var reyndar búin að búa hérna í
langan tíma áður en ég hafði fattað
að hér væri leikfélag. Um leið og
ég uppgötvaði það þá mætti ég
einmitt á haustfund og var mjög vel
tekið af leikfélögunum. Ég hef bara
verið óstöðvandi síðan,“ segir nýi
formaðurinn hlæjandi að lokum.
11 hlýleg parhús
22 herbergi
Eldunaraðstaða og baðherbegi með sturtu
2 heitir pottar
Morgunverður/hlaðborð í þjónustumiðstöð
Hópar geta fengið kvöldverð
Þráðlaust internet í öllum húsum
Tjaldstæði Gesthúsa er glæsilegt
Tjaldmiðstöð með snyrtingum, sturtu, eldunaraðstöðu og stórum matsal
Frítt þráðlaust internet í þjónustumiðstöð
Stutt í alla helstu
ferðamannastaði á Suðurlandi
Gesthús Selfossi
Hlýlegur gististaður í hjarta Selfoss
Engjavegur 56, 800 Selfoss
482 3585 www.gesthus.is
TOPO-TD0702A
7" TFT-LCD Skjár
Skjástærð 7" / 16: 9:
Birta 350cd/m2:
Upplausn 336960 pixlar:
Hægt að tengja 2 vélar
Spenna 12V/24V DC:
TOPO-TD0704A
7" Quad skjár
Skjástærð 7" / 16: 9:
Birta 350cd/m2:
Upplausn 336960 pixels:
Hægt að tengja 4 vélar
Spenna 12V/24V DC:
1.4PIN standard konu tengi í 4PIN karl tengi
TOPO-TV832N/P-A
TOPO-TV832N/P-B
TOPO-TV832N/P-E
1 Hliðarmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED Ljós 10 stk.、 :
4 IR fjarlægð uþb. 6m、 :
5 Linsuvídd : 110° 120°、 ,
6 Sp nna: DC6-20V、
1 Bakkmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED Ljós 18 stk.、 :
4 IR fjarlægð 10m、
5, Linsuvidd 110° 120°: ,
6 Spenn : DC6-20V、
TOPO-TR634N/P-A
1. Bakkmyndavél
2. Vatnsheldni: IP 68
3. Linsu vídd : 170°
4. Spenna: DC6-16V
TOPO-TR634/P-G
1. Bakkmyndavél
2. Vatnsheldni : IP68
3. Linsuvídd : 170°
4. Spenna: DC6-16V
TOPO-TD0562A
5.6"TFT-LCD digital Skjár
Skjástærð 5.6" / 4: 3 display:
Birta 300cd/m2:
Upplausn 224640 pixels:
Hægt að tengja 2 vélar
Spenna 12V/24V DC:
TOPO-TP-CA5.0M
TOPO-TP-CA8.0M
TOPO-TP-CA10.0M
TOPO-TP-CA20.0M
kr. 22.121
kr. 17.820
kr. 18.524
kr. 10.753
kr. 10.118
kr. 30.474
kr. 33.129
kr. 43.542
kr. 3.124
kr. 3.580
kr. 4.090
kr. 5.678
1 Bakkmyndavél、
2 Vatnsheldni IP68、 :
3 IR LED ljós 18 stk.、 :
4 IR fjarlægð uþb. 10m、 :
5 Linsuvídd 110° 120°、 : ,
6 Spenna: DC6-20V、
TOPO-TP-TTK-TRUKKA KIT kr. 27.479
Bakkmyndavélar og skjáir
CTC-1131 fastlínustöð
Hægt að tengja 20 þráðlausa skynjara
Getur hringt í 6 símanúmer
Frábær fyrir heimilið og vinnustaðinn
CTC-1132 GSM stöð
Hægt að tengja 30 þráðlausa skynjara
Getur hringt í 6 símanúmer og SMS
Frábær fyrir bústaðinn,heimilið og vinnustaðinn
CTC-2716 GSM stöð
Hægt að tengja 30 þráðlausa skynjara
Getur hringt í 6 símanú er
Hægt að tengja hitaskynjara við stöðina
Hægt að stjórna með snjallsíma
Frábær fyrir bústaðinn,heimilið og vinnustaðinn
Dalvegur 16b s: 554 2727
15% afsláttartilboð af
Gardsm n öryggiskerfum.
Gardsman öryggiskerfi
Einnig til í hvítu.