Reykjanes - 08.08.2013, Blaðsíða 12
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
Verslunin Belladonna á Facebook
Flott föt fyrir flottar konur
st. 38 – 58
afsláttur af
öllum
útsöluvörum
*
LOKA-ÚTSÖLULOK
*70% afsláttur frá upphaflegu verði
- reiknast af á kassa
70%
Ný kynslóð
sólarkrema
Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18
Sími 565 0500 • 897-1923
Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í k
Saltfiskur er
mikilvægur hluti
af matarmenningu
íslensku þjóðarinnar
frumkvöðlafyrirtæki ársins - fiskvinnsla frá árinu
Frábær gjöf handa Íslendingum út um allan heim!
Ekta saltfiskur tilbúinn til útvötnunar.
Tímarnir breytast en saltfiskurinn frá
Ekta ski, þessi gamli góði með
íslenskum kartöum og smjöri, stendur
alltaf fyrir sínu.
Sérútvatnaði saltfiskurinn er sérstaklega
hentugur í seiðandi saltfiskrétti.
Fæst um allt land. Hafðu samband!
466 1016
www.ektafiskur.is
8. ágúst 2013
Gamli
vitinn í
kringum
1940
Ljósmynd frá Þorvaldi Hall-
dórssyni í Vörum
Gamli vitinn var byggður árið 1897. Danska flotamála-stjórnin sá um byggingu
hans.
Bygging vitans var merkisviðburður
en í byggðarlaginu þá voru aðallega
torfbæir og nokkur timburhús.
Ljós Garðskagavitans sló bjarma á
nágrennið, þar sem menn notuðust
við ófullkomin olíuljós og lýsislampa,
utanhússlýsing var engin. Ég minnist
hve gamlir menn lýstu þessu skæra
ljósi af miklum fjálgleik.
(Sigurbergur Þorleifsson, vita-
vörður í Garðskagavita 1951-1975)
Garð
skagaviti
Ljósmynd: Svanhildur Ólafía Guð-
jónsdóttir (Lóa) frá Réttarholti í
Garði
Garðskagaviti var byggður sumarið 1944 á þremur mánuðum af 10-15 manna
vinnuflokki, undir stjórn Sigurðar
Péturssonar frá Sauðárkróki, en
hann annaðist byggingu 60 vita
hér á landi. Voru þá vitar landsins
orðnir 140, þó aðeins væru liðin 66
ár frá því að fyrsti vitinn var reistur
(Reykjanesviti). Garðskagaviti var
vígður sunnudaginn 10. september
1944, með mikilli viðhöfn. Fór vígslan
fram með útiguðsþjónustu. Séra Ei-
ríkur Brynjólfsson, sóknarprestur
predikaði, kirkjukórar Útskála og
Keflavíkursókna sungu, en Emil Jóns-
son, vitamálastjóri flutti vígsluræðuna.
þakkaði hann sóknarprestinum,
séra Eiríki Brynjólfssyni á Útskálum,
sem hafði undirbúið hátíðarhaldið, en
það væri í fyrsta sinn sem tekið væri
á móti nýjum vita í héraði af slíkum
myndarskap. „Minnir það mig á”, sagði
Emil í ræðu sinni, „að fyrstu sagnir
um leiðarljós fyrir sjómenn á Íslandi,
eru tengdar við kirkjuna. Mér hefir
verið á það bent, að verið hafi hér til
forna, um 1200 og jafnvel fyrr ákvæði
um að ljós skyldi loga í ákveðnum
kirkjum, allar nætur tiltekin tímabil.
Þegar þessi ákvæði voru rannsökuð
nánar kom í ljós, að flestar þær kirkjur,
sem hér var um að ræða, voru nálægt
sjó, og á þeim stöðum þar sem ætla má
að sjófarendur hafi getað notið þeirra.”
Er ræða Emils Jónssonar mjög fróðleg
og um margt merkileg.
(Ræða Emils er prentuð
í Suðurnesjablaðinu
FAXA, nóv.-blaði 1944).
Gamla myndin
12
Samstarf Sandgerðis og
MänttaVilppula í Finnlandi
Nýlega barst Sandgerðisbæ til-kynning frá Landskrifstofu Menntaáætlunar þar sem
tilkynnt er um styrk til samstarfsver-
kefnis í Comenius Regio hluta mennta-
áætlunarinnar.Samstarfsverkefnið
2013-2015.
Um er að ræða styrk til samstarfs-
verkefnis milli Sandgerðisbæjar og
Mäntta-Vilppula, sveitarfélags í Finn-
landi.
Verkefnið nefnist "Þróun námskrár
og þjálfun kennara" og snýst um gerð
námskrár í náttúrufræðum, listum og
handmennt. Samstarfsaðilar innan
Sandgerðisbæjar eru Leikskólinn
Sólborg, Grunnskólinn í Sandgerði,
Listatorg, Þekkingarsetur Suðurnesja,
Náttúrustofa Suðvesturlands og Há-
skólasetur Suðurnesja. Hluti Sandgerð-
isbæjar er 20.331 evrur.