Hagtíðindi - 01.01.1916, Síða 10
6
HAGTÍÐINDI
Samanborið við mannfjölda komu á hvert þúsund landshúa 1914
26.5 lifandi fædd börn, en árið 1913 komu á livert þúsund 25.4,
árið 1912 25.8 og 1911 sama tala. Hafa þannig fæðst tiltölulega íleiri
börn 1914 heldur en næstu árin á undan, en yfirleitt hafa samt
fæðingarnar orðið fátíðari á síðari árum. 1901 —1910 komu að
meðaltali 27.s lifandi fædd börn á hvert þúsund landsbúa og síð-
asta áralug nítjándu aldarinnar jafnvel 31.2. Hins sama liefur orðið
vart í flestum menningarlöndunum, eu einna mest þó á Frakklandi.
Þar komu að eins 18.s lifandi fædd hörn á livert þúsund landsbúa
árið 1913, en næst Frakklandi ganga að þessu leyli Belgía, írland,
England, Sviss og Norðurlönd. Á íslandi er tíðleiki fæðinganna lik-
astur því sem er í Danmörku og í nágrannalöndunum Noregi og
Skotlandi. í Danmörku komu 1913 25.6 lifandi fædd börn á hvert
þúsund landsmanna, á Skotlandi 25.5 og í Noregi 25.2. í öllum
öðrum löndum Norðurálfunnar en þeim, sem nefnd hafa verið, eru
fæðingar tíðari heldur en á íslandi.
Af lifandi fæddum börnum lijer á landi árið 1914 voru 333
eða 14.3°/o óskilgetin. Er það óvenjulega margt, því að 1913 voru
að eitis 12.8°/o óskilgetin, 1912 12.2°/o og 1911 13°/o. Árin 1901 —10
voru að .meðaltali 13.3°/o óskilgetin, 1891—1900 16.c°/o.
Af fæðingunum 1914 voru 25 tvíburafæðingar, en 1913 voru 34
tvíburafæðingar og 2 þríburafæðingar og 1912 33 tvíburafæðingar
og 1 þríburafæðing.
Andvana fædd börn árið 1914 voru 56. Er það það fæsla,
sem verið hefur á nokkru ári á þessari öld. Árið 1913 fæddust
andvana 84 börn, 1912 76 og 1911 63. Árin 1901 —10 voru and-
vana fæddir að meðaltali 71 á ári, en 1891—1900 79.
Manndauði.
Árið 1914 dóu hjer á landi samkvæmt skýrslum presta 1 429
manns. Var það hált á fjórða hundrað manns fleira lieldur en
næsta ár á undan. Þá dóu 1 060, en árið 1912 dóu 1 170 og 1911
1 151. Árið 1914 hcfur verið óvenjumikill manndauði eflir því sem
verið liefur á síðari árum. Af hverju þúsundi dóu 16 2. Að vísu er
það lítið í samanburði við það, sem manndauði var á öldinni, sem
leið, en á siðustu árum liefur hann farið mjög minkandi og árið
1913 var hann langminslur, sem hann hefur nokkru sinni verið. Þá
dóu að eins 12.1 af þúsundi, en árin næslu þar á undan (1912 og
1911) dóu 13.5 af þúsuudi. Árið 1913 var maundauði í Hollandi 12.3
af þúsundi, i Danmörku 12.5, í Noregi 13.2, í Svíþjóð 13.c og á Eng-
landi 13.7. í öðrum löndum Norðurálfunnar var manndauði ineiri.