Reykjanes - 19.09.2013, Page 14

Reykjanes - 19.09.2013, Page 14
Dagana 4. – 6. október 2013 stendur sveitarfélagið Garður fyrir fyrirtækjasýningu í Íþróttamiðstöðinni í Garði. Á sýningunni munu fyrirtæki, félagasamtök, stofnanir og einstaklingar í Garði kynna starfsemi sína og framleiðslu. Fyrirtækjasýningin í Garði verður formlega opnuð almenningi föstudaginn 4. október kl. 18:00, með opnunardagskrá. Sýningin verður opin almenningi föstudaginn 4. október kl. 18:00 – 20:00. Laugardaginn 5. október og sunnudaginn 6. október kl. 11:00 – 17:00. Aðgangur að fyrirtækjasýningunni er ókeypis og allir velkomnir. Bæjarstjórinn í Garði. Fyrirtækjasýning í Garði Sveitarfélagið Garður 14 19. september 2013 Bílar og kjötsúpa Það var heilmikið um að vera hjá GE bílum (Bílahúsið) á laugardegi Ljósanætur. Fullt af glæsivögnum til sýnis. GE bílar bjóða upp á mjög fjöl- breytt úrval bíla af öllum stærðum og breiðu verðbili. Á bílasölunni má sjá mörg af þekktustu merkjum gæðabíla. Ekki skemmdi það að fá ljúffenga kjöt- súpu, sem Jona Holm hafði útbúið. Guð- mundur bílasali sagði að þetta legðist vel í sig. Hann væri bjartsýnn á góða sölu bíla til Suðurnesjamanna. Litirnir sýna fjölbreytileikann Það er alltaf spenna í loftinu við Myllubakkaskóla við upphaf setningar Ljósanætur. Rúmlega 2000 nemendur grunnskóla og elsti ár- gangur leikskólanna koma þá saman. Hver skóli hefur sinn lit á blöðrunni. Árni bæjarstjóri gat þess í sínu ávarpi að litirnir sýndu fjölbreytileikann og að við værum misjöfn. Öll gætum við þó unnið saman og glaðst saman. Það var tignarleg sjón þegar blöðrunum var slepp og þær svifu fallega upp. Vogar Beiðni um lausn frá störfum Á síðasta bæjarstjórnarfundi í Vogum var eftirfarandi tekið fyrir. Með fundarboði fylgir tölvupóstur frá Ingu Sigrúnu Atladóttur, dags. 18.08.2013, svohljóðandi: Þar sem ég hef flutt lögheimili mitt úr sveitarfélaginu hef ég ekki lengur setu- rétt í bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga. Ég vil þakka öllum íbúum sveitarfélags- ins kærlega fyrir ánægjulegt samstarf, ég kveð ykkur með mikilli eftirsjá en einnig með stolti yfir öllum þeim málum sem ég hef barist fyrir þau 7 ár sem ég hef setið í bæjarstjórninni. Með vinsemd og virðingu, Inga Sigrún Atladóttir fv. forseti bæj- arstjórnar í Sveitarfélaginu Vogum. Bæjarstjórn þakkar Ingu Sigrúnu samstarfið og óskar henni velfarnaðar í þeim verkefnum sem hún nú hefur tekið sér fyrir hendur. Bæjarstjórn samþykkir að fyrsti varamaður H-listans, Björn Sæbjörns- son, taki nú sæti sem aðalmaður og fulltrúi H-listans í bæjarstjórn. Jafn- framt er samþykkt að Jón Elíasson verði fyrsti varamaður H-listans í bæjarstjórn. Inga sigrún Atladóttir

x

Reykjanes

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.