Reykjanes - 19.09.2013, Síða 6
Smíðum sérlega vandaðar bílskúrs- og
iðnaðarhurðir eftir málum.
Þær eru léttar og auðveldar í notkun.
Einangrun er á öllum köntum. Fáanlegar í mörgum
stærðum og gerðum, með eða án glugga.
Einnig fáanlegar með mótordrifi.
Vagnar & þjónusta ehf
Tunguháls 10, 110 Reykjavík
Sími: 5673440, Fax: 5879192
BÍLSKÚRA- OG
IÐNAÐARHURÐIR
6 19. september 2013
Auglýsingasíminn er 578 1190
Flott
lunda-
mynd
Fjóla Jóns sýndi nokkrar myndir á Flughótelinu á Ljósanótt. Rosalega er nú
lundinn alltaf flottur.
Kristbjörg
Kamilla með
sýningu
Á Kaffihúsinu Petit sýndi m. a. Kristbjörg Kamilla Sig-tryggsdóttir nokkrar virkilega
skemmtilegar myndir.
Ásmundur á sagnasíðdegi
Ásmundur Friðriksson þingmaður mætti á sagnasíðdegi á Nes-
völlum, þar sem hann sagði frá og las úr
bók sinni. Fólk hafði gaman af léttum
og skemmtilegum sögum frá uppvexti
Ása grása í Grænuhlíð. Skemmtilegar
Eyjasögur.
Línuveiðar komnar á fullt
Eins og vanalega þá hófust veiðar í Faxaflóa með dragnót núna 1. september enn þær
ganga undir nafninu bugtarveiðar.
Veiðar bátanna voru þokkalegar. Örn
KE er með 57 tonn í 7 og þar af 18
tonn í stærsta róðri sínum. Njáll RE
43 tonn í 7 og þar af 11 tonn í einni
löndun. Siggi Bjarna GK 42 tonn í 6
og 11,6 tonn í stærsta róðri sínum.
Benni Sæm GK 38 tonn í 6 og Farsæll
GK 39 tonn í 8 og er báturinn hættur í
bugtinni og farin til síns heimahafnar,
Grindavíkur. Þessu til viðbótar má
nefna tvo báta sem landa í Reykja-
vík sem líka eru á þessum veiðum.
Aðalbjörg RE sem er með 53 tonn í
6 og 14,4 tonn í stærsta róðri sínum
og Aðalbjörg II RE 46 tonn í 6. Sigur-
fari GK sem er ekki í bugtinni er þó
hæstur og með 88 tonn í 6 róðrum,
mest 28 tonn í einni löndun.
Núna eru línuveiðar komnar
á fullt og eru flestir bátanna af
suðurnesjnum að landa á norður og
austurlandinu. Af stóru bátunum má
nefna að Jóhanna Gísladóttir ÍS er
með 242 tonn í 3, Tómas Þorvalds-
son GK 218 tonn í 5, Valdimar GK
168 tonn í 3, Sturla GK 168 tonn í 3,
Kristín ÞH 165 tn í 3, Ágúst GK 127
tonn í 2 og Páll Jónsson GK 126 tonn í
3. Gulltoppur GK sem stundar veiðar
á balalínu og er að landa á Djúpavogi
hefur gengið nokkuð vel og er með
67 tonn í 9 róðrum.
Mjög margir bátanna landa
á Djúpavogi og t. d eru allir
Stakkavíkurbátarnir að landa þar,
Gulltoppur GK er einn af þeim, hinir
eru Óli á Stað GK með 50 tn í 7, Þór-
katla GK 50 tonn í 7 og þar af 11,5
tonn í einni löndun, Hópsnes GK 44
tn í 7 og 12,3 tonn í einni löndun og
Una SU 8 tonn í 2. um borð í Unu SU
er Baldur skipstjóri og skipti hann um
bát og fór með Unu SU suður og tók
til baka Rán GK sem Stakkavík á. Una
SU er yfirbyggður bátur og stendur
til að lengja bátinn uppí 30 BT eins
og reglur um stærð krókabáta leyfa.
Rán GK er óyfirbyggður bátur um 19
BT að stærð.
Af öðrum bátum þá má nefna Auði
Vésteins SU sem er með 48 tonn í
7, Bergur Vigfús GK 41 tonn í 7 ,
Von GK 39 tn í 8, Dóri GK 38 tn í
6 og landa þessir þrír bátar allir á
Neskaupstað. Þar er líka Daðey GK
sem er með 35 tn í 7. Dúddi Gísla GK
er á Skagaströnd og er með 33 tonn
í 6. Muggur KE er þar líka og er með
22 tonn í 6.
Það fer að líða að lokum hand-
færaveiða á makríl enn bátarnir
mega veiða til 20. september. Nokkur
fjöldi báta hefur verið að veiða rétt
við Keflavík og hafa komið góðir
róðrar inná milli . Fjóla GK er með
28 tonn í 8 og 7,2 tonn í stærsta róðri
sínum. Dögg SU 26 tonn í 9, landað
í Keflavík. Pálína Ágústdóttir GK 25
tonn í 8 og landað í Sandgerði og
Keflavík. Svala Dís KE 20 tonn í 8,
Máni II ÁR 17 tonn í 7, Reynir GK
16 tonn í 7, Æskan GK 13 tn í 8, Sæ-
borg SU 11,5 tní 4, Hringur GK 9 tn
í 5, Magnús HU 8,4 tn í 7, Stakkavík
GK 7 tn í 6, Signý HU 7 tn í 7, Gosi
KE 3,6 tn í 4, Gulley KE 3,6 tn í 5 og
Bolli KE 2 tn í 4 og allir þessir bátar
hafa landað í Keflavík.
Einungis tveir bátar eru komnir á
netin og eru það Happasæll KE sem
er með 25 tonn í 8 og Maron HU sem
er með 12 tonn í 4. Erling KE er í
slipp. Tungufell BA landaði 4,1 tonni
af sæbjúgu í einni löndun í Keflavík
Gísli R.
Aflafréttir