Reykjanes - 19.09.2013, Page 2
2 19. september 2013
Reykjanes 17. Tbl. 3. áRganguR 2013
Útgefandi: Fótspor ehf. Ábyrgðarmaður: Ámundi Ámundason, sími: 824 2466, netfang: amundi@fotspor.is.
framkvæmdastjóri: Ámundi Steinar Ámundason, netfang: as@fotspor.is.
auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykja vík. Auglýsingasími: 578 1190, netfang: auglysingar@fotspor.is.
Ritstjóri: Sigurður Jónsson, netfang: asta. ar@simnet.is, sími: 847 2779. Myndir: Ýmsir. Umbrot: Prentsnið
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja. Upplag: 8.000 eintök. dreifing: Íslandspóstur. Vefútgáfa Pdf: www. fotspor.is
reykjanes er dreift í 8.000 eintökum ókeypis í allar íbúðir á reykjanesi.
Frí blað ið Reykja nes vill gjarn an kom ast í sam band við íbúa Suð ur nesja. Seg ið ykk
ar skoð un með því að senda inn pist il. Send ið inn fyr ir spurn. Vin sam leg ast send ið
okk ur tölvu póst á net fangið asta. ar@sim net.is eða hring ið í síma 847 2779.
Viltu segja skoðun þína?
Í maí á næsta ári verður kosið í sveitarfélögum landsins. Þar gefst kjós-endum færi á að segja sína skoðun með atkvæði sínu hverjir skipa næstu sveitarstjórn. Eins og fyrirkomulagið er núna hefur kjósandinn þó aðeins
möguleika á að merkja við einn framboðslista. Lítist okkur ekki á einhvern
frambjóðandann getum við strikað nafn hans út, en það þarf ansi mikið til
svo hann falli niður listann. Við getum svo ekki haft áhrif á framboðslista
annara en við kjósum.
Á fundi bæjarstjórnar Garðs þann 11. september s. l. lagði N-listinn, sem
skipar minnihluta fram athyglisverða tillögu. Í tillögunni er gert ráð fyrir því
að í næstu kosningum verði um persónukjör að ræða. Veturinn verði notaður
til undirbúnings og sótt verði um heimild til ráðuneytisins um að Garðurinn
verði tilraunasveitarfélag í þessum efnum.
Nú er það svo allavega í minni sveitarfélögum að bæjarfulltrúar vinna að
hagsmunamálum síns sveitarfélags án þess að blanda stjórnmálaskoðunun
sínum í landsmálum inní. Aðeins einu sinni í sögu Garðsins hefur verið boðið
fram undir listabókstaf stjórnmálaflokks, en það gerðist í síðustu kosningum
er boðið var fram undir merki Sjálfstæðisflokksins D-listi.
Leiðarahöfundur hefur oft velt því fyrir sér gegnum tíðina hvort æskilegra væri
að viðhafa persónukjör til sveitastjórna. Ég er ekki einn um að hafa velt því fyrir
mér. Stjórnmálaflokkar hafa sagst vilja gera það, en minna orðið úr efndum.
Að mínu viti koma tvær leiðir til greina. Í fyrsta lagi að áfram verði boðnir
fram listar. Ef kjósandi er sáttur við niðurröðun á lista kýs hann að sjálfsögðu
þann lista. Einnig gæti hann breytt röð inná listanum. Það er eins og hægt er
að gera núna. Breytingin væri aftur á móti sú að kjósanda væri heimilt t. d.
að velja þrjá á einum lista og svo einn eða tvo á öðrum listum. Þannig þyrfti
kjósandi ekki að binda sig eingöngu við einn framboðslista. Atkvæðamagn
væri reiknað út á hvern frambjóðanda sem fengi x við sitt nafn.
Í öðru lagi er hægt að hugsa sér að hver og einn, sem hefur kosningarétt geti
boðið sig fram til sveitarstjórnar. Þannig gæti t. d. kjörseðill verið með 50
nöfnum, sem kjósendur myndu velja úr þá 7 sem sitja eiga í sveitarstjórn.
Með þessu móti væri alfarið um persónukjör að ræða.
Þeir sem næðu þannig kjöri myndu síðan ráða sér framkvæmdastjóra (Bæjar-
stjóra) og semja fjárhagsáætlun og afgreiða öll mál sem á borð sveitarstjórnar
berast. Tillaga N-listans er mjög athuglisverð og vert að huga vel að henni.
Leiðari
Athyglisverð tillaga
um persónukjör við
næstu sveitastjórnar-
kosningar í Garði
Reykjanes kemur næst út
fimmtudaginn 3. október.
næsta
blað
Annar heimur
Fjóla Ósland Hermannsdóttir sýndi myndir sínar á Kaffitár á Ljósanótt. Þetta mun vera fyrsta einkasýning Fjólu. Hún leitast við að ná þrívíddar tilbrigðum í myndum sínum. Virkilega flott sýning.
Sögðu frá Eyjagosinu
Einn liður í dagskrá Ljósanætur var sagnakvöld á Nesvöllum. Heimaeyjargossins var minnst
en nú eru liðin fjörtíu ár frá þeim at-
burði. Þann 3. júlí 1973 var því form-
lega líst yfir að eldgosinu væir lokið.
Brynja Pétursdóttir og Jón Berg Hall-
dórsson sögðu frá upphafi gossins og
áhrifum á sitt líf. Reynir Sveinsson
sagði frá björgunarstörfum í Eyjum.
Ótrúleg saga
Það hefur verið magnað að fylgjast með Hilmari Braga fréttastjóra á Víkurfréttum síðustu þrjá
mánuði. Þann 11. Júni fór hann á
HSS með 40 stiga hita. Samstundis
var brunað með hann í Reykjavík þar
sem við tók aðgerð vegna alvarlegrar
sýkingar og eitrunar í blóði. Það má
teljast kraftaverk að hann komst yfir
fyrstu dagana. Hann var í raun heppinn
að lifa af. Eftir stóð að hann var með
sykursýki á háu stigi sem var orsaka-
valdurinn. Í hönd fóru erfiðir dagar
á sjúkrahúsunum, fyrst í Fossvogi og
síðan í Keflavík.
Hilmar hefur leyft okkur að fylgjast
með sér á Facebook og þar höfum við
fylgst með hvernig hverri hindruninni
af annarri hefur verið hrint. Ótrúlega
viljasterkur hefur hann nú náð að létta
sig um nærri 30 kg. Einnig hvernig
hann hefur náð að minnka sykurinn
í blóðinu í að vera núna nánast laus
við sykursýkina. Hollara matarræði og
hreyfing er galdur hans. Hilmar vakti
mikla athygli fyrir hreinskilið og inni-
legt viðtal í Kastljósi á dögunum.
Fyrir nokkrum vikum setti hann
af stað fjársöfnun til að geta glatt
hjúkrunarfólkið á spítölunum sem
hafði annast hann af miklum kærleik
og natni. Á fimmtudaginn var gekk
hann svo áheitagöngu frá Sjúkrahúsinu
í Keflavík alla leið inn að Landspítal-
anum í Fossvogi. Hann afhenti síðan
starfsfólkinu á þessum stöðum 110
leikhúsmiða við mikla gleði. Ég tel
að þessi framganga, þrautseigja og
sigrar Hilmars séu hvatnig fyrir alla
þá mörgu sem standa í þeim sporum
að vera komnir með áunna sykursýki.
Silla E.
Léttur
föstudagur
Á morgun föstudaginn 20.septem-ber kl 14:00 verður vetrarstarf
eldri borgara kynnt á Nesvöllum.
Vilja
endurtaka
Vitahátíð
Ferða,safna og menningarnefnd Garðs leggur til að Vitahá-tíð verði endurtekin í haust.
Hátíðin verði með svipuðu sniði og
haustið 2010 sem þóttist takast mjög
vel. FSM-nefnd óskar eftir því að
bæjarráð samþykki styrk til að standa
undir hátíðinni allt að 1.0 mkr. Nefnd
FSM er tilbúin að vinna að undirbún-
ingi hátíðarinnar og mun gera það sem
sjálfboðaliðar án kostnaðar.